Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 751–800 af 892
    Raða eftir:
    27. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Aðgengi að heilbrigðisþjónustu bætt með stafrænum lausnum

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gefið út gjaldskrá fyrir fjarþjónustu sérgreinalækna sem starfa á stofum utan sjúkrahúsa, ásamt upplýsingum um skilyrði sem slík þjónusta þarf að uppfylla. Þetta er liður í því að bæta aðgengi sjúklinga að heilbrigðisþjónustu við þær aðstæður sem nú ríkja vegna COVID-19. Sjúkratryggingar munu endurgreiða sjúklingum fyrir þjónustu sérgreinalækna vegna fjarheilbrigðisþjónustu, þegar það hentar sjúklingi og þegar skilyrði um slíka þjónustu eru uppfyllt, s.s. fyrirmæli landlæknis um upplýsingaöryggi við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu.

    27. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Reglur um sóttkví og einangrun vegna COVID-19

    Athygli er vakin á reglum um sóttkví og einangrun vegna COVID-19 sem heilbrigðisráðherra hefur staðfest og birtar eru á vef Stjórnartíðinda. Reglurnar gilda um alla þá einstaklinga sem sóttvarnalæknir skyldar í sóttkví eða einangrun á grundvelli sóttvarnalaga.

    27. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Covid-19

    9.670 umsóknir vegna skerts starfshlutfalls

    Kl. 14:00 í gær höfðu Vinnumálstofnun borist alls 9.670 umsóknir um skert starfshlutfall, en Alþingi samþykkti á föstudag frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um rétt til greiðslu at­vinnu­leys­is­bóta sam­hliða minnkuðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­drátt­ar í starf­semi vinnu­veit­enda, svokallaða hlutastarfaleið.

    26. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Covid-19

    Viðbragðsteymi um þjónustu við viðkvæma hópa samþykkir aðgerðir

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Aldís Hafsteinsdóttir, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, rituðu í síðustu viku undir samstarfsyfirlýsingu um aðgerðir sem miða að því að takast á við þær áskoranir​sem stofnanir ríkisins, félagsþjónusta og aðrir aðilar sem sinna þjónustu við viðkvæma hópa í landinu standa frammi fyrir vegna Covid-19 veirunnar.

    26. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Hundrað milljónir króna til Kvennaathvarfsins

    Byggingu nýs áfangaheimilis Kvennaathvarfsins verður flýtt með 100 milljóna króna fjárframlagi á árinu 2020 samkvæmt tillögu til þingsályktunar um tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

    26. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Milljarður króna til innviðauppbyggingar í heilbrigðiskerfinu á þessu ári

    Byggt verður við endurhæfingardeild Landspítalans við Grensás, ráðist í endurbætur á húsnæði heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og sérstakt framlag veitt til nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu. Einum milljarði króna verður varið í þessi verkefni á árinu samkvæmt tillögu til þingsályktunar um tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Þingsályktunartillagan verður tekin til umfjöllunar á Alþingi í dag.

    26. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19

    Sendiskrifstofur og borgaraþjónusta standa vaktina víða um heim

    Opnunartími sendiskrifstofa Íslands víða um heim hefur verið skertur vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Starfsfólk utanríkisþjónustunnar sinnir áfram erindum að heiman í síma og í gegnum tölvupóst. Íslenskir ríkisborgarar sem þurfa á þjónustu að halda vegna neyðarvegabréfa eða hyggjast sækja um almenn vegabréf eru hvattir til að hafa samband beint við sendiskrifstofu.

    26. mar. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Byggðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19

    Tveir milljarðar aukalega í loftslagsmál, snjóflóðavarnir, fráveitumál og uppbyggingu þjóðgarða

    Gert er ráð fyrir að á árinu 2020 verði um 2 milljörðum króna af 15 milljarða fjárfestingarátaki varið til verkefna sem eru á ábyrgðarsviði umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

    25. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Vinnumál, Covid-19

    Tryggja nægjanlegt framboð af hlífðarfatnaði fyrir heilbrigðisstarfsfólk

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra mælir á morgun fyrir frumvarpi um undanþágu frá CE- merkingu á hlífðarfatnaði heilbrigðisstarfsfólks.

    25. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Umferð, Samgöngur og fjarskipti

    Álagningu vanrækslugjalda vegna skoðunar ökutækja frestað um mánuð

    Álagningu vanrækslugjalds þann 1. apríl vegna skoðunar ökutækja verður frestað um einn mánuð til 1. maí vegna Covid-19 faraldursins.

    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Umfangsmikil aukning í fjárfestingu í stafrænum innviðum

    Umfangsmikil aukning fjárfestingar í tækni, stafrænum lausnum og betri upplýsingakerfum í þágu einstaklinga og fyrirtækja var í dag samþykkt af þingflokkum stjórnarflokkanna. Aukningin er hluti af 15 ma. kr. fjárfestingaátaki sem kynnt var um liðna helgi og er liður í viðamiklum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kórónaveirunnar. Alls verða framlög aukin um 1.350 m.kr. á árinu 2020 til verkefna á sviði nýsköpunar, upplýsingatækni, netöryggis og stafrænnar þjónustu, samkvæmt þingsályktun fjármála- og efnahagsráðherra sem rædd verður á Alþingi nú í vikunni.

    25. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Samgöngur og fjarskipti, Covid-19

    Framkvæmdum á flugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum flýtt

    Framkvæmdum á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöllum verður flýtt og eru hluti af efnahagsaðgerðum ríkissstjórnarinnar vegna Covid-19.

    25. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Covid-19

    Umsóknir streyma inn vegna skerts starfshlutfalls

    Í dag var opnað fyrir umsóknir um skert starfshlutfall á vef Vinnumálastofnunar.

    24. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 16/2020

    Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands sótti um undanþágu frá skólastarfi vegna verkefna og rannsókna nemenda í ýmsum deildum Heilbrigðisvísindasviðs. Ráðuneytið samþykkti hluta beiðninnar en hafnaði henni að öðru leyti.

    24. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar stækkar ört

    Enn bætast nýjar heilbrigðisstéttir í hóp bakvarðasveitar heilbrigðisþjónustunnar sem fer ört stækkandi. Bakverðir voru orðnir tæplega 680 síðdegis í dag. Nemar í hjúkrunarfræði og læknisfræði hafa nú bæst í hópinn. Opnað hefur verið fyrir skráningu þeirra og hafa þegar 37 læknanemar skráð sig og 6 nemar í hjúkrunarfræði.

    24. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Samkomubann: Aðeins fáar undanþágur með ströngum skilyrðum ef almannahagsmunir eru í húfi

    Margar umsóknir hafa borist heilbrigðisráðuneytinu um undanþágur frá takmörkun á samkomum sem heilbrigðisráðherra setti með auglýsingu 243/2020 til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Flestum þeirra hefur verið hafnað. Undanþágur eru því aðeins veittar að afar brýnir hagsmunir liggi að baki sem varði velferð almennings og þjóðarhag.

    24. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Horfur í landbúnaði og sjávarútvegi ræddar í ríkisstjórn

    Áhrif kórónaveirunnar eru víðtæk í íslensku samfélagi og gerði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, grein fyrir stöðunni eins og hún horfir við íslenskum landbúnaði og sjávarútvegi á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun en ráðuneytið hefur undanfarna daga og vikur fylgst grannt með þróun mála.

    23. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 15/2020

    Klassíski listdansskólinn ehf. sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna starfsemi sinnar fyrir nemendur á leik- og grunnskólastigi og fyrir nemendur á listdansbraut til stúdentsprófs. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar birt í Stjórnartíðindum

    Birt hefur verið í Stjórnartíðindum auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Eins og fram kom í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í gær ákvað heilbrigðisráðherra í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Ákvörðunin tekur gildi á miðnætti í kvöld.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða

    Auglýsing heilbrigðisráðherra um frestun valkvæðra skurðaðgerða tímabundið frá 23. mars – 31. maí næstkomandi, ásamt fyrirmælum embættis landlæknis þess efnis, hefur verið birt á vef Stjórnartíðinda.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Spornað við lyfjahamstri með reglugerð

    Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að einstaklingar hafi keypt tiltekin lausasölulyf í miklum mæli, eða að fólk með fjölnota lyfseðla hafi leyst út margar afgreiðslur samtímis eða með skömmu millibili. Mikilvægt er að fólk hamstri ekki lyf. Slík háttsemi getur valdið tjóni með því að skapa lyfjaskort og þannig stefnt heilsu og jafnvel lífi fólks í hættu að óþörfu. Til að sporna við þessu hefur heilbrigðisráðherra sett reglugerð sem felur í sér takmarkanir á afhendingu lyfja.

    23. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Samgöngur og fjarskipti

    Sex milljarðar í samgönguframkvæmdir á þessu ári

    Sex milljarða samgönguframkvæmdir eru hluti af efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna COVID-19.

    23. mar. 2020Covid-19, Ferðakostnaður, Ferðaþjónusta, Neytendamál, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Áhrif COVID-19 á pakkaferðir

    Áhrif kórónaveirunnar á veitingu ferðatengdrar þjónustu eru nú orðin veruleg. Stjórnvöld víðs vegar um heim hafa gripið til margvíslegra aðgerða til að hefta útbreiðslu veirunnar sem hafa m.a. falist í ferðabanni þar sem ferðamönnum er ýmist meinuð koma eða íbúum meinað að ferðast frá sínum heimalöndum. Þessar ráðstafanir hafa haft afgerandi áhrif á samgöngur og aðra ferðatengda þjónustu.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    Rafræn útgáfa vottorða til staðfestingar á sóttkví

    Þeir sem þurfa að sitja í sóttkví samkvæmt ákvörðun heilbrigðisyfirvalda geta nú sjálfir skráð upplýsingar um það inn á vefinn heilsuvera.is og fengið vottorð þar að lútandi. Vakin er athygli á því að skráning í heilsuveru krefst þess að notandi sé með rafræn skilríki.

    23. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Covid-19

    Óskað eftir dýralæknum á útkallslista

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Matvælastofnun og Dýralæknafélag Íslands óska eftir liðsinni dýralækna í bakvarðasveit.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    Fimm daga skoðun nýbura í heimahúsum vegna COVID-19

    Til að draga úr smithættu og létta á Landspítala hafa Sjúkratryggingar Íslands gert tímabundinn samning við ljósmæður um að auka vitjanaþjónustu sína í stað þess að svokölluð fimm daga skoðun fari fram á Landspítala. Vakthafandi nýburalæknir á Landspítala mun styðja við þessa þjónustu í gegnum síma eftir því sem þörf er á. Frá þessu er sagt á vef Sjúkratrygginga Íslands.

    23. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Utanríkismál

    Tímabundið dregið úr starfsemi sendiráða Íslands í Afríku

    Sendiráð Íslands í Úganda og Malaví munu draga úr starfsemi sinni næstu vikur vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Útsendir starfsmenn munu snúa heim tímabundið. Er það gert í ljósi ferðatakmarkana sem settar hafa verið á í þessum ríkjum og þeirrar óvissu sem framundan er um útbreiðslu veirunnar og flugframboð í heiminum.

    22. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Hertar takmarkanir á samkomum – mörkin sett við 20 manns

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Við öll mannamót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum. Ákvörðunin tekur gildi á miðnætti annað kvöld (þ.e. aðfaranótt þriðjudags). Takmörkun á skólahaldi verður óbreytt.

    22. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    Frestun valkvæðra skurðaðgerða vegna Covid-19

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á erindi landlæknis og staðfest fyrirmæli embættisins um að öllum valkvæðum skurðaðgerðum og öðrum ífarandi aðgerðum, t.d. greiningarrannsóknum verði hætt frá 23. mars til 31. maí næstkomandi. Á þetta við hvort sem um ræðir aðgerðir framkvæmdar innan eða utan spítala, af opinberum aðila eða einkaaðila. Fyrirmælin verða birt í Stjórnartíðindum.

    21. mar. 2020Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    4,6 milljarðar til ferðaþjónustunnar auk almennra aðgerða

    Ávísanir til landsmanna vegna ferðalaga innanlands, kröftugt alþjóðlegt markaðsátak og afnám gistináttaskatts út næsta ár eru meðal þeirra aðgerða í þágu íslenskrar ferðaþjónustu vegna COVID-19 sem ríkisstjórnin kynnti í dag.

    21. mar. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    1150 milljóna kr. innspýting í menningu, íþróttir og rannsóknir

    Mennta- og menningarmálaráðuneyti mun verja viðbótar 750 milljónum kr. í menningarverkefni og stuðning við starfsemi íþróttafélaga á næstu vikum, til að sporna við efnahagsáhrifum COVID-19 faraldursins.

    21. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19

    Viðspyrna fyrir Ísland - efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19

    Ríkið greiðir allt að 75% launa fólks næstu mánuði. ​Ríkisábyrgð á brúarlánum til fyrirtækja.

    21. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands, Samtaka fjármálafyrirtækja og Landssamtaka lífeyrissjóða um viðbrögð vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 10. mars sl. segir að stjórnvöld muni efna til virks samráðs við Samtök fjármálafyrirtækja um viðbrögð þeirra við fyrirsjáanlegum lausafjár- og greiðsluörðugleikum fyrirtækja í ferðaþjónustu. Síðan yfirlýsingin var gefin hefur útbreiðsla faraldursins verið hröð og fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla ráðstafana til að hefta hana. Þær aðgerðir hafa víðtæk áhrif á efnahagshorfur, allt atvinnulíf, heimili og einstaklinga.

    20. mar. 2020Menningarmál, Almannaöryggi, Covid-19, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Leiðbeinandi viðmið um íþrótta- og æskulýðsstarf og árétting sóttvarnalæknis varðandi íþróttir fullorðinna

    Vegna fjölda fyrirspurna hefur heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið tekið saman leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna.

    20. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Utanríkismál

    Þétta samstarfið til aðstoðar Norðurlandabúum að komast heim

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, átti í dag símafund með utanríkisráðherrum hinna Norðurlandanna til að ræða aðgerðir vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Ráðherrarnir lýstu sérstakri ánægju með samkomulag sem hefur tekist milli ríkjanna um enn frekara samstarf um borgaraþjónustu til að koma þeim Norðurlandabúum til aðstoðar sem eiga á hættu að verða strandaglópar, ekki síst í fjarlægari ríkjum.

    20. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Covid-19

    Réttur til greiðslu atvinnuleysisbóta vegna minnkaðs starfshlutfalls

    Rétt í þessu samþykkti Alþingi frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda.

    20. mar. 2020Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Breytingar á tryggingafé fyrir ferðaþjónustuaðila

    „Þetta er mikilvægt skref sem styður við ferðaþjónustuna á viðkvæmum tíma. Með breytingunni verður til svigrúm fyrir ferðaþjónustuaðila til að bregðast við fjárhagslegum áföllum í þessari óvissu sem nú er til staðar,“ segir ferðamálaráðherra.

    20. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19, Líf og heilsa

    Leiðbeinandi viðmið um íþrótta- og æskulýðsstarf í ljósi takmörkunar á skólastarfi og samkomum

    Vegna fjölda fyrirspurna hefur heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið tekið saman leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Leiðbeiningarnar eru eftirfarandi:

    20. mar. 2020Dómsmálaráðuneytið, Schengen-samstarfið, Landamæraeftirlit, Covid-19

    Reglugerð um takmarkanir fyrir ferðamenn utan Schengen

    Ráðherra kynnti í morgun í ríkisstjórn drög að reglugerð sem fyrirhugað er að gefa út í dag. Með henni verður útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, óheimilt að koma til landsins nema þeir geti sýnt fram á að för þeirra sé vegna brýnna erinda.

    20. mar. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Lín hækkar tekjuviðmið, eykur ívilnanir og framlengir umsóknarfrest vegna COVID-19

    Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneyti, ákveðið frekari aðgerðir til að létta á áhyggjum námsmanna og greiðenda af námslánum vegna hugsanlegra aðstæðna sem komið geta upp á meðan á COVID-19 faraldrinum stendur eða í kjölfar hans.

    20. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    Aukin áhersla á fjarheilbrigðisþjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands vinna að því að auðvelda sjúklingum aðgengi að heilbrigðisþjónustu við þær aðstæður sem nú ríkja með því að bjóða upp á fleiri þjónustuform. Þannig munu SÍ greiða veitendum fyrir fjarheilbrigðisþjónustu, þ.e. símtöl og myndsímtöl, þegar það hentar sjúklingi og þegar skilyrði um slíka þjónustu eru uppfyllt. Þetta á bæði við um þjónustu heilsugæslu og sérgreinalækna og ef til vill fleiri. Um þetta er fjallað í tilkynningu á vef Sjúkratrygginga Íslands.

    20. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Covid-19

    Áhrif COVID-19 á íslenskan landbúnað og sjávarútveg rædd í ríkisstjórn

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir áhrifum COVID-19 á íslenskan landbúnað og sjávarútveg. Þar kom fram að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fylgdist náið með þróun mála og að ráðuneytinu berist reglulegar upplýsingar frá m.a. Bændasamtökum Íslands og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Eindregin samstaða væri um að lágmarka efnahagslega neikvæð áhrif veirunnar bæði til skemmri og lengri tíma.

    19. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Forsætisráðherra átti símafund með forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti í dag símafund með Ursulu Von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, þar sem þær ræddu þróun mála á Íslandi og meginlandi Evrópu í tengslum við útbreiðslu Covid-19

    19. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Lyfjamál, Evrópusamvinna, Covid-19, Utanríkismál

    ESB nemur úr gildi útflutningsbann á lækningavörum til EFTA-ríkjanna

    Evrópusambandið hefur fallist á sjónarmið Íslands og annarra EFTA-ríkja innan EES og fallið frá útflutningsbanni til EFTA-ríkjanna á tilteknum hlífðarbúnaði sem notaður er í störfum heilbrigðisstarfsfólks og er nauðsynlegur í baráttunni við útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Bannið tekur þannig ekki til EFTA-ríkjanna innan EES, útflutningur á framangreindum búnaði verður því áfram heimill og þarfnast ekki sérstakra leyfa.

    19. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Svigrúm sveitarstjórna til að bregðast við neyðarástandi tryggt

    Lög um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, og auglýsing um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga, hafa verið birt í Stjórnartíðindum.

    18. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherrar vilja nýta styrkleika norræns samstarfs

    Samstarfsráðherrar Norðurlandanna hittust á fjarfundi í dag að ræða norrænt samstarf á tímum Covid-19.

    18. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 9/2020

    Hrafnagilsskóli óskaði eftir undanþágu frá takmörkun á skólastarfi í þremur liðum. Ráðuneytið samþykkti eina beiðni varðandi stærð bekkjar, hafnaði lið 2 og vísaði frá 3. lið.

    18. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 12/2020

    Myndlistaskólinn í Reykjavík sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna verklegs náms. Ráðuneytið hafnað beiðninni.

    18. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 11/2020

    Námsflokkar Reykjavíkur sóttu um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna viðkvæmra nemendahópa. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    18. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 13/2020

    Verkmenntaskólinn á Akureyri sótti um undanþágu frá takmörkunum vegna verklegra áfanga. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    • First
    • Prev
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband