02. júl. 2017Rit og skýrslur, Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið
Skýrsla um vistun barna á Kópavogshæli 1952-1993 afhent dómsmálaráðherra
<p>Svonefnd vistheimilanefnd, sem skipuð var til að kanna starfsemi vist- og meðferðaheimila fyrir börn, skilaði í dag dómsmálaráðherra skýrslu sinni og fjallar hún um vistun barna á Kópavogshæli árin 1952-1993. Áður hafði nefndin skilað skýrslum um Unglingaheimili ríkisins, Upptökuheimili ríkisins, meðferðarheimilin í Smáratúni og á Torfastöðum, um Heyrnleyingjaskólann, vistheimilin Kumbaravog, Reykjahlíð og Silungapoll, skólaheimilið Bjarg, Breiðavíkurheimilið og heimavistarskólann að Jaðri.</p>