Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 751–800 af 2360
    Raða eftir:
    16. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Viðræður um rafræn viðskipti við Singapúr

    Singapúr og aðildarríki EFTA hafa sammælst um að hefja viðræður að samkomulagi um rafræn viðskipti. Þetta var ákveðið á fjarfundi fulltrúa EFTA-ríkjanna og Singapúr í morgun.

    15. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál

    Efling fælingar og varna og aukinn stuðningur við Úkraínu

    Tveggja daga fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins lauk í Brussel í dag 15. febrúar. Meginefni fundarins voru stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og efling sameiginlegs viðbúnaðar og varna bandalagins.

    14. feb. 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Sendiráð Íslands í París, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Nýtt alþjóðlegt verkefni um kortlagningu aðgerða til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda á vettvangi OECD

    OECD hefur hleypt af stokkunum nýju alþjóðlegu verkefni um kortlagningu aðgerða til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda (IFCMA). Ísland, sem aðildarríki OECD, tekur þátt í IFCMA í gegnum fjármála- og efnahagsráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið og fastanefnd Íslands gagnvart OECD í París.

    03. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Úkraína, Dómsmálaráðuneytið

    Rússlandi vikið úr fjármálaaðgerðahópnum FATF

    Alþjóðlegur fjármálaaðgerðahópur ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (FATF) hefur ákveðið að víkja Rússlandi úr hópnum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Ákvörðunin var tekin á allsherjarfundi FATF sem lauk þann 24. febrúar sl. þegar ár var liðið frá upphafi innrásarinnar.

    31. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á Arctic Frontiers-ráðstefnunni

    Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsø í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra undirstrikaði hve skaðleg áhrif innrásin hefði haft á norðurslóðasamvinnu og ekki væri hægt að halda áfram eins og ekkert hefði í skorist.

    27. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    27. janúar helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar

    Ákveðið hefur verið að 27. janúar ár hvert verði á Íslandi helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar​ og þá verði vakin sérstök athygli á aðdraganda hennar og þeim hryllingi sem í henni fólst. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa sammælst um að hefja vinnu til þess að móta þær leiðir sem farnar verða í þessu augnamiði hér á landi.

    25. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Fyrsti fundur utanríkisráðherra Norðurlandanna undir formennsku Íslands

    Stuðningur við Úkraínu, norrænt samstarf og ástand og horfur á Vestur-Balkanskaga og í Afganistan voru helstu umræðuefnin á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlanda í dag. Fundur ráðherranna var sá fyrsti í yfirstandandi formennsku Íslands í norrænni samvinnu.

    24. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna fór fram í utanríkisráðuneytinu í dag. Þetta er í fjórða skipti sem árlegt samráð ríkjanna á sviði efnahagsmála er haldið en það var formlega sett á fót árið 2019. Samráðið hefur reynst mikilvægur vettvangur til að taka upp mál sem varða hagsmuni Íslands og vekja athygli á hindrunum í vegi fyrirtækja og fjárfesta ásamt því að vera góður vettvangur til að skiptast á upplýsingum, skilgreina sameiginlega hagsmuni og efla enn frekar tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta- og efnahagsmála.

    20. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við Úkraínu

    Ísland mun veita tveimur milljónum punda, eða rúmlega 360 milljónum króna, í sérstakan stuðningssjóð fyrir Úkraínu (International Fund for Ukraine) sem bresk stjórnvöld settu á laggirnar á síðasta ári.Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti um þetta á fundi ríkjahóps sem styður varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) sem haldinn var í Ramstein í Þýskalandi í dag.

    19. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherra kynnti áherslur Íslands í Evrópuráðinu fyrir fastafulltrúum ÖSE

    Staða Evrópu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og mikilvægi þess að Evrópuráðið og ÖSE standi vörð um lýðræðislegar stofnanir, alþjóðalög og mannréttindi voru í brennidepli í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á fundi fastafulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vín í dag.

    13. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland veitir viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar

    Í ljósi bágs mannúðarástands víða um heim ákvað Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra að veita 250 milljón króna viðbótarframlag til alþjóðlegrar mannúðaraðstoðar um áramótin.

    12. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ráðherrafundi ÖSE í breyttu öryggislandslagi í Evrópu

    Utanríkisráðherra sótti ráðherrafund Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Skopje, höfuðborg Norður-Makedóníu, sem hófst á óformlegum kvöldverðarfundi ráðherra þann 29. nóvember en formleg dagskrá stendur yfir frá 30. nóvember til 1. desember. Efst á baugi voru innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og örðugleikar í starfi ÖSE vegna ósamvinnuþýðra stjórnvalda í Rússlandi og Belarús.

    12. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Sjávarútvegur, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Aukin tækifæri til útflutnings sjávarafurða með nýju samkomulagi við ESB

    Í gær lauk samningaviðræðum milli EFTA-ríkjanna innan EES (Íslands, Noregs og Liechtenstein) og Evrópusambandsins (ESB) um framlög til Uppbyggingarsjóðs EES fyrir tímabilið 1. maí 2021 til 30. apríl 2028. Samningaviðræður hafa staðið yfir frá júní 2022. Samhliða þeim hafa farið fram viðræður um endurnýjun samnings um tollfrjálsa innflutningskvóta fyrir sjávarafurðir frá Íslandi inn á markað ESB.

    11. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Utanríkismál

    Um hundrað öryggis- og hermálafulltrúar ræddu kynjajafnrétti á Barbershop viðburði

    Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hvatti í opnunarávarpi á Barbershop rakararáðstefnu hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu í gær til áframhaldandi áherslu á kynjajafnrétti í störfum ÖSE. Hann sagði að með þrautseigju myndi skilningur aukast og tækifæri skapast fyrir konur til að stíga af meiri festu inn á svið öryggis- og varnarmála í álfunni. Fastanefnd Íslands hjá ÖSE efndi til ráðstefnunnar í samstarfi við fastanefndir Bandaríkjanna, Belgíu, Finnlands, Kanada, Noregs, Svíþjóðar og Þýskalands.

    08. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Aukin viðvera Íslands í Kænugarði

    Utanríkisráðuneyti Íslands og Litáens hafa gert með sér samkomulag um að íslenskir stjórnarerindrekar fái vinnuaðstöðu í sendiráði Litáens í Kænugarði. Íslensk stjórnvöld áforma að auka viðveru í Úkraínu og sýna úkraínsku þjóðinni þannig samstöðu á tímum ólögmæts innrásarstríðs Rússlands.

    08. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu lögð niður

    Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu verður lögð niður frá og með deginum í dag, 1. ágúst. Fyrirsvar gagnvart Rússlandi og öðrum umdæmisríkjum sendiráðsins færist þar með til utanríkisráðuneytisins.

    06. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins lokið

    Undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Vilníus í júlí og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu voru helstu umfjöllunarefnin á óformlegum utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Ósló.

    06. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Brexit, Utanríkisviðskipti, Fjarskipti

    Samkomulag við Bretland um reikigjöld á fjarskiptaþjónustu

    Samkomulag Íslands og Bretlands um hámarks heildsöluverð alþjóðlegrar reikiþjónustu tekur gildi í dag, 1. júní.

    06. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Herstjórnarmiðstöð JEF á Íslandi

    Sameiginlega viðbragðssveitin (Joint Expeditionary Force, JEF) sem Bretar leiða ásamt Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og Hollandi setur í æfingaskyni upp færanlega herstjórnarmiðstöð á öryggissvæðinu í Keflavík í júní.

    02. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur við Bretland gengur formlega í gildi

    Fríverslunarsamningur Íslands og Bretlands gengur formlega í gildi í dag, 1. febrúar. Sem kunnugt er var hafist handa við gerð hans á árinu 2020 vegna útgöngu Bretlands úr ESB og þar með EES-samningnum.

    29. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Lög og réttur

    Gildistaka samninga um afmörkun landgrunnsins í Síldarsmugunni

    Tveir samningar um afmörkun landgrunnsins í Síldarsmugunni svonefndu öðluðust gildi fyrr í þessum mánuði. Samningarnir eru annars vegar við Noreg og við Danmörku fyrir hönd Færeyja hins vegar og taka til landgrunnsins handan 200 mílna lögsögumarkanna milli Færeyja, Íslands, meginlands Noregs og Jan Mayen.

    21. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áfrýjunarnefnd EUIPO fellst á allar kröfur Íslands

    Áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur hafnað öllum kröfum bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods Ltd. varðandi notkun á orðmerkinu Iceland. Fyrirtækið getur ekki lengur hindrað að íslensk fyrirtæki auðkenni sig með upprunalandinu við markaðssetningu á EES-svæðinu á vörum sínum og þjónustu.

    13. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Kanada funduðu

    Innrás Rússlands í Úkraínu og áframhaldandi stuðningur Norðurlandanna og Kanada við Úkraínu, samstarf á norðurslóðum og málefni Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fjarfundi ríkjanna í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    13. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Viðbótarframlag til Úkraínu vegna vetrarkulda

    Ísland leggur þrjár milljónir bandaríkjadala í alþjóðlega sjóði sem hafa það að markmiði að styðja Úkraínu við að takast á við yfirvofandi vetrarhörkur. Tilkynnt var um framlagið á ráðstefnu í París í dag.

    12. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Níu tonn af hlýju frá Íslandi til Úkraínu

    Níu tonn af hlýju frá Íslandi voru um borð í kanadískri herflutningavél sem flaug frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Úkraínu í dag. Um að ræða vetrarútbúnað fyrir varnarsveitir Úkraínu og almenning sem er annars vegar afrakstur sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga og hins vegar kaup utanríkisráðuneytisins á margvíslegum vetrarbúnaði.

    11. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Mannréttindi og jafnrétti

    Farið fram á aukafund í mannréttindaráðinu vegna Írans

    Ísland og Þýskaland óskuðu í gær eftir að haldinn verði aukafundur mannréttindráðs Sameinuðu þjóðanna til að fjalla um ástand mannréttindamála í Íran. Fundinn skal halda svo fljótt sem hægt er og að teknu tilliti til þéttrar dagskrár ráðsins má reikna með honum innan tveggja vikna. ​

    10. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkismál

    Undirritun tvísköttunarsamnings við Ástralíu

    Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Ástralíu var undirritaður í utanríkisráðuneytinu í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Kerin Ann Burns Ayyalaraju sendiherra Ástralíu gagnvart Íslandi undirrituðu samninginn.

    10. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Almannaöryggi, Utanríkismál, Úkraína, Dómsmálaráðuneytið

    Fulltrúar ÖSE funda með íslenskum stjórnvöldum vegna baráttu gegn mansali

    Valiant Richey, sérstakur fulltrúi mansalsmála Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) og sérfræðingar frá mansalsdeild stofnunarinnar funduðu fyrr í vikunni með íslenskum stjórnvöldum og þeim sem koma að baráttu gegn mansali hér á landi.

    08. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Nýr aðstoðarmaður utanríkisráðherra

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Ingu Hrefnu Sveinbjarnardóttur í stöðu aðstoðarmanns ráðherra.

    05. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Nýju Delhi, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherrar Íslands og Indlands funduðu í tilefni af hálfrar aldar stjórnmálasambandi

    Aukið tvíhliða samstarf Íslands og Indlands á fjölmörgum sviðum, m.a. í nýtingu endurnýjanlegrar orku, sjávarútvegi, menningu og menntun, og afleiðingar stríðsins í Úkraínu voru á meðal umræðuefna á fjarfundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og dr. S. Jaishankar utanríkisráðherra Indlands í dag. Fundurinn var haldinn í tilefni af tilefni af 50 ára afmæli stjórnmálasambands ríkjanna.

    04. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fulltrúar bandaríska sjóhersins og Atlantshafsbandalagsins funduðu með utanríkisráðherra

    Utanríkisráðherra fundaði í dag með Eugene Black aðmírál 6. flota bandaríska sjóhersins og Daniel W. Dwyer, yfirmanni herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk. Black er stjórnandi varnaræfingarinnar Norður-Víkings sem nú stendur yfir en Dwyer er þátttakandi í henni sem fulltrúi Atlantshafsbandalagsins.

    30. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Sendiskrifstofa

    Atlantshafsbandalagið áréttaði stuðning við Úkraínu

    Stuðningur bandalagsríkja við Úkraínu vegna innrásar Rússlands var í brennidepli utanríkisráðherrafundar Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti á fundinum um aukið framlag Íslands til kaupa á búnaði fyrir varnarsveitir Úkraínu.

    30. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Sendiskrifstofa

    Atlantshafsbandalagið áréttaði stuðning við Úkraínu

    Stuðningur bandalagsríkja við Úkraínu vegna innrásar Rússlands var í brennidepli utanríkisráðherrafundar Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti á fundinum um aukið framlag Íslands til kaupa á búnaði fyrir varnarsveitir Úkraínu.

    30. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Sendiskrifstofa

    Atlantshafsbandalagið áréttaði stuðning við Úkraínu

    Stuðningur bandalagsríkja við Úkraínu vegna innrásar Rússlands var í brennidepli utanríkisráðherrafundar Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti á fundinum um aukið framlag Íslands til kaupa á búnaði fyrir varnarsveitir Úkraínu.

    28. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Kænugarði

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti Kænugarð í Úkraníu í dag ásamt utanríkisráðherrum frá öðrum Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum. Í heimsókninni áttu ráðherrarnir fundi með úkraínskum ráðamönnum, þar á meðal Volodomir Selenskí forseta, Denys Shmyhal forsætisráðherra, Olgu Stefanishynu aðstoðarforsætisráðherra og Dmytro Kuleba utanríkisráðherra. Á fundunum var ástandið í Úkraínu rætt og kölluðu stjórnvöld eftir áframhaldandi stuðningi.

    25. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Fundir Evrópuráðsþingsins í Reykjavík

    Mikilvægi samstöðu Evrópuríkja um lýðræði, mannréttindi og réttarríkið ásamt formennskuáherslum Íslands á réttindi barna og ungenna, jafnrétti og umhverfismál voru í brennidepli í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og forseta ráðherranefndar Evrópuráðsins, hjá stjórnarnefnd Evrópuráðsþingsins í Hörpu í dag.

    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menntamál, Neytendamál, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Viðskipti, Menningarmál

    Fundaði með viðskiptaráðherra Suður-Kóreu

    Aukin viðskipti og efnahagsleg samvinna milli Íslands og Suður Kóreu var á meðal umræðuefna Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra með Ahn Duk-geun viðskiptaráðherra Suður-Kóreu í Seúl. Samningar á sviði tvísköttunar og fríverslunar eru í gildi milli landanna en árið 2020 nam umfang inn- og útflutnings milli Íslands og Suður-Kóreu um 8 milljörðum króna. Suður kóresk fyrirtæki hafa fjárfest í íslenskum fyrirtækjum á umliðnum árum, má þar nefna kaup Kóreubúa á tölvuleikjafyrirtækinu CCP árið 2018 fyrir um 46 milljarða íslenskra króna.

    22. nóv. 2022Utanríkismál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók á móti forsætisráðherra Finnlands

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag á móti Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, sem er í vinnuheimsókn á Íslandi. Ráðherrarnir áttu fyrst tvíhliða fund og ræddu svo um áskoranir og tækifæri samtímans í hádegisspjalli.

    22. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Lilja leiðir viðskiptasendinefnd til Suður Kóreu

    Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra fer fyrir íslenskri viðskiptasendinefnd til Suður Kóreu þar sem sérstök áhersla er lögð á menningu og skapandi greinar. Tilefni ferðarinnar er að í ár fagna Ísland og Suður Kórea 60 ára stjórnmálasambandi milli landanna en löndin tóku upp formlegt stjórnmálasamband þann 10. október 1962. Var þessum tímamótum meðal annars fagnað fyrr í haust þegar að sérstök sendinefnd á vegum Suður Kóreskra stjórnvalda heimsótti Ísland.

    21. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Sendiráð Íslands í Varsjá tekur til starfa 1. desember

    Sendiráð Íslands í Varsjá í Póllandi tekur til starfa 1. desember næstkomandi. Fyrirsvar vegna Litáen Úkraínu og Belarús verður við það tækifæri fært til hinnar nýju sendiskrifstofu. Hannes Heimisson verður fyrsti sendiherra Íslands í Póllandi.

    15. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Utanríkismál, Heimsmarkmiðin, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Matvælaráðherra flutti yfirlýsingu Íslands á COP27

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, flutti í dag yfirlýsingu Íslands á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP27. Þingið er haldið í Sharm El Sheikh í Egyptalandi.

    11. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastýru UN Women

    Samstarf Íslands og UN Women, jafnréttisáherslur Íslands í formennsku í Evrópuráðinu og staða kvenna í Íran og Afganistan voru helstu umfjöllunarefnin á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Sima Bahous, framkvæmdastýru Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) í gær. Sú síðarnefnda er stödd hér á landi til þess að taka þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga en ráðherra ávarpaði þingið einnig í vikunni.

    11. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar JEF ræða öryggisáskoranir

    Varnamálaráðherrar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) funduðu í Edinborg dagana 9. – 10. nóvember. Ráðherrarnir ræddu öryggisástandið í Evrópu, stuðning ríkjanna við Úkraínu og hvernig þau geta í sameiningu mætt nýjum öryggisáskorunum til framtíðar.

    10. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ljósmyndasýning um barnungar mæður í þróunarríkjum

    Í dag var ljósmyndasýning Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) um barnungar mæður í þróunarríkjum opnuð í Smáralind. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra opnaði sýninguna og flutti ávarp.

    10. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Tókýó, Utanríkismál

    Ísland og Suður-Kórea fagna sextíu ára stjórnmálasambandi

    Ísland og Suður-Kórea halda þessa dagana upp á sextíu ára stjórnmálasambandsafmæli. Löndin tóku upp formlegt stjórnmálasamband þann 10. október 1962. Af því tilefni sækir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra menningardagskrá í Hörpu í dag sem sendiráð Suður-Kóreu í Osló stendur fyrir ásamt samstarfsaðilum á Íslandi. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Yun Seok-yeol, forseti Suður-Kóreu, skiptust á árnaðaróskum í tilefni afmælisins í gær. Gott samstarf og vinátta þjóðanna var forsetunum ofarlega í huga í bréfum sínum.

    08. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland hefur frumkvæði að sprengjueyðingarverkefni í Úkraínu

    Ísland stendur ásamt hinum norrænu ríkjunum fyrir verkefni sem er fyrirhugað á sviði þjálfunar í sprengjuleit og sprengjueyðingu í Úkraínu. Líklegt er að fleiri lönd muni taka þátt í verkefninu þegar fram í sækir. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kynnti verkefnatillögu þess efnis á ráðstefnu um stuðning við öryggi og varnir Úkraínu í Kaupmannahöfn í dag.

    04. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 í Hvalfirði

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 náði hápunkti í dag með æfingu landgönguliða í Hvalfirði. Fjölmenni fylgdist með æfingunni, þar á meðal fulltrúar ríkisstjórnarinnar og yfirmenn í herafla Bandaríkjanna.

    04. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á fundi utanríkisráðherra ESB

    Utanríkisráðherrar Íslands og Noregs voru sérstakir gestir á fundi utanríkisráðherraráðs Evrópusambandsins í Lúxemborg í dag og áttu auk þess tvíhliða fund með Josep Borrell, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins.

    28. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Íslenskir hjálparstarfsmenn til aðstoðar í Pakistan

    Tveir íslenskir hjálparstarfsmenn, Ólafur Loftsson og Orri Gunnarson, taka nú þátt í vatnshreinsiverkefni í Pakistan á vegum almannavarna Norðurlanda en kröftugar rigningar undanfarna mánuði hafa valdið þar einhverjum mestu flóðum í manna minnum. Hátt í tíu milljón manns hafa hrakist á flótta og hátt í tvö þúsund farist.

    25. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Kvenkyns utanríkisráðherrar funduðu um stöðu kvenna og mannréttinda í Íran

    Alvarleg mannréttindabrot í Íran, ekki síst gegn konum og börnum, voru í brennidepli á fjarfundi sextán kvenkyns utanríkisráðherra sem fram fór á dögunum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn sem haldinn var að frumkvæði Mélanie Joly, utanríkisráðherra Kanada. Í kjölfar fundarins gáfu ráðherrarnir út sameiginlega yfirlýsingu þar sem ofbeldi stjórnvalda í Íran er fordæmt, kallað er eftir sjálfstæðri rannsókn á vegum Sameinuðu þjóðanna og stuðningi heitið við konur í Íran.

    • First
    • Prev
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband