05. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir
584 milljónir til ferðamannastaða hringinn í kringum landið: Sækjum íslenska áfangastaði heim í sumar!
„Íslensk ferðaþjónusta hefur nýtt tímann vel undanfarið, þrátt fyrir flóknar áskoranir, og staðið vel og rækilega að uppbyggingu. Það þýðir að hringinn í kringum landið hafa verið byggðir upp einstakir áfangastaðir og í öllum landshlutum má finna hlaðborð menningar, nýsköpunar og ferðaþjónustu. Mig langar að hvetja ykkur öll til að ferðast um Ísland, heimsækja stórfenglega náttúru okkar og upplifa menninguna hringinn í kringum landið,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra.