Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 851–900 af 3353
    Raða eftir:
    10. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1150/2023. Úrskurður frá 31. ágúst 2023

    Kærandi bað sveitarfélagið Garðabæ um yfirlit úr málaskrá sveitarfélagsins sem tengdist eldri gagnabeiðnum hans og upplýsingar um það hvaða gögn voru afhent í hvert skipti. Afstaða sveitarfélagsins var sú að kærandi hefði þegar fengið slíkt yfirlit afhent, þótt afhendingin hefði ekki verið í formi skjáskota úr málaskrá sveitarfélagsins. Úrskurðarnefndin taldi að kærandi hefði ekki afmarkað beiðni sína við tilgreind mál eða tilgreind gögn, og þannig ekki uppfyllt skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, um tilgreiningu gagna. Var ákvörðun Garðabæjar því staðfest.

    10. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1149/2023. Úrskurður frá 31. ágúst 2023

    Matvælastofnun synjaði kæranda um aðgang að gögnum sem lægju til grundvallar birtingu á tölfræði um afföll eldisfiska í sjókvíum í mælaborði fiskeldis á vef stofnunarinnar. Ákvörðunin byggðist aðallega á því að gögnin teldust ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, því þau tilheyrðu gagnagrunni stofnunarinnar. Í skýringum Matvælastofnunar kom fram að hægt væri að draga út úr gagnagrunninum allar upplýsingar, þ.m.t. þær sem synjað var um, og flytja yfir í excel-skjal án mikillar fyrirhafnar. Úrskurðarnefndin taldi í ljósi þeirra skýringa og með hliðsjón af ákvæði 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, að gögnin teldust í reynd vera fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga.…

    07. feb. 2023Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogafundur Norðurlandanna með Bandaríkjaforseta

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun sækja leiðtogafund Norðurlandanna og Joe Biden Bandaríkjaforseta í Helsinki 13. júlí nk. Fundurinn verður haldinn í kjölfar leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Vilníus 11. – 12. júlí.

    06. feb. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forvarnaráætlun gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi meðal barna og ungmenna gengur vel

    Tímabil aðgerðaráætlunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni fyrir árin 2021-2025 er nú hálfnað og er tæplega helmingi aðgerða lokið og um 30% komnar vel á veg.

    04. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ráðherrar heimsóttu Neskaupstað og funduðu með viðbragðsaðilum

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra heimsóttu Neskaupstað í dag ásamt fulltrúum Ofanflóðasjóðs og almannavarna Ríkislögreglustjóra.

    03. feb. 2023Forsætisráðuneytið

    Umsækjendur um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits

    Alls bárust sex umsóknir um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 7. febrúar sl. og rann umsóknarfrestur út 27. febrúar.

    02. feb. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Um 90% aðgerða í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum lokið eða komnar vel á veg

    Tæplega 90% aðgerða í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2020-2023 er annað hvort lokið eða þær komnar vel á veg. Vinna við aðrar aðgerðir er í öllum tilfellum hafin.

    31. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Skýrsla úttektarnefndar um árangur Seðlabanka Íslands

    Nefnd þriggja óháðra sérfræðinga hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni um hvernig Seðlabanka Íslands hefur tekist að uppfylla markmið um stöðugt verðlag, fjármálastöðugleika og framkvæmd fjármálaeftirlits.

    27. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    27. janúar helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar

    Ákveðið hefur verið að 27. janúar ár hvert verði á Íslandi helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar​ og þá verði vakin sérstök athygli á aðdraganda hennar og þeim hryllingi sem í henni fólst. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa sammælst um að hefja vinnu til þess að móta þær leiðir sem farnar verða í þessu augnamiði hér á landi.

    26. jan. 2023Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði þing Evrópuráðsins í Strassborg

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á þingi Evrópuráðsins í Strassborg og svaraði spurningum þingmanna. Málefni Úkraínu, formennska Íslands í Evrópuráðinu og staða mannréttinda og lýðræðis í heiminum voru meðal þess sem forsætisráðherra ræddi í ávarpinu.

    25. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með kanslara Þýskalands í Berlín

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, áttu tvíhliðafund í Berlín í dag. Á fundinum ræddu þau m.a. um tvíhliða samtarf Íslands og Þýskalands, málefni Úkraínu, stöðu öryggismála í Evrópu og málefni norðurslóða.

    24. jan. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Evrópuráðið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Oddný Mjöll Arnardóttir kjörin dómari við Mannréttindadómstól Evrópu

    Þing Evrópuráðsins kaus í dag Oddnýju Mjöll Arnardóttur dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Oddný Mjöll var ein af þremur sem tilnefnd voru sem dómaraefni af hálfu íslenskra stjórnvalda.

