28. sep. 2016Rit og skýrslur, Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið
Stuðlað að því að mannréttindasjónarmiða gæti við stefnumótun og lagasetningu
<p>Með bréfi 28. maí 2015 til forseta Alþingis tilkynnti Ólöf Nordal innanríkisráðherra um þá fyrirætlun sína að leggja fyrir Alþingi skýrslu um mannréttindi og um aukna samvinnu ráðuneytisins og Alþingis til að tryggja bætta upplýsingagjöf til þingsins um málefnasviðið. Mannréttindasjónarmiða gætir með margvíslegum hætti í flestum verkefnum hins opinbera, líkt og sjónarmiða um jafnrétti, og eru mannréttindi án vafa eitt af stærstu viðfangsefnum nútímans.</p>