22. des. 2020Dómsmálaráðuneytið, Mannanafnanefnd, Úrskurðir
Mál nr. 113/2020 Úrskurður 22. desember 2020
Beiðni um eiginnafnið Lárenzína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd nafnsins Lárensína (kvk.) Vegna þessa máls hefur mannanafnanefnd ákveðið að úrskurða nafnmyndina Lárenz (kk.) á mannanafnaskrá sem eiginnafn.