02. okt. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegir
Auglýsing um aukaúthlutun tollkvóta vegna innflutnings á pottablómum
Útboð tollkvóta á blómum fyrir fyrri hluta ársins 2023 var auglýst 24. október 2022. Ekkert tilboð barst um tollkvóta pottablóma og með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1151/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2023.