29. jan. 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál, Úrskurðir
Mál nr. 28/2013.
<p>Húsaleigubætur. Aðfinnslur. Kærandi sótti um húsaleigubætur aftur í tímann. Kærandi á ekki rétt á húsaleigubótum aftur í tíman þar sem sækja beri um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og að umsókn skuli hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar, sbr. 2. og 3. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997. Ákvörðun sveitarfélagsins Garðs um að greiða kæranda húsaleigubætur í einn mánuð aftur í tímann er því í andstöðu við framangreind lagaákvæði. Með vísan til þess að um ívilnandi ákvörðun sé að ræða verður ekki við henni haggað. Hin kærða ákvörðun er staðfest.</p>