    19. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar til umsagnar í Samráðsgátt

    Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024-2028 hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda og eru opin almenningi til umsagnar.

    17. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Fréttaannáll forsætisráðuneytisins 2022

    Verkefni forsætisráðuneytisins á árinu 2022 voru fjölbreytt að vanda eins og sjá má í fréttaannál ráðuneytisins.

    16. jan. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ný Þjóðarhöll – staðan og næstu skref

    Ný þjóðarhöll mun umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla samkvæmt tillögum framkvæmdanefndar. Hún verður 19.000m2 að stærð, mun taka 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 manns á tónleikum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynntu í dag stöðu og næstu skref við byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardalnum.

    12. jan. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Óskað eftir leiguhúsnæði fyrir Grindvíkinga

    Til að styðja enn frekar við öflun húsnæðis fyrir Grindvíkinga sem rýma hafa þurft heimili sín hefur Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir, að höfðu samráði við Grindavíkurbæ, fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið og innviðaráðuneytið, auglýst eftir fasteignum tímabundið til leigu fyrir íbúa Grindavíkur.

    12. jan. 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hafin

    ​Tuttugasti og áttundi aðildaríkjafundur og ráðstefna Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP28) stendur nú yfir í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

    11. jan. 2023Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Osló

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í leiðtogafundi norrænna forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Osló. Hún stýrði einnig fundi forsætisráðherranna sem haldinn var í tengslum við fundinn.

    06. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Leiðtogar Evrópuríkja funduðu í Moldóvu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sótti í dag leiðtogafund hins pólitíska bandalags Evrópuríkja (European Political Community, EPC) sem fram fór skammt frá Chisinau, höfuðborg Moldóvu. Fundinn sóttu leiðtogar 47 Evrópuríkja, þ. á m. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu, auk leiðtoga Evrópusambandsins.

    06. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra sækir leiðtogafund EPC í Moldóvu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sækir í dag leiðtogafund hins pólitíska bandalags Evrópuríkja (e. European Political Community, EPC) sem fram fer skammt frá Chisinau, höfuðborg Moldóvu.

    03. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Katrín Jakobsdóttir átti tvíhliða fund með Mette Frederiksen

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, áttu tvíhliða fund í Kaupmannahöfn í dag. Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Reykjavík, sumarfundur norrænu forsætisráðherranna í Vestmannaeyjum, Evrópumál og málefni Úkraínu voru meðal umræðuefna.

    31. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Áramótaávarp forsætisráðherra 2022

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti áramótaávarp sitt í kvöld. Meðal þess sem forsætisráðherra ræddi í ávarpinu var launamunur kynjanna, staða íslenskrar tungu, líðan barna og ungmenna og velsæld landsmanna.

    30. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum á gamlársdag

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum á morgun, laugardaginn 31. desember, kl. 11.00.

    29. des. 2022Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Sjónvarpsþættir um skaðsemi hatursorðræðu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í gær samning við Ketchup Productions um framleiðslu sjónvarpsþátta um skaðsemi hatursorðræðu. Greiðslur ráðuneytanna vegna verkefnisins nema alls fimm milljónum króna.

    29. des. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið og Stígamót gera samning um Sjúktspjall

    Forsætisráðuneytið og Stígamót hafa gert samstarfssamning um framhald verkefnisins Sjúktspjall. Um er að ræða nafnlaust netspjall þar sem ungmenni á aldrinum 13-20 ára geta rætt við ráðgjafa Stígamóta um kynferðisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum.

    22. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing forsætisráðherra vegna máls Erlu Bolladóttur

    Samkomulag hefur náðst milli íslenska ríkisins og Erlu Bolladóttur vegna gæsluvarðhalds sem Erla sætti fyrir meinta aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar. Erla var sýknuð af þeim ákærum í Hæstarétti 1980 en hún mátti sæta frelsissviptingu í tæpa átta mánuði vegna málsins.

    22. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið styrkir samtök sem styðja við þolendur ofbeldis

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að veita sex stofnunum og samtökum styrk nú í aðdraganda jóla. Þær stofnanir eða samtök sem um ræðir eru Bjarkarhlíð, Bjarmahlíð, Kvennaathvarfið, Rótin/Konukot, Sigurhæðir og Stígamót og rennur ein milljón króna til hverrar stofnunar eða alls um 6 milljónir króna.

    21. des. 2022Rit og skýrslur, Alþjóðasamningur um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, Skýrslur frá Íslandi, Forsætisráðuneytið

    Sjötta skýrsla Íslands um framkvæmd alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi

    Í samræmi við 40. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi hafa íslensk stjórnvöld tekið saman sjöttu skýrslu sína um framkvæmd samningsins og valfrjálsra bókana við hann.

    20. des. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1114/2022. Úrskurður frá 5. desember 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum um greiðslur sem Isavia hefur fengið vegna sérleyfa um verslun með útivistarfatnað og minjagripi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á tilteknu tímabili. Synjun Isavia byggðist annars vegar á því að hluti gagnanna heyrði ekki undir gildissvið upplýsingalaga samkvæmt 3. mgr. 36. gr. upplýsingalaga og hins vegar að meðferð beiðninnar um þau gögn sem eftir stæðu útheimti svo mikinn tíma og vinnu að ekki sé fært að verða við henni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. laganna. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að yfirferð á reikningum gæti tekið svo langan tíma að undantekningarákvæði 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. ætti við.…

    20. des. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1113/2022. Úrskurður frá 5. desember 2022

    Kærð var afgreiðsla Ísafjarðarbæjar á beiðni kæranda í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1077/2022, þar sem beiðninni hafði verið vísað aftur til Ísafjarðarbæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Samkvæmt Ísafjarðarbæ lágu þau gögn sem kærandi óskaði eftir ekki fyrir hjá sveitarfélaginu. Þar sem ekki teldist um synjun að ræða í skilningi 20. gr. upplýsingalaga var kærunni vísað frá nefndinni.

    20. des. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1112/2022. Úrskurður frá 5. desember 2022

    Deilt var um afgreiðslu sveitarfélags á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem vörðuðu málefni og starfslok kæranda hjá sveitarfélaginu. Sveitarfélagið taldi að öll umbeðin gögn hefðu verið afhent kæranda, að undanskildum tilteknum tölvupóstssamskiptum sem væru undanþegin afhendingarskyldu samkvæmt 3. og 4. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst hvorki á að sveitarfélaginu hafi verið heimilt að synja kæranda um aðgang að gögnunum með vísan til 3. tölul. 6. gr. laganna, né að önnur takmörkunarákvæði upplýsingalaga ættu við um gögnin. Var sveitarfélaginu því gert að veita kæranda aðgang að samskiptum við almannatengil og lögmann, en kærunni var að öðru leyti vísað frá úrskurðarnefndinni.

    20. des. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1111/2022. Úrskurður frá 5. desember 2022

    Kærð var synjun heilbrigðisráðuneytis á beiðni um aðgang að samningum íslenska ríkisins um kaup á bóluefnum gegn COVID-19. Synjun ráðuneytisins byggðist aðallega á því að mikilvægir almannahagsmunir krefðust þess að aðgangur kæranda yrði takmarkaður, sbr. 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst á það með ráðuneytinu að umbeðin gögn hefðu að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki og fjölþjóðastofnanir sem mikilvægir almannahagsmunir stæðu til að færu leynt. Að fenginni þeirri niðurstöðu var að mati nefndarinnar óþarft að kanna hvort skilyrði 9. gr. upplýsingalaga væru uppfyllt til takmörkunar á rétti kæranda til aðgangs. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.

    19. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi JEF-ríkjanna í Riga

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í fundi leiðtoga þátttökuríkja í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (e. Joint Expeditonary Force, JEF) í Riga í Lettlandi. Þetta er í annað skiptið sem leiðtogarnir koma saman frá því að til JEF-samstarfsins var stofnað en fyrra skiptið var í London í mars sl.

    14. des. 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Börn

    Um 3.000 fleiri fjölskyldur fá barnabætur á næsta ári með einfaldara og öflugra kerfi

    Fjölskyldum sem fá greiddar barnabætur á næsta ári fjölgar um tæplega 3.000 með breytingum á barnabótakerfinu sem ríkisstjórnin kynnti í vikunni sem hluta af stuðningsaðgerðum í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði.

    13. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Hátíðardagskrá í tilefni 100 ára ártíðar Hannesar Hafstein

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bauð í dag til hátíðardagskrár í Safnahúsinu í tilefni af 100 ára ártíð Hannesar Hafstein, fyrsta innlenda ráðherra Íslands.

    12. des. 2022Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Stuðningur stjórnvalda vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að grípa til aðgerða í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Eru aðgerðirnar til þess fallnar að styðja við markmið samninganna um að verja kaupmátt og lífskjör launafólks og skapa forsendur fyrir stöðugleika í efnahagsmálum, lækkun verðbólgu og vaxta.

    09. des. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Forsætisráðuneytið

    Stjórnunar- og verndaráætlun Geysissvæðisins staðfest

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tóku þátt í athöfn við Geysi í dag, ​þar sem umhverfis-, orku- og loftslagráðherra staðfesti stjórnunar- og verndaráætlun Geysissvæðisins.

    08. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Embætti hagstofustjóra auglýst laust til umsóknar

    Embætti hagstofustjóra verður auglýst laust til umsóknar um helgina en forsætisráðherra skipar í embættið frá 1. nóvember næstkomandi. Skipuð verður þriggja manna hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra.

    07. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið endurnýjar samning við FKA

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), skrifuðu undir samstarfssamning í Stjórnarráðinu í gær.

    05. des. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland hækkar um fimm sæti á Regnbogakorti ILGA Europe og er komið í topp tíu

    Ísland hækkar um fimm sæti á milli ára á Regnbogakorti ILGA Europe. Ísland er nú komið í 9. sæti en var í 14. sæti í fyrra (2021).

    04. des. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Drög að forgangslista vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB

    Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að forgangslista fyrir hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Frestur til að veita umsagnir er til 29. apríl nk.

    29. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Sögufélag á 120 ára afmæli félagsins

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra um að veita Sögufélagi 3,5 milljóna kr. styrk af ráðstöfunarfé sínu. Verður styrkurinn nýttur til útgáfu á fyrsta riti í smáritaröðinni nýrri Íslandssögu fyrir almenning.

    29. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland tekur þátt í framhaldskönnun OECD um traust

    Samþykkt var á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að Ísland taki þátt í framhaldskönnun OECD um traust. Verða veittar allt að 4 milljónir króna af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til verkefnisins.

    29. nóv. 2022Flóttafólk, Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá viðbótargreiðslur í desember

    Samþykkt var á fundi ríkisstjórnarinnar sl. föstudag að greiða umsækjendum um alþjóðlega vernd viðbótargreiðslur í desember líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Greiðslurnar sem nema 10 þúsund krónum fyrir hvern fullorðinn einstakling og 5 þúsund krónum fyrir börn koma til viðbótar við fastar framfærslugreiðslur.

    25. nóv. 2022Forsætisráðuneytið

    Tíu hjálparsamtök fá styrk í aðdraganda jóla

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um að veita 7,5 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til tíu hjálparsamtaka sem starfa hér á landi. Undanfarin ár hafa hjálparsamtök verið styrkt með þessum hætti í aðdraganda jóla.

    25. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1110/2022. Úrskurður frá 16. nóvember 2022

    Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um gögn í tengslum við umsókn um byggingarleyfi vegna óleyfisframkvæmda. Reykjavíkurborg kvað engin gögn sem heyrðu undir gagnabeiðni kæranda vera fyrirliggjandi. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að rengja þær staðhæfingar Reykjavíkurborgar og hefði að auki ekki valdheimildir til að ganga úr skugga um hvort gögnin væru til, þrátt fyrir að kærandi teldi slíkt vera hafið yfir vafa. Að mati nefndarinnar var þannig ekki um að ræða synjun um aðgang að fyrirliggjandi gögnum, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, og kærunni því vísað frá.

    25. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1109/2022. Úrskurður frá 16. nóvember 2022

    Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um gögn um tilurð götumerkinga í Bankastræti. Kæran barst rúmlega 14 mánuðum eftir að kærufrestur skv. 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga rann út. Úrskurðarnefndin taldi skilyrði 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga ekki uppfyllt og var kærunni því vísað frá.

    25. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1108/2022. Úrskurður frá 16. nóvember 2022

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um hvort kvartað hefði verið til Vinnueftirlitsins vegna eineltis af hálfu kæranda sem og vinnugögnum í vörslum stofnunarinnar. Það var mat úrskurðarnefndarinnar að 2. til 4. málsliður 2. mgr. 83. gr. laga nr. 46/1980 fæli í sér sérstaka þagnarskyldureglu um upplýsingar sem vörðuðu umkvartanir til Vinnueftirlitsins. Þannig væri ljóst að upplýsingar um hvort kvartað hafi verið til stofnunarinnar vegna eineltis á vinnustað, sem og gögn stofnunarinnar sem fjalla kynnu um slíka umkvörtun, féllu undir þagnarskylduákvæðið. Taldi úrskurðarnefndin því að Vinnueftirlitinu væri óheimilt að veita kæranda slíkar upplýsingar og staðfesti ákvörðun stofnunarinnar að þessu leyti en kærunni var að öðru leyti vísað frá.

    24. nóv. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra hélt opnunarerindi á málþingi um mannréttindi

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag opnunarerindi á málþinginu Mannréttindavarsla á viðsjárverðum tímum: Hlutverk Evrópuráðsins til framtíðar sem fram fór í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Aðalávarpið flutti Marija Burić, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins.

    23. nóv. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Stjórnvöld í samstarf við Samtökin '78 vegna hinsegin barna og ungmenna

    Forsætisráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið hafa undirritað samstarfssamninga við Samtökin '78. Markmið samninganna sem eru samtals að fjárhæð 9 milljónir króna er að veita fræðslu og stuðning til hinsegin barna og ungmenna og vinna gegn fordómum og haturstjáningu.

    • First
    • Prev
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • 20
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband