17. nóv. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
709/2017. Úrskurður frá 2. nóvember 2017
Kaffitár ehf. kærði ákvörðun Isavia ohf. um synjun beiðni um aðgang að gögnum sem tengjast samkeppni um leigurými á Keflavíkurflugvelli í mars 2014 og ekki voru til umfjöllunar í fyrri úrskurðum úrskurðarnefndarinnar nr. 579/2015 og 586/2015. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir rétt kæranda til aðgangs að gögnunum, lið fyrir lið, og taldi skylt á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga að veita fyrirtækinu aðgang að hluta umbeðinna gagna. Um önnur gögn ýmist staðfesti nefndin ákvörðun Isavia, vísaði kæru frá eða lagði fyrir Isavia að taka beiðnina til nýrrar meðferðar.