Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 651–700 af 892
    Raða eftir:
    11. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Minnt á umsóknarfrest um styrki til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála

    Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 9. nóvember 2020.

    10. maí 2020Atvinnuvegir, Menningarmál, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Saman í tónlistarsókn

    Íslandsstofa hefur fyrir hönd markaðsverkefnisins „Ísland – saman í sókn“ gert samkomulag við Iceland Airwaves um framkvæmd tónlistarhátíðarinnar Live from Reykjavík.

    10. maí 2020Menningarmál, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Könnun á starfsaðstæðum og áhrifum COVID-19 á skólastarf

    Mennta- og menningarmálaráðuneyti mun í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga gera könnun meðal skólafólks um viðbrögð við COVID-19 faraldrinum og áhrifum hans á skólastarf nú um stundir s.s. starfsaðstæður og öryggi starfsfólks og nemenda í skólum.

    10. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Aðgerðir til að létta á útskriftarvanda Landspítala

    Heilbrigðisráðuneytið hefur í samvinnu við Landspítala, aðrar heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili unnið að því að létta álagi af Landspítala með því að flytja þaðan sjúklinga sem hægt er að sinna annars staðar sem eru einkum aldraðir hjúkrunarsjúklingar. Frá því um nýliðin mánaðamót hafa rúmlega 20 sjúklingar verið færðir frá spítalanum til annarra stofnana og unnið er að fleiri lausnum í þessu skyni.

    08. maí 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Styrkir til sveitarfélaga vegna áskorana í félagsþjónustu í tengslum við Covid-19

    Byggðastofnun hefur auglýst styrki til sveitarfélaga vegna áskorana sem hafa fylgt COVID-19 faraldri í félagsþjónustu og barnavernd vorið 2020.

    06. maí 2020Hönnun, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sjálfbær byggingariðnaður, íslensk framleiðsla, handspritt úr matarafgöngum og lífræn verðlaun í íþróttum meðal verkefna sem hljóta styrki í aukaúthlutun Hönnunarsjóðs

    „Ég fagna þeirri áherslu á nýsköpun og skapandi lausnir sem er einkennismerki þessarar úthlutunar úr Hönnunarsjóði. Nú gildir að leita nýrra lausna við þeim áskorunum sem blasa við,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

    06. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Ákvörðun um gjaldtöku fyrir skimun á landamærum

    Farþegar sem koma til landsins og kjósa að fara í sýnatöku vegna Covid-19 fremur en að sitja 14 daga í sóttkví, munu frá 1. júlí næstkomandi greiða 15.000 kr. gjald vegna sýnatökunnar. Sýnataka á landamærum hefst 15. júní og verður gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar. Börn fædd árið 2005 eða síðar þurfa ekki að fara í sýnatöku. Tillaga heilbrigðisráðherra um gjaldtökuna var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

    06. maí 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór skipar stjórn Matvælasjóðs

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað stjórn Matvælasjóðs. Alþingi samþykkti nýverið frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Matvælasjóður verður til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjáv

    05. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Könnun á nýjum lausnum stofnana vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Undanfarið hafa fjölmargar opinberar stofnanir brugðist við heimsfaraldri kórónuveiru með ýmsum breytingum á starfsemi sinni sem miðað hafa að því að tryggja að hægt sé að sinna verkefnum stofnana og veita opinbera þjónustu. Sem dæmi um breytingar má nefna aukna stafræna þjónustu í gegnum Ísland.is og nýjar samskiptaleiðir við veitingu heilbrigðisþjónustu.

    05. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Bjartari tímar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar í blaðagrein um breytingarnar varðandi takmarkanir á samkomum sem tóku gildi í gær. Hún segir þetta merkan áfanga og til marks um hve vel hefur tekist hér á landi að hafa stjórn á útbreiðslu kórónuveirunnar, verja heilbrigðiskerfið og vernda viðkvæma hópa. Hún minnir á að verkefninu sé þó langt í frá lokið, mikilvægt sé að allir haldi áfram vöku sinni, vinni saman og skilji engan eftir nú þegar bjartari tímar eru framundan og sumarið á næsta leiti.

    05. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigði í okkar höndum

    Í dag er alþjóðlegi handþvottadagurinn sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur staði fyrir ár hvert frá árinu 2009 undir yfirskriftinni „Björgum mannslífum: Þvoum okkur um hendur.“ Að þessu sinni er sjónum beint að heilbrigðisstarfsfólki og þeirra þætti í að tryggja öryggi sjúklinga og fyrirbyggja smit með reglubundnum og góðum handþvotti. COVID-19 faraldurinn er skýrt dæmi um hvað veirusmit geta breiðst hratt út og afgerandi áminning um mikilvægi handþvottar. Því er óhætt að segja að heilbrigði sé í okkar allra höndum þar sem við getum haft mikil áhrif með reglulegum handþvotti.

    05. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Covid-19, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Aðgerðum í loftslagsmálum flýtt

    Alls verður 550 milljónum króna ráðstafað aukalega í ár til loftslagsmála í sérstöku tímabundnu fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar sem Alþingi samþykkti í lok mars til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Búið er að útfæra nánar skiptingu fjármagnsins milli verkefna sem tengjast orkuskiptum og kolefnisbindingu í þágu loftslagsmála auk þess sem Loftslagssjóður verður styrktur.

    05. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Aukinn kraftur í aðgerðir og vitundarvakningu gegn ofbeldi

    Aðgerðateymi á að stýra og samræma vinnu við útfærslu aðgerða gegn ofbeldi.

    30. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Staða Icelandair

    Undanfarnar vikur hefur fulltrúum stjórnvaldaverið haldið upplýstum um stöðu Icelandair þar sem fram hefur komið að félagið vinnur að fjárhagslegri endurskipulagningu og söfnun nýs hlutafjár.

    30. apr. 2020Menningarmál, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stuðningur við íþrótta- og æskulýðsstarf vegna COVID-19

    Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands verður falið að úthluta 450 milljóna kr. stuðningi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar til þess að mæta áhrifum COVID-19. Samningur þess efnis var undirritaður í gær.

    30. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Eftirlitsnefnd vegna viðbótarlána skipuð

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eftirlit með framkvæmd veitingar viðbótarlána lánastofnana með ríkisábyrgð. Í nefndinni eiga sæti; Einar Páll Tamimi, formaður, Kristrún Heimisdóttir og Ásta Dís Óladóttir.

    29. apr. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Evrópuríki hvött til að aðlaga tímabundið reglur um endurgreiðslu vegna flugs sökum Covid-19

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fundaði í dag með evrópskum samgönguráðherrum til að ræða leiðir hvernig mætti draga úr neikvæðum áhrifum af heimsfaraldri kórónuveiru á samgöngur.

    29. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Fundir með forsætisráðherra Svíþjóðar og jafnréttisráðherra Austurríkis

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, áttu símafund um baráttuna gegn COVID-19 í dag.

    29. apr. 2020Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar, Covid-19, Evrópusamvinna, Flóttafólk, Landamæraeftirlit, Löggæsla, Almannaöryggi

    Breyting vegna Covid-19 getur haft áhrif á um 225 umsækjendur um alþjóðlega vernd

    Dómsmálaráðherra tók þátt í óformlegum fundi ráðherra dómsmála og innanríkismála innan Evrópu þann 28. apríl, þar sem umræðuefnið var áhrif COVID-19 á innanríkismál og útlendingamál, núverandi áskoranir og hvað sé framundan.

    29. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hakkaþon um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Almenningur og frumkvöðlar taka höndum saman um að finna nýjar lausnir á sviði heilbrigðisþjónustu til gera heilbrigðiskerfinu betur kleift að fást við nýjar áskoranir vegna COVID-19. Dagana 22.-24. maí verður haldin nýsköpunarkeppni þar sem einstaklingum og frumkvöðlum gefst kostur á aðkeppa um bestu lausnirnar. Vefsíða keppninnar var formlega opnuð í dag hakkathon.island.is.

    29. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Framkvæmdir við endurgerð Hegningarhússins hefjast í sumar

    Ríkiseignir og Minjavernd hafa gengið frá undirritun samstarfssamnings um að hefja fyrsta áfanga við endurgerð á Hegningarhúsinu Skólavörðustíg. Húsið er friðað samkvæmt lögum um menningarminjar og mikilvægt að viðgerð hússins taki mið af upprunalegri gerð þess, bæði hvað efnisval og handverk varðar.

    28. apr. 2020Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur, Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Einföldun reglna um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja

    Í samræmi við tillögur ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í dag vinnur dómsmálaráðuneytið að tillögum til að einfalda tímabundið reglur um fjárhagslega endurskipulagningun fyrirtækja.

    28. apr. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Umferð, Samgöngur og fjarskipti

    Álagningu vanrækslugjalda vegna skoðunar ökutækja frestað að nýju

    Álagningu vanrækslugjalds 1. apríl og 1. maí vegna skoðunar ökutækja verður frestað til 1. júní vegna COVID-19 faraldursins.

    28. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Framhald hlutastarfaleiðar og aukinn stuðningur við fyrirtæki

    Fyrirtækjum sem orðið hafa fyrir umfangsmiklu tekjutapi verður gefinn kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti til að tryggja réttindi launafólks og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot fyrirtækja.

    28. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Byggðamál, Covid-19, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Bregðast við áhrifum COVID-19 á úthlutun og nýtingu byggðakvóta

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um breytingu á úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar.

    24. apr. 2020Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Verslun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Íslenskt- gjörið svo vel: Sameiginlegt átak stjórnvalda og atvinnulífsins

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hafa undirritað samning um sameiginlegt kynningarátak stjórnvalda og atvinnulífs um að verja störf og auka verðmætasköpun undir heitinu: Íslenskt – gjörið svo vel. ​

    24. apr. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður

    Margvíslegar aðgerðir til að styðja sveitarfélög

    Margvíslegar aðgerðir fyrir sveitarstjórnarstigið eru að finna í öðrum áfanga stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónaveiru.

    24. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór undirritar reglugerð um strandveiðar 2020

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um strandveiðar árið 2020

    22. apr. 2020Menntamál, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    3.000 sumarstörf fyrir námsmenn

    Liður í efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19 er sérstakt átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn, 18 ára og eldri, sem eiga takmarkaðan eða engan rétt til atvinnuleysisbóta

    22. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Covid-19

    Valkvæðar skurðaðgerðir heimilaðar á ný 4. maí

    Valkvæðar skurðaðgerðir og ífarandi rannsóknir verða heimilaðar frá 4. maí næstkomandi og ýmsum öðrum takmörkunum á heilbrigðisþjónustu aflétt. Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um þetta í samræmi við tillögu landlæknis.

    22. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Dómsmálaráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Breyttar reglur um sóttkví og upptaka landamæraeftirlits á innri landamærum

    Heilbrigðisráðherra hefur í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis breytt gildandi reglum um sóttkví. Með nýjum reglum verður öllum sem koma til landsins skylt að fara í sóttkví í 14 daga frá komu. Samhliða verður tekið upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum. Reglurnar koma til framkvæmda föstudaginn 24. apríl og falla að óbreyttu úr gildi 15. maí.

    22. apr. 2020Landbúnaður, Nýsköpun, Covid-19, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Matvælasjóður verði settur á fót

    Til að efla nýsköpun og þróun í innlendri matvælaframleiðslu verður settur á fót Matvælasjóður og verður 500 milljónum króna varið til stofnunar hans á þessu ári. Stofnun sjóðsins er hluti af öðrum áfanga aðgerða til að bregðast við áhrifum COVID-19.

    22. apr. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    800 milljónum kr. varið til að efla sumarnám

    Stjórnvöld hafa ákveðið að veita 800 milljónum kr. til framhalds- og háskóla svo unnt sé að bjóða námsmönnum upp á sumarnám á komandi sumri. Markmið fjárveitingarinnar er að sporna gegn atvinnuleysi meðal ungs fólks og efla menntun. Gert er ráð fyrir 500 milljónum kr. í sumarnám á háskólastigi og 300 milljónum kr. í sumarnám á framhaldsskólastigi.

    21. apr. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Öflugar aðgerðir í þágu nýsköpunar í aðgerðarpakka tvö

    „Í viðspyrnunni er sérstaklega mikilvægt að byggja upp atvinnugreinar sem byggja á nýsköpun og hugviti. Við höfum þegar tekið til fjölmargra úrræða og núna stígum við skref til framtíðar og sækjum fram með nýsköpun að leiðarljósi,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

    21. apr. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Skóla-, frístunda- og íþróttastarf barna og ungmenna eftir 4. maí

    Tilkynnt hefur verið um afléttingu takmarkana á skólastarfi frá og með mánudeginum 4. maí nk. og nú hefur heilbrigðisráðuneyti birt auglýsingu þar sem nánar er fjallað um útfærslu þess og áhrif á mismunandi skólastig.

    21. apr. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    600 mánaðarlaun til viðbótar til listamanna

    Stjórnvöld hafa ákveðið að hækka fjárveitingu í launasjóði listamanna um 250 milljónir kr. og fjármagna með því sköpun nýrra menningarverðmæta í landinu strax á þessu ári.

    21. apr. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    350 milljóna kr. stuðningur við einkarekna fjölmiðla

    Ríkisstjórnin hyggst styðja við rekstur einkarekinna fjölmiðla með 350 milljóna kr. framlagi, vegna þess mikla tekjutaps sem miðlarnir hafa orðið fyrir samhliða minnkandi umsvifum í hagkerfinu.

    21. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Kynningarefni vegna framhaldsaðgerða stjórnvalda í tengslum við heimsfaraldur kórónaveiru

    Framhaldsaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónaveiru voru kynntar á blaðamannafundi í dag. Meðfylgjandi eru glærur sem tengjast kynningunni.

    21. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyttar reglur um takmarkanir á samkomum frá 4. maí

    Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí næstkomandi, unnt verður að opna framhalds- og háskóla og ýmsir þjónustuveitendur geta á ný tekið á móti viðskiptavinum. Frá sama tíma falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og einnig fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólaaldri. Þetta er meðal þess sem leiðir af nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Rýmkun á reglum um takmarkanir á skólahaldi og samkomum er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    21. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Álagsgreiðslur til heilbrigðisstarfsfólks og efling geðheilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verja um 1,0 milljarði króna í sérstakar álagsgreiðslur til starfsfólks sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana sem starfar undir miklu álagi vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Enn fremur verða framlög til geðheilbrigðisþjónustu aukin um 540 milljónir króna til að efla geðheilbrigðisþjónustu um allt land. Þessar aðgerðir eru liður margþættum aðgerðum stjórnvalda vegna áhrifa Covid-19 hér á landi sem kynntar voru í dag.

    21. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Félagslegar aðgerðir fyrir tæpa 5,7 milljarða króna vegna áhrifa af COVID-19

    Ætlað að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem faraldurinn hefur á viðkvæma hópa í samfélaginu

    21. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Varnir, vernd og viðspyrna gegn efnahagslegum og félagslegum áföllum

    Lokunarstyrkir til fyrirtækja sem var gert að hætta starfsemi vegna sóttvarna. Stuðningslán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Fyrirtækjum heimilað að jafna tekjuskatt 2019 með tapi 2020.

    21. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál

    Vinnumálastofnun fær allt að 100 milljóna króna aukafjárveitingu vegna COVID-19

    Vinnumálstofnun fær allt að 100 milljóna króna viðbótarfjármagn til reksturs stofnunarinnar vegna aukinna verkefna í tengslum við COVID-19

    21. apr. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Kvenleiðtogar funda um áhrif COVID-19 á jafnréttismál

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók í gær þátt í fjarfundi kvenleiðtoga um áhrif COVID-19 á jafnréttismál og stöðu kvenna. Að fundinum stóðu Stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) og Efnahags- og framfarastofnunin (OECD).

    21. apr. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úthlutun menningarstyrkja hefst

    Opnað verður fyrir umsóknir um aukaúthlutun styrkja á sviði menningarstarfs og skapandi greina á allra næstu dögum.

    20. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Mest ánægja með viðbrögð stjórnvalda á Íslandi

    96% aðspurðra á Íslandi telja að stjórnvöld standi sig vel í viðureigninni við kórónuveiruna. Íslendingar eru ánægðastir allra þjóða með frammistöðu sinna stjórnvalda vegna COVID-19 samkvæmt alþjóðlegri könnun Gallups.

    20. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegir

    Opnað á endurgreiðslu á milliuppgjörum vegna kvikmyndaframleiðslu

    Í dag var í Stjórnartíðindum birt reglugerð frá ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem heimilar framleiðendum kvikmynda að óska eftir sérstakri útborgun á endurgreiðslu á milliuppgjörum verkefna sem þegar hafa fengið vilyrði fyrir endurgreiðslu kostnaðar. Með breytingunni er komið til móts við framleiðendurnar vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 hefur haft á kvikmyndagerð á Íslandi.

    20. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Atvinnuvegir

    ESA: Veiting ábyrgða á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja vegna COVID-19 samrýmist framkvæmd EES-samningsins

    Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, féllst í dag á að fyrirhuguð veiting ábyrgða á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja, í tengslum við heimsfaraldur kórónuveiru (COVID-19), samrýmist framkvæmd EES-samningsins. Um er að ræða fyrsta íslenska ríkisaðstoðarkefið í tengslum við faraldurinn sem kemur til kasta ESA.

    20. apr. 2020Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Viðbótarúthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðstafað 200 milljón kr. viðbótarframlagi til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á árinu 2020 með hliðsjón af vinnu stjórnar sjóðsins frá úthlutun ársins 2020 í mars sl.

    17. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Samningur um framkvæmd á veitingu ábyrgða gagnvart lánastofnunum vegna viðbótarlána þeirra til fyrirtækja

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Seðlabanki Íslands hafa undirritað samning um skilmála við framkvæmd á veitingu ábyrgða ríkisins á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja í tengslum við heimsfaraldur kórónaveiru.

    • First
    • Prev
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband