Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 851–900 af 1704
    Raða eftir:
    26. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Flugþróunarsjóður styður við stóraukið millilandaflug á landsbyggðinni

    Beint millilandaflug til og frá Akureyri og Egilsstöðum mun stóraukast á árinu þegar tvö stór erlend flugfélög hefja flug þangað. Svissneska flugfélagið Edelweiss Air mun fljúga beint til Akureyrar frá Zurich í sumar og hyggur á aukið flug þangað í framtíðinni og þýska flugfélagið Condor hefur tilkynnt áætlunarflug frá Frankfurt til Egilsstaða og Akureyrar frá maí til október 2023. Condor er fyrsta erlenda flugfélagið sem hefur tilkynnt um reglubundið flug á báða vellina.

    26. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Fyrri úthlutun úr Tónlistarsjóði 2023

    Tilkynnt hefur verið um úthlutanir úr Tónlistarsjóði fyrir fyrri hluta ársins 2023. Alls var rúmum 64 milljónum úthlutað úr sjóðnum en þar af var 32 milljónum úthlutað til sjö samningsbundinna styrkþega til 3 ára í senn. Meðal þeirra eru Caput, Kammersveit Reykjavíkur, Myrkri Músíkdagar og Jazzhátíð Reykjavíkur.

    25. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fléttan: Sidekick Health innleiðir fjarvöktun og fjarstuðning við sjúklinga á hjartadeild Landspítalans

    Sidekick Health, í samstarfi við göngudeildir hjartadeildar Landspítala (GH-LSH), hlýtur styrk úr Fléttunni, styrkjum til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðistækni- og þjónustu, til verkefnis sem snýr að því að innleiða fjarvöktun og fjarstuðning á göngudeild hjartabilaðra á LSH.

    25. jan. 2023Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samstarf við ríkislögreglustjóra um aukið netöryggi og vernd barna

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri undirrituðu í vikunni fjóra samninga um styrki upp á samtals 24 m.kr. til ríkislögreglustjóra í aðgerðir sem miða annars vegar að því að auka vernd barna á netinu og hins vegar til að styrkja innviði lögreglunnar til þess að takast á við net- og tölvubrot almennt. Aðgerðirnar eru allar hluti af aðgerðaráætlun stjórnvalda í netöryggi 2022-2027.

    24. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Styrkjum úthlutað úr Sviðlistasjóði

    172 milljónum var í dag úthlutað til stuðnings verkefna á sviði sviðslista fyrir leikárið 2023/24. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra afhenti styrkina í Tjarnarbíó við hátíðlega athöfn. Sviðslistaráð veitir 105 milljónum króna til 13 atvinnusviðslistahópa á leikárinu og fylgja þeim 132 listamannalaunamánuðir sem jafngilda 67 milljónum króna, 58 mánuðir voru veittir einstaklingum utan sviðslistahópa.

    24. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Heilbrigðismál, Menntamál

    Sex samstarfsverkefni háskólanna styðja við aukna áherslu á heilbrigðis- og menntavísindi

    Fjölgun nemenda í heilbrigðisvísindum með nýjum færnibúðum, þverfaglegt meistaranám í heilbrigðislausnum og í svefni og fjölgun fagmenntaðs leikskólastarfsfólks eru meðal verkefna sem hljóta styrk úr Samstarfi háskólanna og hafa það að markmiði að efla mannauð í heilbrigðis- og menntavísindum.

    23. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Styrkir til rannsókna á ritmenningu íslenskra miðalda

    Snorrastofa auglýsir nú eftir umsóknum um styrki til rannsókna á ritmenningu íslenskra miðalda fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

    20. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aukaúthlutun úr safnasjóði

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur samþykkt tillögu safnaráðs um aukaúthlutun úr safnasjóði upp á 17.923.000 krónur fyrir árið 2022.

    20. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Lilja heimsótti íslenska dansflokkinn í aðdraganda stórafmælis

    Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, heimsótti í dag Íslenska dansflokkinn og kynnti sér starfsemi hans og væntanleg verkefni á árinu. Íslenski dansflokkurinn verður 50 ára á þessu ári og hefst afmælishátíð hans með pompi og prakt þann 29. apríl og mun standa í heilt ár.

    19. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Háskólarnir taka höndum saman til að auka gæði náms og bæta þjónustu við námsmenn

    Verkefnin 25 sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynnti nýlega að hlytu styrki til aukins samstarfs háskóla koma frá öllum háskólum landsins. Styrkirnir, sem samtals nema tæplega 1,2 milljörðum króna að þessu sinni, renna þannig til margvíslegra samstarfsverkefna þar sem allir háskólarnir sjö koma að 6 til 20 verkefnum hver. Þá er hver og einn háskólanna í forsvari fyrir a.m.k. eitt samstarfsverkefni.

    18. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðherra kynnti sér Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

    Lilja Alfreðsdóttir, menningar- viðskiptaráðherra, heimsótti Hæfnisetur ferðaþjónustunnar í síðustu viku og fundaði með starfsfólki og stýrihóp setursins.

    17. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn auglýsir ferðastyrki

    Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum til ferðastyrkja til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum samstarfsverkefnum.

    17. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fléttan: Dicino Medical Technologies innleiðir fjöltyngt forskráningarkerfi sjúklinga

    Dicino Medical Technologies, í samstarfi við Heilsugæsluna Höfða, hlýtur styrk úr Fléttunni til verkefnis sem snýr að innleiðingu nýs forskráningarkerfis sjúklinga. Að baki fyrirtækinu stendur teymi sem hefur fjölþættan bakgrunn og reynslu af læknavísindum og viðskiptum auk vöruþróunar fyrir bæði innlendan og erlendan markað.

    16. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opnir viðtalstímar ráðherra í Grósku vorið 2023

    Á opnum viðtalstímum gefst tækifæri til að eiga stutt, milliliðalaust spjall við ráðherra þar sem hægt er að viðra hugmyndir, kynna þær eða koma á framfæri athugasemdum um málaflokka.

    16. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fléttan: SVAI notar gervigreind til að fækka spítalasýkingum

    IGNAS (áður SVAI ehf.) í samstarfi við Landspítala Háskólasjúkrahús (LSH) og Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk), hlýtur styrk úr Fléttunni til verkefnis sem snýr að innleiðingu lausnar til fækkunarspítalasýkinga er verða með beinu snertismiti. Lausnin felur í sér hátæknilausn með gervigreindar-hugbúnaði ásamt skýjalausn.

    13. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Hönnunarsjóður stækkar

    Framlög til Hönnunarsjóðs nema alls 80 milljónum kr. árið 2023 og hækka um 30 milljónir kr. frá fyrra ári. Stefnumótun í málefnum hönnunar og arkitektúrs verður kynnt á næstu vikum.

    12. jan. 2023Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Takmarkanir á auglýsingasölu Ríkisútvarpsins og staða lífeyrisskuldbindinga félagsins.

    Takmarkanir á auglýsingasölu Ríkisútvarpsins og staða lífeyrisskuldbindinga félagsins. Niðurstöður starfshóps. Desember 2023.

    12. jan. 2023Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Gjaldtaka á streymisveitur og tæknifyrirtæki

    Skýrsla starfshóps um gjaldtöku á streymisveitur og tæknifyrirtæki. Maí 2024.

    11. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Landspítalinn í samstarf við fimm nýsköpunarfyrirtæki

    Úthlutanir styrkja úr Fléttunni - styrkja til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu voru kynntar á dögunum. Landspítalinn er, líkt og fyrra ár, samstarfsaðili fjölmargra styrktra verkefna en í ár hefur LSH skuldbundið sig til að vinna með fimm fjölbreyttum nýsköpunarfyrirtækjum að innleiðingu nýrrar tækni eða lausna.

    06. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýtt skipurit menningar- og viðskiptaráðuneytisins

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur staðfest nýtt skipurit menningar- og viðskiptaráðuneytis sem tekur gildi í dag, 1. júní.

    06. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Hönnun, Menningarmál

    Sóknarhugur fyrir skapandi greinar

    Markmið Rannsóknaseturs skapandi greina er að efla rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina með hliðsjón af fjölþættum áhrifum þeirra á samfélagið.

    06. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Ræddu framtíð tungumála á málþingi í Kanada

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra tók þátt í hringborðsumræðunum um varðveislu tungumála í Kanada ásamt forseta Íslands, Elizu Reid forsetafrú, Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Almannaróms og Mary Simon, landstjóra Kanada ásamt fleiri fulltrúum frá Kanada.

    31. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Alþjóðlegur sérfræðingahópur skilar mati vegna umsóknar Kvikmyndaskóla Íslands um háskólaviðurkenningu

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipaði nýverið, að tillögu gæðaráðs íslenskra háskóla, matsnefnd erlendra sérfræðinga til að fjalla um umsókn Kvikmyndaskóla Íslands um háskólaviðurkenningu. Gert var ráð fyrir að matið færi fram í tveimur áföngum og núna liggur fyrir niðurstaða í fyrri hluta þess.

    22. des. 2022Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áslaug Arna ræddi samnorræna stefnu um netöryggi við forsætisnefnd Norðurlandaráðs

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mætti á fund forsætisnefndar Norðurlandaráðs 15. desember sl. til að ræða samnorræna stefnu um netöryggi og norræna framkvæmdaáætlun þar um.

    22. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Þrjú verkefni hljóta styrk úr Glókolli

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur tilkynnt um þau verkefni sem hljóta styrk úr Glókolli í haustúthlutun sjóðsins.

    21. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Aukin framlög í staðla og stöðlunarstarf

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, skrifaði í gær undir þjónustusamning við Staðlaráð Íslands um áframhaldandi framlag ráðuneytisins til staðla og stöðlunarstarfs. Hlutverk Staðlaráðs er að vera samstarfsvettvangur þeirra sem áhuga hafa á staðlastarfi og eiga hagsmuna að gæta af gerð og notkun staðla hérlendis. Einnig er Staðlaráð aðili að alþjóðlegum staðlasamtökum.

    21. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áfrýjunarnefnd EUIPO fellst á allar kröfur Íslands

    Áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur hafnað öllum kröfum bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods Ltd. varðandi notkun á orðmerkinu Iceland. Fyrirtækið getur ekki lengur hindrað að íslensk fyrirtæki auðkenni sig með upprunalandinu við markaðssetningu á EES-svæðinu á vörum sínum og þjónustu.

    21. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Átta verkefni fá styrk úr Fléttunni

    Fulltrúum átta sprotafyrirtækja hefur verið boðið að ganga til samninga um styrki úr Fléttunni. Fléttan eru styrkir sem veittir eru til nýsköpunarfyrirtækja sem skapað hafa áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka skilvirkni kerfisins almennt.

    20. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Undirritun samnings um Heimagistingarvakt

    Þann 15. desember undirritaði menningar- og viðskiptaráðuneytið samning við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að framlengja átaksverkefni sem rekið hefur verið sl. ár undir yfirskriftinni „Heimagistingarvakt“. Samkvæmt lögum 85/2007 hefur Sýslumaður eftirlit með skráningarskyldri gististarfsemi sem og annarri rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi.

    20. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Kría auglýsir eftir umsóknum um fjárfestingu

    Kría – sprota- og nýsköpunarsjóður auglýsir eftir umsóknum um fjárfestingu í sérhæfðum sjóðum sem hafa þann tilgang að fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2023.

    16. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úthlutun listamannalauna 2023

    Til úthlutunar úr launasjóðnum eru 1600 mánaðarlaun úr sex launasjóðum: hönnuða, myndlistarmanna, rithöfunda, sviðslistafólks, tónlitarflytjenda og tónskálda. Fjöldi umsækjenda var 1.083, þar af 972 einstaklingar og 111 sviðslistahópar (sótt um listamannalauna fyrir 670 einstaklinga í innan sviðslistahópa). Sótt var um í heild 10.108 mánuði. Úthlutun fá 236 listamenn.

    16. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar úthlutar

    Sjóðurinn Gjöf Jóns Sigurðssonar var stofnaður samkvæmt erfðaskrá Ingibjargar Einarsdóttur ekkju Jóns Sigurðssonar forseta, dagsett 12. desember 1879. Hann styrkir vel samin vísindaleg rit og heimildarrit.

    16. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Ingibjörg Jóhannsdóttir skipuð safnstjóri Listasafns Íslands

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Ingibjörgu Jóhannsdóttur til að gegna embætti safnstjóra við Listasafn Íslands.

    15. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Umsækjendur um stöðu forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands

    Alls bárust 15 umsóknir um embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, en staðan var auglýst þann 28. nóvember sl. og umsóknarfrestur rann út þann 12.desember sl.

    14. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Metfjöldi verkefna fá styrk úr Tækniþróunarsjóði

    Fulltrúum sextíu verkefna sem sóttu um styrk úr Tækniþróunarsjóði á haustmisseri hefur verið boðið að ganga til samninga um styrki en haustúthlutun sjóðsins var kynnt á Haustfundi hans fyrr í vikunni.

    14. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Myndlistarstefna lögð fyrir Alþingi

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, mun leggja fram tillögu til þingsályktunar um myndlistarstefnu fyrir Alþingi á næstu dögum.

    13. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Styrkir úr Tækniþróunarsjóði gæðastimpill fyrir íslensk þróunar- og nýsköpunarfyrirtæki

    Áhrifamat Tækniþróunarsjóðs fyrir árin 2014-2018 var kynnt á haustfundi sjóðsins sem fram fór í Grósku í gær. Matið leiðir m.a. í ljós að í tilvikum 91% allra styrkþega leiddi styrkur frá Tækniþróunarsjóði til nýrra frumgerða á vöru eða þjónustu. Sjóðurinn heyrir undir háskóla-, iðnaðar, og nýsköpunarráðuneyti og markmið hans mótast í samræmi við áherslur Vísinda- og tækniráðs. Umsýsla sjóðsins er í höndum Rannís.

    13. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Ferðakostnaður, Atvinnuvegir

    Stórbætt öryggi og betri upplýsingar til ferðamanna í Reynisfjöru

    „Aðstæður í okkar fallega landi eru að mörgu leyti frábrugðnar því sem ferðafólk þekkir í sínu umhverfi. Það er því hlutverk okkar sem gestgjafa að upplýsa gesti okkar um þær hættur sem leynast í okkar stórbrotnu náttúru til að tryggja öryggi þeirra eins og frekast er unnt en jafnframt að gæta að orðspori Íslands sem öruggs lands. Ég vil þakka öllum þeim sem komu að þessu verkefni kærlega fyrir þeirra framlag,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    13. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Úkraína, Menningarmál

    Samningur um vernd menningarverðmæta í stríðsátökum

    Ísland hefur nú staðfest Haag-samning UNESCO frá 1954 um vernd menningarverðmæta komi til vopnaðra átaka. En gögnum þar að lútandi var skilað til höfuðstöðva UNESCO í París síðastliðinn mánudag. Unnið var að fullgildingu samningsins í samstarfi menningar- og viðskiptaráðuneytis og utanríkisráðuneytis. Nú hafa nær öll lönd Evrópu staðfest samninginn.

    12. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Stöðug þróun í fjármögnunarumhverfi nýsköpunar

    Umfangsmikil greiningarvinna á fjármögnunarumhverfi nýsköpunar á Íslandi hefur átt sér stað hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu á liðnum vikum. Virkt samtal við hagaðila á borð við nýsköpunarfyrirtæki, fjárfesta, lífeyrissjóði og aðila úr sprotaumhverfinu er lykilatriði í verkefninu og í því skyni bauð ráðuneytið 20 aðilum úr nýsköpunarumhverfinu að taka þátt í vinnustofu um fjármögnun nýsköpunar sem fram fór í liðinni viku.

    10. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Atvinnuvegir

    Ráðherra heimsótti stofnun Vigdísar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með Jóni Atla Benediktssyni rektor Háskóla Íslands, Ásdísi Rósu Magnúsdóttur, forstöðumanns stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Ann-Sofie Nielsen Gremaud stjórnarformann Vigdísarstofnunar og fleira starfsfólki HÍ og stofnunarinnar í dag.Ráðherra fékk góða kynningu á því merka starfi sem sinnt er hjá stofnuninni, helstu verkefnum og húsnæðinu Veröld Vigdísar. Ráðherra fékk einnig kynningu á fyrirhugaðri sýningu í Loftskeytamiðstöðinni um ævi og störf frú Vigdísar Finnbogadóttur sem verður opnuð á vormánuðum.

    10. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Félags- og fjölskyldumál, Menntamál, Útlendingar, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Innflytjendur, Nýsköpun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ísland býður erlenda sérfræðinga velkomna

    Fjórar leiðir hafa nú verið kynntar fyrir ríkisstjórn sem ætlað er að liðka fyrir komu erlendra sérfræðinga og aðgengi að sérhæfðri þekkingu, en þær falla undir ábyrgðarsvið nokkurra ráðuneyta.

    09. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Talað fyrir íslenskri tónlist í Los Angeles

    Íslensk tónlist og tónlistariðnaðurinn á Íslandi voru umræðuefni funda Lilju D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra með einu stærsta tónlistarfyrirtæki veraldar, Universal Music Group (UMG), ásamt því að heimsækja umboðsskrifstofuna Milk & Honey Management, sem fer meðal annars með umboð fyrir listamenn Dua Lipa og Kanye West & umboðsskrifstofuna John Silva Management sem heldur utan um listamenn eins Foo Fighters, Nirvana og Norah Jones.

    07. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Flóttafólk, Háskólar, Úkraína, Menntamál

    Námsframboð íslenskra háskóla til úkraínskra námsmanna á flótta

    Á island.is er nú að finna upplýsingar fyrir úkraínska háskólanema sem dvelja nú á Íslandi um námsmöguleika í íslenskum háskólum. Þar má nálgast allar upplýsingar bæði á ensku og úkraínsku.

    05. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál

    Ráðherra kynnir nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti á Nýsköpunarviku

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynnir nýtt ráðuneyti í Grósku mánudaginn 16. maí klukkan 12:10.

    01. des. 2022Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hljóðbókasafnið fær hæsta styrk úr Bókasafnasjóði

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, úthlutaði í dag 20 milljónum króna í 11 styrki úr Bókasafnasjóði. Þetta er fyrsta úthlutun sjóðsins en styrkveitingar eru allar í þágu íslenskra bókasafna. Hæsta styrkinn fær að þessu sinni Hljóðbókasafn Íslands eða 6 milljónir króna fyrir verkefnið Hljóðstafi. Verkefnið snýr að því að ljúka við smíði hugbúnaðarkerfis til að samþætta upplesið hljóð og texta í aðgengilega bók.

    29. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Sögufélag á 120 ára afmæli félagsins

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra um að veita Sögufélagi 3,5 milljóna kr. styrk af ráðstöfunarfé sínu. Verður styrkurinn nýttur til útgáfu á fyrsta riti í smáritaröðinni nýrri Íslandssögu fyrir almenning.

    29. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Mannauðsmál ríkisins

    Berglind Ásgeirsdóttir fylgir eftir stefnu ráðherra um alþjóðlega sérfræðinga

    Berglind Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu til 6 mánaða og mun hún hafa starfsstöð í Reykjavík og á Akureyri.

    29. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Nýtt tónlistarfrumvarp samþykkt í ríkisstjórn

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra kynnti nýtt tónlistarfrumvarp fyrir ríkisstjórn sem samþykkti frumvarpið.

    25. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Nýsköpun, Menntamál

    Áslaug Arna kynnti sér árangursmiðaða stefnumörkun í Singapúr

    Umgjörð stefnumótunar stjórnvalda í Singapúr þegar kemur að rannsóknum, nýsköpun og uppbyggingu fyrirtækja hefur gefið góða raun.

    • First
    • Prev
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • 20
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband