04. júl. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti
Utanríkisráðherra kynnir fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi
Utanríkisráðherra hefur nú lagt fram fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi sem markar stefnu stjórnvalda um framkvæmd samnefndrar ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 og síðari ályktana ráðsins þar að lútandi.