Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 851–900 af 2360
    Raða eftir:
    04. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá NATO

    Utanríkisráðherrar NATO funduðu í Brussel

    Stríðið í Úkraínu var í forgrunni tveggja daga fundar utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag. Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, ávarpaði fundinn en auk hans tóku þátt utanríkisráðherrar frá öðrum ríkjum sem eiga í samstarfi við Atlantshafsbandalagið.

    02. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Þróunarsamvinna, UNICEF, Utanríkismál

    UNICEF fær stuðning til að hraða dreifingu bóluefna í þróunarríkjum

    Utanríkisráðuneytið mun verja 250 milljónum króna til að styðja við starfsemi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) til að hraða dreifingu og aðgengi að COVID-19 bóluefnum í þróunarríkjum. Ísland hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings baráttu þróunarríkja gegn heimsfaraldrinum og áhrifum hans en auk framlagisins til UNICEF hafa stjórnvöld veitt rúmum milljarði króna til COVAX bóluefnasamstarfsins.

    01. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu um hernaðaruppbyggingu Rússa

    Staða öryggismála í Evrópu og hernaðaruppbygging Rússlands í og við Úkraínu var tilefni sérstaks aukafundar utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem fór fram í dag. Á fundinum, sem haldinn var um öruggan fjarfundabúnað, var rædd sú alvarlega staða sem upp er komin vegna aðgerða Rússlands á þessu svæði og áhyggjur af því að hætta sé á hernaðarátökum. Á fundinum lögðu ráðherrar áherslu á að frekari brot myndu hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir Rússland.

    30. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Mikilvægum leiðtogafundi lokið

    Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins lauk í Madrid í dag. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í fundinum ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.

    30. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Sjávarútvegur, Utanríkismál

    Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins fundaði með aðalframkvæmdastjóra Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO)

    Í byrjun vikunnar átti Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, fund með Qu Dongyu, aðalframkvæmdastjóra Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm.

    28. jún. 2022Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Madríd

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Madríd á morgun og stendur fram á fimmtudag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra mun einnig sitja fundinn.

    27. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ, Utanríkismál

    Ársskýrsla GRÓ 2020-2021 komin út

    Fyrsta ársskýrsla GRÓ ̶ Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu er komin út. Skýrslan nær yfir fyrstu tvö árin í starfsemi miðstöðvarinnar, 2020-2021. GRÓ er sjálfstæð miðstöð sem tók til starfa 1. janúar 2020 og starfar undir merkjum UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Miðstöðin fellur undir utanríkisráðuneytið sem sinnir eftirliti og umsýslu með framlögum til hennar.

    27. jún. 2022Rit og skýrslur, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ársskýrsla GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu 2020-2021

    GRÓ er sjálfstæð miðstöð sem tók til starfa 1. janúar 2020 og starfar undir merkjum UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Miðstöðin fellur undir utanríkisráðuneytið sem sinnir eftirliti og umsýslu með framlögum til hennar.

    20. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    EFTA-ríkin hefja fríverslunarviðræður við Taíland og Kósovó

    Áskoranir sem alþjóðaviðskiptakerfið stendur frammi fyrir vegna afleiðinga heimsfaraldursins og innrásar Rússlands í Úkraínu og yfirstandandi fríverslunarviðræður EFTA-ríkjanna voru til umfjöllunar á ráðherrafundi EFTA sem lauk í Borgarnesi síðdegis.

    16. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrarnir ræddu Úkraínu og styrkingu varnargetu NATO

    Varnarbarátta Úkraínu gegn grimmilegum stríðsrekstri Rússlands í 113 daga og áhrif þess á öryggisumhverfi Evró-Atlantshafssvæðisins, stuðningur bandalagsríkja við Úkraínu og efling fælingar og varnarstefnu Atlantshafsbandalagsins voru meginefni á fundi varnarmálaráðherra sem lauk í Brussel í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum fyrir hönd Íslands.

    16. jún. 2022Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherrafundur EFTA á Íslandi

    Ráðherrar, þingmenn og samstarfsaðilar aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) koma saman til árlegs sumarfundar mánudaginn 20. júní. Fundurinn fer að þessu sinni fram í Borgarnesi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir stýrir fundinum en hann markar lok formennsku Íslands í EFTA-ráðinu undanfarið ár.

    15. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál, Afríka

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Afríkuríkja funduðu í Helsinki

    Tuttugasti fundur utanríkisráðherra Afríkuríkja og Norðurlanda fór fram í Helsinki í gær. Friðar- og öryggismál, þar á meðal áhrif stríðsins í Úkraínu, sjálfbær samfélög, baráttan við loftslagsbreytingar og aukið samstarf Norðurlanda og Afríkuríkja í alþjóðakerfinu voru meðal helstu umræðuefna ráðherranna.

    15. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginleg yfirlýsing varnarmálaráðherra þátttökuríkja í JEF

    Staða og horfur í öryggis- og varnarmálum í Evrópu vegna innrásar Rússlands í Úkraínu voru efst á baugi á tveggja daga fundi varnarmálaráðherra þátttökuríkja í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (Joint Expeditionary Force, JEF) sem lauk í Ósló í dag.

    13. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fæðuöryggi til umræðu á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar

    Innrás Rússlands í Úkraínu og áhrif hennar á fæðuöryggi í heiminum eru ofarlega á baugi 12. ráðherrafundar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO sem fram fer í Genf dagana 12. til 15. júní. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra flutti ávarp á opnunardegi fundarins um helstu áskoranir sem alþjóðaviðskiptakerfið stendur frammi fyrir. Ráðherra fordæmdi innrás Rússlands í Úkraínu og sagði hana meginorsök þeirrar fæðuöryggiskrísu sem heimurinn stendur nú frammi fyrir.

    09. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áfrýjunarnefnd EUIPO tekur Iceland-málið fyrir

    Munnlegur málflutningur í máli Íslands gegn bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods Ltd fer fram fyrir fjölskipaðri áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) föstudaginn 9. september. Þetta er í fyrsta sinn sem mál er flutt munnlega fyrir áfrýjunarnefndinni. Áður hafði EUIPO komist að þeirri niðurstöðu að vörumerkjaskráning Iceland Foods Ltd á orðmerkinu ICELAND í Evrópusambandinu væri ógild í heild sinni

    07. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Öryggis- og varnarmál, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland staðfestir samninga um aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu

    Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum, afhenti í dag bandaríska utanríkisráðuneytinu aðildarskjöl Íslands vegna viðbótarsamninga um aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Alþingi hafði áður með þingsályktun, hinn 7. júní síðastliðinn, heimilað ríkisstjórninni að staðfesta aðildarsamningana þegar þeir lægju fyrir.

    05. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ráðherrar og ráðuneytisstjórar Norðurlandanna funda með framkvæmdastjóra OCHA

    Ráðherrar og ráðuneytisstjórar Norðurlandanna funduðu í dag með Martin Griffiths, framkvæmdastjóra hjá samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA).

    30. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Aukinn stuðningur við frjálsa fjölmiðlun í þróunarríkjum

    Stuðningur Norðurlanda við starfsemi UNESCO var helsta umfjöllunarefni fundar norrænna þróunarsamvinnuráðherra með framkvæmdastjóra stofnunarinnar í dag. Utanríkisráðherra tilkynnti á fundinum um aukið framlag Íslands til uppbyggingar frjálsrar fjölmiðlunar í þróunarríkjum.

    27. maí 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkismál, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra fundar með sendiherra Bretlands

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, fundaði í vikunni með sendiherra Bretlands, dr. Bryony Mathew.

    25. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Úkraínu efst á baugi á fundi Eystrasaltsráðsins

    Málefni Úkraínu voru ofarlega á baugi á fundi utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsins í Kristiansand í dag. Í sameiginlegri yfirlýsingu sinni fordæmdu utanríkisráðherrarnir harðlega innrás Rússlands í Úkraínu og lýstu yfir samstöðu og algjörum stuðningi við Úkraínu. Rússlandi var meinuð þátttaka í allri starfsemi Eystrasaltsráðsins með yfirlýsingu ráðherranna frá 3. mars síðastliðinn.

    24. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginleg yfirlýsing varnarmálaráðherra Norðurlandanna um eflingu norræna varnarsamstarfsins

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu um mikilvægi norræns samstarfs í öryggis- og varnarmálum. Í yfirlýsingunni fagna Danmörk, Ísland og Noregur ákvörðunum Finnlands og Svíþjóðar um að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu og leggja áherslu á að fullgilding aðildar gangi hratt fyrir sig.

    24. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Aðfanga- og orkuöryggi í brennidepli á fundi EES-ráðsins

    Mikilvægi lýðræðislegra og stöðugra markaða og aðfanga- og orkuöryggi voru á meðal umræðuefna á fundi EES-ráðsins sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti í Brussel í gær.

    23. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundaði með Margrethe Vestager

    Samkeppnismál, gróska í nýsköpun, stafræn umbreyting og samstarf Íslands og Evrópusambandsins (ESB) á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) voru á meðal þess sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Margrethe Vestager, varaforseti og framkvæmdastjóri samkeppnismála og stafrænnar umbreytingar ESB, ræddu á fundi sínum í Brussel í dag.

    20. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Evrópuráðsins funda í Tórínó

    Mikilvægi þess að standa vörð um lýðræðisleg gildi, mannréttindi og réttarríkið bar hæst í ávarpi utanríkisráðherra á árlegum ráðherrafundi Evrópuráðsins sem fer fram í Tórínó á Ítalíu í dag. Utanríkisráðherra Ítalíu, Luigi Di Maio, var gestgjafi fundarins. Ísland tekur við formennsku í Evrópuráðinu í nóvember 2022 og verður gestgjafi fundarins á næsta ári.

    17. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland verður gestgjafi IDAHOT+ Forum 2023

    Árlegur samráðsfundur IDAHOT+ Forum verður haldinn á Íslandi í maí 2023 í tengslum við formennsku Íslands í Evrópuráðinu. Þetta verður í tíunda sinn sem efnt er til þessa samráðs sem sameinar evrópskar ríkisstjórnir, aðgerðasinna, borgaralegt samfélag og aðra hagsmunaaðila til að meta framgang réttinda hinsegin fólks í álfunni. Fundurinn er haldinn árlegakringum alþjóðadag gegn fordómum gagnvart hinsegin fólki (IDAHOT) 17. maí.

    16. maí 2022Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Íslands, Danmerkur og Noregs

    Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir ítreka stuðning við ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu, sem tilkynnt var um í gær og í dag.

    16. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu í Berlín

    Líklegar aðildarumsóknir Finnlands og Svíþjóðar, staðan í Úkraínu og undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Madríd voru umfjöllunarefni á óformlegum fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Berlín í gær. Afleiðingar innrásarinnar, meðal annars á matvælaöryggi í heiminum, voru jafnframt helsta umræðuefnið á tvíhliða fundum sem utanríksráðherra átti í tengslum við fund Atlantshafsbandalagsins.

    13. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Flóttafólk, Mið-Austurlönd, Utanríkismál

    Tilkynnt um viðbótarframlag frá Íslandi á áheitaráðstefnu um Sýrland

    Heildarframlög íslenskra stjórnvalda í þágu sýrlensku þjóðarinnar á þessu ári og fram til ársloka 2024 nema 550 milljónum króna. Tilkynnt var um 60 milljóna króna viðbótarframlag á áheitaráðstefnu í vikunni um Sýrland. Framlagsríki og alþjóða hjálparstofnanir gáfu fyrirheit um 6,7 milljónir Bandaríkjadala á ráðstefnunni sem haldin var í Brussel.

    13. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Staða öryggismála og varnarsamstarf í deiglu varnarmálaráðherra í Kirkenes

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu í Noregi þann 11. maí á vettvangi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO). Staða öryggismála í Norður-Evrópu og samvinna ríkjanna á vettvangi norræna samstarfsins var í forgrunni á fundinum, sem fram fór í Kirkenes í Norður-Noregi.

    04. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Frakklands ræddu stríðið í Úkraínu

    Úkraína var í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og á sameiginlegum fundi þeirra með utanríkisráðherra Frakklands sem fram fór í Berlín í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundunum með fjarfundarbúnaði.

    04. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styður við móttöku flóttamanna í Moldóvu

    Íslensk stjórnvöld tilkynntu í dag um 50 milljóna króna framlag til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til að bregðast við álagi á innviði í Moldóvu vegna komu flóttamanna frá Úkraínu.

    28. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál

    Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál fór fram í Reykjavík þriðjudaginn 26. apríl.

    27. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðuneytið hlýtur gullvottun í jafnréttisúttekt UNDP

    Ísland hefur hlotið gullvottun frá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (United Nations Development Programme, UNDP) fyrir vinnu á sviði jafnréttismála og þróunarsamvinnu. Ísland er jafnframt fyrsta framlagsríkið sem undirgengst slíka vottun.

    27. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðuneytið hlýtur gullvottun í jafnréttisúttekt UNDP

    Ísland hefur hlotið gullvottun frá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (United Nations Development Programme, UNDP) fyrir vinnu á sviði jafnréttismála og þróunarsamvinnu. Ísland er jafnframt fyrsta framlagsríkið sem undirgengst slíka vottun.

    27. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland veitir 80 milljónum til Eþíópíu

    Á framlagaráðstefnu sem fram fór í Genf í gær tilkynntu íslensk stjórnvöld að þau myndu veita 80 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Eþíópíu á þessu ári. Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Evrópusambandið, Eþíópía, Kenía og Sómalía stóðu fyrir ráðstefnunni vegna yfirvofandi hungursneyðar af völdum þurrka á svæðinu sem kennt er við horn Afríku.

    26. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Úkraína, Mannréttindi og jafnrétti

    Aukinn stuðningur við UNICEF, UN Women og UNFPA

    Þátttaka Íslands og stuðningur við starf Sameinuðu þjóðanna auk stríðsins í Úkraínu voru til umræðu á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með stjórnendum Sameinuðu þjóðanna í dag og í gær. Þar tilkynnti hún einnig að Ísland muni auka framlög sín til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), UN Women og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) á þessu ári. Stofnanirnar eru allar áherslustofnanir í þróunarsamvinnu Íslands.

    25. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherra undirritar nýjan samning við Hnattræna jafnréttissjóðinn

    Árlegt framlag Íslands til Hnattræna jafnréttissjóðsins (Global Equality Fund, GEF) verður tvöfaldað með nýjum samningi sem utanríkisráðherra undirritaði á föstudag. Sjóðurinn beinir stuðningi sínum að mannréttindum hinsegin fólks um allan heim.

    22. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland veitir 130 milljónum í efnahagslega neyðaraðstoð við Úkraínu

    Íslensk stjórnvöld mun veita alls 130 milljónum króna í sérstakan sjóð Alþjóðabankans í efnahagslega neyðaraðstoð við Úkraínu, eða því sem nemur alls einni milljón Bandaríkjadala. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti um viðbótarframlag Íslands til sjóðsins á ráðherrafundi um stuðning við Úkraínu í gær sem haldinn var í tengslum við vorfundi Alþjóðabankans í Washington.

    21. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Öryggis- og varnarmál í brennidepli í Washington

    Samstarf Íslands og Bandaríkjanna og áhrif innrásar Rússlands í Úkraínu á öryggis- og varnarmál í Evrópu voru til umræðu á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með háttsettum embættismönnum í bandaríska stjórnkerfinu í gær og í dag.

    10. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Framganga Rússlands gagnvart Úkraínu fordæmd

    Íslensk stjórnvöld hafa komið formlega á framfæri við rússnesk stjórnvöld hörðum mótmælum við ólöglegri innlimun héraða í Úkraínu og marklausum atkvæðagreiðslna sem þar voru haldnar. Sendiherra Rússlands í Reykjavík var kallaður til fundar í utanríkisráðuneytinu af þessu tilefni í gær.

    10. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginleg yfirlýsing varnarmálaráðherra þátttökuríkja í JEF

    Skemmdir á Nord Stream gasleiðslunum voru í brennidepli á fjarfundi varnarmálaráðherra þátttökuríkja í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (JEF) sem fram fór í gær. Sameiginleg yfirlýsing var gefin út af fundinum þar sem skemmdarverkin eru harðlega fordæmd.​

    03. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Úkraína: Tæplega 300 milljónir króna frá íslenskum stjórnvöldum til mannúðaraðstoðar

    Utanríkisráðherra hefur tilkynnt um viðbótarframlög til mannúðaraðstoðar vegna Úkraínu að heildarupphæð eina milljón evra, eða um 145 milljónum íslenskra króna. Framlagið skiptist milli þriggja samstarfsaðila íslenskra stjórnvalda.

    03. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu um Úkraínu

    Viðbrögð Atlantshafsbandalagsins vegna innrásar Rússlands í Úkraínu voru í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, sem sat fundinn, segir samstöðu bandalagsþjóðanna eindregna.

    03. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Úkraína, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðherra lýsti áhyggjum af mannréttindum í Úkraínu vegna innrásar Rússa

    Stuðningur íslenskra stjórnvalda við úkraínsku þjóðina var ítrekaður og innrás Rússlands harðlega fordæmd í myndbandsávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna. Tveggja daga sérstakri umræðu sem fram fór í ráðinu um stöðu mannréttinda í Úkraínu lauk í dag.

    03. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Rússlandi meinuð þátttaka í starfsemi Eystrasaltsráðsins

    Utanríkisráðherrar aðildarríkja Eystrasaltsráðsins (e. Council of the Baltic Sea States, CBSS) og háttsettur fulltrúi ESB á sviði utanríkismála hafa samþykkt sameiginlega yfirlýsingu þar sem tekin er ákvörðun um að meina Rússlandi þátttöku í allri starfsemi Eystrasaltsráðsins þar til annað verður ákveðið. Sama gildir um Belarús sem er áheyrnaraðili að ráðinu.

    01. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í London, Dómsmálaráðuneytið

    Vinnudvöl ungs fólks í Bretlandi nú heimil

    Ungir Íslendingar geta nú sótt um dvalarleyfi vegna vinnudvalar ungs fólks í Bretlandi (Youth Mobility Scheme Visa). Ísland er fyrsta og eina ríkið á öllu EES-svæðinu sem hefur gert samkomulag þess efnis við Bretland. Að sama skapi geta breskir ríkisborgarar nú sótt um slík dvalarleyfi á Íslandi.

    31. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland veitir 400 milljónum í neyðaraðstoð í Afganistan

    Utanríkisráðherra tilkynnti um samtals 400 milljóna króna framlag Íslands til neyðaraðstoðar í Afganistan á fjáröflunarfundi Sameinuðu þjóðanna í dag. Þar af er 360 milljóna króna framlag fyrir tímabilið 2022-2024 sem skiptist milli Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þá tilkynnti ráðherra einnig um fjörtíu milljóna króna framlag til Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Um er að ræða áherslustofnanir Íslands í mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu og lykilstofnanir í verkefnum Sameinuðu þjóðanna í Afganistan.

    31. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðurslóðamálin til umræðu á opnum fundi á Akureyri

    Utanríkisráðuneytið efndi til opins fundar um málefni norðurslóða í Háskólanum á Akureyri í dag. Fundurinn er mikilvægur liður í að efla innlent samráð og samstarf um málefni norðurslóða og markar upphafið að gerð framkvæmdaáætlunar fyrir stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.

    31. mar. 2022Utanríkismál, Alþjóðamál, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sendiherra Noregs heimsótti matvælaráðherra

    Matvælaráðherra Svandís Svavarsdóttir tók á móti Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs í vikunni.

    30. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Nýsköpun og öryggismál efst á baugi í opinberri heimsókn til Finnlands

    Vinátta og samskipti Íslands og Finnlands, samvinna á sviði nýsköpunar og öryggismála og stríðið í Úkraínu voru í brennidepli í opinberri heimsókn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra til Finnlands.

    • First
    • Prev
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • 20
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband