10. sep. 2017Aðgerðir gegn spillingu og mútubrotum, Almannaöryggi, Dómsmálaráðuneytið
Fulltrúar GRECO í vettvangsferð á Íslandi vegna úttektar
GRECO, samtök ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu, beina nú sjónum sínum að því hvernig aðildarríkjum gengur að ýta undir heilindi og efla gagnsæi meðal þeirra sem fara með framkvæmdarvald í æðstu stöðum stjórnkerfisins og þeirra sem starfa innan löggæslustofnana. Markmiðið er að koma í veg fyrir spillingu með því að styrkja regluverk, stefnumótun og eftirfylgni.