Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 801–850 af 3353
    Raða eftir:
    19. apr. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1138/2023. Úrskurður frá 5. apríl 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum úr viðtölum sem tengiliður vistheimila hefði aflað í starfi sínu fyrir dómsmálaráðuneytið. Ráðuneytið synjaði fyrirspurnum kæranda með vísan til þess að ráðuneytinu væri ófært að svara þeim án þess að veittar væru upplýsingar um einkamálefni sem sanngjarnt sé og eðlilegt að leynt fari og falli undir 9. gr. upplýsingalaga, en veitti þó upplýsingar um fjórðu spurningu kæranda að því er varðaði vistheimilið Breiðavík. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að hægt væri að útloka fyrir fram að lögmætt væri að afhenda einhver þeirra gagna, eða hluta þeirra, sem innihéldu þær upplýsingar sem falla kynnu undir beiðni kæranda.…

    19. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Upplýsingar um götulokanir vegna leiðtogafundar

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Hörpu dagana 16. og 17. maí næstkomandi. Um 40 leiðtogar hafa boðað komu sína og ljóst að umfang á öryggisráðstöfunum verður mikið. Svæðið í kringum Hörpu og í Kvosinni verður lokað fyrir umferð almennra ökutækja, nema viðbragðsaðila, frá kl. 23 mánudaginn 15. maí til kl. 18 miðvikudaginn 17. maí. Mynd af lokunarsvæðinu má finna hér neðar í fréttinni.

    19. apr. 2023Sjálfbært Ísland, Forsætisráðuneytið

    Drög að grænbók um sjálfbært Ísland til kynningar í Samráðsgátt

    Drög að grænbók um sjálfbært Ísland hafa verið birt í Samráðsgátt. Um er að ræða fyrsta skrefið í mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun.

    19. apr. 2023Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Áætlun um fjárfestingu í heilbrigði þjóðarinnar

    Heildstæð áætlun um uppbyggingu innviða heilbrigðiskerfisins til ársins 2030 var kynnt af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra í dag. Farið var yfir stöðu Landspítalaverkefnisins og metnaðarfulla áætlun um áframhaldandi fjárfestingu í innviðum heilbrigðiskerfisins.

    18. apr. 2023Forsætisráðuneytið

    Atli Viðar Thorstensen ráðinn samhæfingarstjóri í móttöku flóttafólks

    Atli Viðar Thorstensen hefur verið ráðinn í starf samhæfingarstjóra í móttöku flóttafólks hjá forsætisráðuneytinu. Starfið var auglýst í mars sl. og voru umsækjendur 16 talsins.

    18. apr. 2023Forsætisráðuneytið

    Daníel Svavarsson nýr skrifstofustjóri á skrifstofu samhæfingar og stefnumála

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Daníel Svavarsson skrifstofustjóra á skrifstofu samhæfingar og stefnumála í forsætisráðuneytinu. Daníel mun flytjast úr embætti skrifstofustjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu á grundvelli heimildar í lögum um Stjórnarráð Íslands og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

    14. apr. 2023Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Tímarannsókn til að meta umfang ólaunaðra heimilis- og umönnunarstarfa

    Vinnuhópur um undirbúning að rannsókn á ólaunuðum heimilis- og umönnunarstörfum, sem stundum nefnast önnur og þriðja vaktin, hefur gert tillögu að tímarannsókn. Markmið rannsóknarinnar er að fanga umfang þessara starfa.

    14. apr. 2023Sjálfbært Ísland, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra býður til samtals um sjálfbært Ísland

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býður á næstu vikum til opinna samráðsfunda um landið þar sem rætt verður um sjálfbæra þróun á Íslandi. Á fundunum verður fjallað um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara.

    10. apr. 2023Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Friðarráðstefna í Reykjavík: Norræn samstaða um frið

    Framtíðarsýn Norðurlanda í friðarmálum er umfjöllunarefni friðarráðstefnu sem fram fer 10.-11. október nk. í Hörpu. Ráðstefnan er hluti af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Yfirskrift íslensku formennskunnar er „Norðurlönd – afl til friðar“.

    07. apr. 2023Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Styrkur veittur til framleiðslu sjónvarpsþáttaraðar um Vigdísi Finnbogadóttur

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, um að veita leikhópnum Vesturporti fimm milljóna króna styrk vegna framleiðslu á leikinni sjónvarpsþáttaröð um Vigdísi Finnbogadóttur.

    07. apr. 2023Rit og skýrslur, Sjálfbært Ísland, Forsætisráðuneytið

    Grænbók um sjálfbært Ísland - Stöðumat og valkostir

    júlí 2023 / Forsætisráðuneytið Grænbók um sjálfbært Ísland - Stöðumat og valkostir Grænbók um sjálfbært Ísland - Stöðumat og valkostir

    30. mar. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flutti ávarp á ársfundi Seðlabankans

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands sem fram fór í Hörpu í dag.

    29. mar. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði leiðtogafund Bandaríkjaforseta um lýðræði

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp á leiðtogafundi Joe Biden Bandaríkjaforseta um lýðræði, Summit for Democracy, sem fram fór með rafrænum hætti í dag. Fundurinn er liður í alþjóðlegu lýðræðisátaki sem hófst með leiðtogafundi í desember 2021.

    23. mar. 2023Forsætisráðuneytið

    Samhæfingarteymi um móttöku flóttafólks sett á laggirnar

    Forsætisráðuneytið hefur sett á laggirnar samhæfingarteymi um móttöku flóttafólks. Meginverkefni þess verður að efla samhæfingu og yfirsýn yfir helstu verkefni og áskoranir í málaflokknum, þvert á ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög. Gert er ráð fyrir að teymið starfi í þrjú ár.

    23. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Neytendasamtökin studd til að sinna auknu neytendaeftirliti

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum að veita Neytendasamtökunum þriggja milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu í tilefni af 70 ára afmæli samtakanna sem fagnað er í dag. Markmið styrksins er að styðja við mikilvæg verkefni sem framundan eru hjá Neytendasamtökunum og má þar nefna úttekt þeirra á tryggingamarkaði á Íslandi og réttindum neytenda þegar kemur að tryggingamálum.

    22. mar. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flutti ávarp á málþingi um fjöltyngi

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag rafrænt ávarp við opnun alþjóðlegs málþings um fjöltyngi sem fram fer í Strassborg. Málþingið sem haldið er undir verndarvæng Mariju Burić, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, er haldið af ECSPM sem eru frjáls félagasamtök um fjöltyngi.

    15. mar. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Evrópuráðið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Oddný Mjöll Arnardóttir sver embættiseið

    Oddný Mjöll Arnardóttir mun formlega taka við embætti dómara við Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg í Frakklandi í dag.

    14. mar. 2023Úkraína, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra heimsóttu Úkraínu og funduðu með Volodomyr Zelensky

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, áttu fund með forseta Úkraínu, Volodomyr Zelensky, í Kænugarði í dag. Á fundinum ræddu þau stöðuna í Úkraínu, stuðning Íslands við Úkraínu og væntanlegan leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík í maí en þar verða málefni Úkraínu í brennidepli.

    13. mar. 2023Úkraína, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra heimsækja Kænugarð

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, heimsækja Kænugarð í Úkraínu á morgun, þriðjudaginn 14. mars. Markmið heimsóknar ráðherranna er að sýna úkraínsku þjóðinni og stjórnvöldum samstöðu og ræða áframhaldandi stuðning Íslands við Úkraínu.

    12. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1162/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að samningum sem Happdrætti Háskóla Íslands hefði gert um rekstur á happdrættisvélum. Synjun Happdrættis Háskóla Íslands var byggð á 2. málsl. 9. gr. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi að samningarnir teldust ekki varða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni viðsemjenda Happdrættis Háskóla Íslands og að 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga stæði aðgangi kæranda þannig ekki í vegi. Þá taldi nefndin að jafnvel þótt gögnin vörðuðu að einhverju leyti samkeppnisrekstur Happdrættis Háskóla Íslands fælu þau ekki í sér upplýsingar sem væru til þess fallnar að valda Happdrætti Háskóla Íslands tjóni ef veittur yrði aðgangur að þeim. Var Happdrætti Háskóla Íslands því gert skylt að afhenda kæranda samningana.

    12. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1161/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Málið varðaði beiðni til ríkislögreglustjóra um gögn sem vörðuðu brottvísun umbjóðanda beiðandans. Ríkislögreglustjóri taldi umboð beiðanda ekki vera gilt og leit því svo á að réttur hans færi samkvæmt 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, um upplýsingarétt almennings. Úrskurðarnefndin taldi að það umboð sem lægi fyrir í málinu skyldi teljast gilt og að ríkislögreglustjóra hefði borið að afgreiða beiðni beiðanda líkt og hún hefði komið frá umbjóðanda hans. Á hinn bóginn væri til þess að líta að ákvörðun um brottvísun teldist ákvörðun um rétt eða skyldu, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga giltu lögin ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál

    12. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1160/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók að nýju upp mál nefndarinnar sem lyktaði með úrskurðum nr. 935/2020, 1009/2021 og 1020/2021. Í málunum komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ríkisskattstjóra væri óheimilt að afhenda upplýsingar um hlutafjáreign úr gögnum sem tengjast skráningu raunverulegra eigenda, sbr. lög nr. 82/2019. Kærandi í framangreindum þremur málum vísaði til þess að upplýsingar um hlutafjáreign fólks væru ekki viðkvæmar og að hann teldi túlkun nefndarinnar á 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, vera ranga. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að í nóvember 2022 hefði Evrópudómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að 30. gr.…

    12. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1159/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Deilt var um rétt kæranda, sem er blaðamaður, til aðgangs að upplýsingum um tollskrárnúmer farms og eðli farmsins um borð í tilteknu flugi flugfélagsins Ukraine Air Alliance, sem lenti á Keflavíkurflugvelli í lok júlí 2023. Synjun Skattsins byggðist á því að upplýsingarnar væru undirorpnar sérstakri þagnarskyldu, sbr. 188. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og því væri Skattinum óheimilt að afhenda kæranda gögn sem innihaldi upplýsingarnar. Úrskurðarnefndin rakti að nefndin hefði slegið því föstu að ákvæðið væri sérstakt þagnarskylduákvæði að því er varðaði upplýsingar um viðskipti einstakra manna og fyrirtækja. Nefndin taldi að þau gögn sem óskað væri aðgangs að innihéldu slíkar upplýsingar. Því var ákvörðun Skattsins staðfest.

    12. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1158/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Kærðar voru til úrskurðarnefndarinnar tafir á afgreiðslu landlæknis á beiðni um gögn, en beiðninni hafði verið vísað til embættisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu með úrskurði nefndarinnar nr. 1088/2022. Beiðnin hljóðaði á um aðgang að nánar tilgreindum og sundurliðuðum upplýsingum um spítalainnlagnir og legudaga vegna COVID-19-sjúkdómsins, inflúensu og aukaverkana bólusetninga á tilteknu tímabili. Landlæknir tók fram að ekki stæði til að synja beiðni kæranda heldur væri beðið eftir samþykki fyrir því að fá að samkeyra heilbrigðisskrár embættisins til að unnt væri að afgreiða beiðnina. Þar sem ekki lægi fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    12. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1157/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Deilt var um rétt til aðgangs að tillögum að fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2023 og framkvæmdaáætlun fyrir árin 2023–2033 sem voru til umræðu á fundi bæjarstjórnar í nóvember 2022. Af hálfu Ísafjarðarbæjar var aðallega vísað til þess að gögnin teldust til vinnugagna í skilningi upplýsingalaga og því væri heimilt að undanþiggja þau upplýsingarétti almennings. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin uppfylltu skilyrði þess að teljast vinnugögn í skilningi 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, en að hluti þeirra innihéldi upplýsingar um atvik máls sem ekki væri að finna annars staðar, sbr. 3. tölul. 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga. Sveitarfélagið vísaði til þess að upplýsingarnar skyldu vera undanþegnar aðgangi kæranda samkvæmt bæði 9. gr. og 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga.…

    12. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1156/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Sýn hf. óskaði eftir því að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp að nýju mál sem lauk með úrskurði nefndarinnar nr. 1086/2022. Í úrskurðinum var lagt til grundvallar að gögn úr botnrannsókn sem Farice ehf. hefði annast við strendur Íslands árið 2021 teldust ekki vera fyrirliggjandi hjá fjarskiptasjóði. Úrskurðarnefndin lagði þann skilning í endurupptökubeiðni að beiðandi teldi að nefndin hefði ekki átt að leggja til grundvallar að gögn úr botnrannsókn við strendur Íslands teldust ekki fyrirliggjandi hjá fjarskiptasjóði, þar sem nánast öruggt mætti telja að rannsóknin hefði verið greidd úr ríkissjóði en ekki af Farice.…

    10. mar. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Styrkveitingar til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

    Forsætisráðuneytið auglýsir styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála til eins árs í senn. Umsóknarfrestur er til miðnættis 16. október 2023.

    05. mar. 2023Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með Volodymyr Zelensky

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti í dag tvíhliða fund með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, í Helsinki. Fundur þeirra fór fram í kjölfar norræns leiðtogafundar þar sem forseti Úkraínu var gestur.

    05. mar. 2023Norrænt samstarf, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi Norðurlandanna með forseta Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, sem fram fór í Helsinki.

    05. mar. 2023Norrænt samstarf, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogafundur Norðurlandanna með forseta Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, í Helsinki í dag.

    03. mar. 2023Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Mat á frammistöðu Seðlabanka Íslands 2020-2022

    mars 2023 / Forsætisráðuneytið Mat á frammistöðu Seðlabanka Íslands 2020-2022 Mat á frammistöðu Seðlabanka Íslands 2020-2022

    03. mar. 2023Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Síðasti fundur Vísinda- og tækniráðs í núverandi mynd

    Vísinda- og tækniráð kom saman til fundar í Ráðherrabústaðnum í dag en þetta var síðasti fundur ráðsins í núverandi mynd. Hlutverki og heiti ráðsins var breytt með lögum sem taka gildi 1. apríl nk.

    02. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Forseti Kósovó í heimsókn á Íslandi

    Formennska Íslands í Evrópuráðinu, tvíhliðasamskipti og staða friðarviðræðna milli Serbíu og Kósovó voru efst á baugi á fundum Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Vjosa Osmani, forseta Kósovó, sem fram fóru hér á landi í gær.

    28. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Síðasta eftirfylgni með innviðaátaki stjórnvalda

    Þriðju og síðustu eftirfylgni innviðaátaks stjórnvalda í kjölfar óveðursins sem geisaði í desember 2019 er nú lokið. Vinnu við um 70% skammtímaaðgerða var að fullu lokið í lok árs 2022 og vinna hafin við þær allar. Þá er vinna hafin við 95% langtímaaðgerða og um 40% þeirra lokið eða þær komnar vel á veg.

    24. feb. 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Sjálfbært Ísland, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið

    Vinnufundir með loftslagssérfræðingum: Hvernig setja má loftslagsmálin á dagskrá?

    Bresku loftslagssérfræðingarnir Mike Berners-Lee og George Marshall héldu síðustu viku fyrirlestur fyrir hóp sérfræðinga sem vinnur að því að framfylgja loftslagsmarkmiðum stjórnvalda og móta stefnu um Sjálfbært Ísland.

    24. feb. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Samantekt frá öðrum fundi samráðsvettvangs um jafnréttismál – Jafnréttisráðs

    Samantekt frá öðrum fundi samráðsvettvangs um jafnréttismál – Jafnréttisráðs hefur verið birt. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðaði til annars fundar samráðsvettvangsins þann 5. desember 2022.

    24. feb. 2023Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlanda vegna stríðsins í Úkraínu

    Forsætisráðherrar Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu vegna stríðsins í Úkraínu en í dag er ár liðið frá því að innrás Rússlands hófst.

    23. feb. 2023Utanríkismál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing forsætisráðherra á Alþingi um stríðið í Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag á Alþingi sérstaka yfirlýsingu af því tilefni að á morgun, 24. febrúar, verður ár liðið frá innrás Rússlands í Úkraínu.

    22. feb. 2023Sendiráð Íslands í París, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flutti ávarp á ráðstefnu UNESCO

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti myndbandsávarp í dag við opnun ráðstefnunnar Internet for Trust. Ráðstefnan er á vegum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, sem fer fram í París dagana 21.-23. febrúar.

    17. feb. 2023Forsætisráðuneytið

    Starfshópur metur stöðu embættismanna og starfsskilyrði starfsmanna ríkisins

    Á fundi ríkisstjórnarinnar þann 31. janúar sl. var ákveðið að koma á fót starfshópi sem leggi mat á stöðu embættismannakerfisins á Íslandi og starfsskilyrði starfsmanna ríkisins með hliðsjón af stöðu og þróun í nágrannalöndum.

    16. feb. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið veitir Samtökunum ´78 aukinn fjárstyrk

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Álfur Birkir Bjarnason, formaður Samtakanna ´78, skrifuðu í dag undir samning um áframhaldandi stuðning við starfsemi samtakanna.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1127/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Blaðamaður kærði synjun Barna- og fjölskyldustofu á beiðni hans um gögn sex meðferðarheimila. Synjunin byggði á því að afgreiðsla beiðninnar tæki svo mikinn tíma og krefðist svo mikillar vinnu að ekki væri af þeim sökum fært að verða við henni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, enda þyrfti að yfirfara gögnin og afmá viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að í ljósi umfangs beiðninnar og viðkvæms eðlis gagnanna ætti undantekning 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga við í málinu og staðfesti ákvörðun Barna- og fjölskyldustofu.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1126/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Kærð var ákvörðun ríkislögreglustjóra um að synja kæranda um aðgang að gögnum. Meðan málið var til meðferðar hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál lést kærandi. Nefndin taldi að réttur kæranda til aðgangs að umbeðnum gögnum teldist varða persónubundin réttindi hans með þeim hætti að dánarbú hans eða erfingjar gætu ekki átt lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins á sama grundvelli og kærandi. Af þeim sökum var óhjákvæmilegt að vísa málinu frá úrskurðarnefndinni.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1125/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Kærð var synjun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. á beiðni um aðgang að niðurstöðu úttektar mannauðsráðgjafa. Synjun félagsins var byggð á því að um vinnugagn væri að ræða í skilningi 8. gr. upplýsingalaga, sbr. 5. tölul. 6. gr. laganna, auk þess sem umbeðin gögn vörðuðu málefni starfsmanna, sem undanþegin væru upplýsingarétti almennings á grundvelli 7. gr. laganna. Úrskurðarnefndin taldi úttektina ekki uppfylla skilyrði upplýsingalaga fyrir því að teljast vinnugagn, þar sem hún var unnin af utanaðkomandi fyrirtæki. Þá taldi nefndin að takmörkunarákvæði 7. gr. upplýsingalaga gæti ekki átt við um skjalið í heild. Var ákvörðunin því felld úr gildi og lagt fyrir félagið að taka beiðnina til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1124/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að tölfræðiupplýsingum hjá utanríkisráðuneyti í tengslum við breytingar á reglugerð um vegabréf. Þar sem fyrir lá að þær upplýsingar sem óskað var eftir höfðu ekki verið teknar saman tók úrskurðarnefndin afstöðu til þeirra fyrirliggjandi gagna sem hefðu að geyma umbeðnar upplýsingar. Úrskurðarnefndin taldi ótvírætt að gögnin féllu undir ákvæði 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga og staðfesti synjun utanríkisráðuneytisins.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1123/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að tölfræðiupplýsingum hjá utanríkisráðuneyti í tengslum við breytingar á reglugerð um vegabréf. Þar sem fyrir lá að þær upplýsingar sem óskað var eftir höfðu ekki verið teknar saman tók úrskurðarnefndin afstöðu til þeirra fyrirliggjandi gagna sem hefðu að geyma umbeðnar upplýsingar. Úrskurðarnefndin taldi ótvírætt að gögnin féllu undir ákvæði 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga og staðfesti synjun utanríkisráðuneytisins.

    13. feb. 2023Forsætisráðuneytið

    Ásgerður Pétursdóttir skipuð í peningastefnunefnd

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Ásgerði Pétursdóttur, lektor í hagfræði við Háskólann í Bath á Englandi, í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands frá 21. febrúar nk. til næstu fimm ára. Ásgerður tekur sæti Gylfa Zoëga sem setið hefur í peningastefnunefnd frá árinu 2009 en hann hefur setið hámarksskipunartíma í nefndinni.

    12. feb. 2023Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28, sem nú fer fram í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

    11. feb. 2023Stjórnskipan og þjóðartákn, Forsætisráðuneytið

    Málþing um mannréttindakafla stjórnarskrárinnar

    Forsætisráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Akureyri og Háskólann á Bifröst býður til málþings undir yfirskriftinni Er þörf á breytingum á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar? Málþingið fer fram mánudaginn 6. nóvember nk. kl. 15.00-16.30 í stofu V-102 í Háskólanum í Reykjavík og verður auk þess í beinu streymi.

    10. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1151/2023. Úrskurður frá 31. ágúst 2023

    Kæranda, sem er fréttamaður, var synjað um aðgang að stefnu og greinargerð Sinfóníu­hljómsveitar Íslands í nánar tilgreindu dómsmáli. Ákvörðun Sinfóníuhljómsveitar Íslands byggðist á því að um viðkvæm gögn væri að ræða sem vörðuðu einstaklinga, auk þess sem gögnin væru liður í dómsmáli. Úrskurðarnefndin taldi engum vafa undirorpið að gögnin lytu að einkamálefnum þeirra einstaklinga sem um ræðir, sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu, sbr. 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Þá væri það verulegum erfiðleikum bundið að skilja þær upplýsingar sem féllu undir undantekningarákvæði laganna frá þeim upplýsingum sem veita mætti aðgang að. Var ákvörðun Sinfóníuhljómsveitar Íslands því staðfest.

    • First
    • Prev
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband