28. jan. 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, Úrskurðir
Mál nr. 181/2012.
Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði með vísan til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, var ómerkt og málinu vísað aftur til Vinnumálstofnunar til löglegrar meðferðar, þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið reist á röngum lagagrundvelli.