09. nóv. 2018Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Fjárlagafrumvarpið: Helstu áherslur á sviði félags- og jafnréttismála
Bætt kjör öryrkja, hækkun greiðslna til foreldra í fæðingarorlofi, aukinn stuðningur við börn og barnafjölskyldur, áhersla á uppbyggingu félagslegs húsnæðis og aukinn stuðningur við atvinnuleitendur eru megináherslur á málefnasviði félags- og jafnréttismálaráðherra sem birtast í fjárlagafrumvarpinu. Framlög til að bæta kjör öryrkja og til endurbóta á almannatryggingakerfinu vega þyngst og nemur aukningin 4,0 milljörðum króna.