Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 951–1000 af 2360
    Raða eftir:
    22. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland styður verkefni sem miðar að því að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Argentina Matavel-Piccin, yfirmaður skrifstofu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) fyrir Vestur- og Mið-Afríku, hafa skrifað undir samstarfssamning um verkefni sem styður stjórnvöld í Síerra Leóne í viðleitni sinni við að útrýma fæðingarfistli í landinu. Um er að ræða nokkuð algengt og mjög alvarlegt vandamál í landinu, en með verkefninu munu lífsgæði fjölda kvenna batna til mikilla muna. Verkefnið verður unnið í náinni samvinnu við heilbrigðisyfirvöld í Síerra Leóne en frjáls félagasamtök taka jafnframt þátt í því.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Yfirlýsing norrænna varnarmálaráðherra um stöðuna í Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um málefni Úkraínu.. Þari lýsa þeir yfir áhyggjum af stöðu og þróun mála í Úkraínu, árétta stuðning Norðurlandanna við fullveldi og landamærahelgi landsins, og rétt úkraínsku þjóðarinnar til að ákvarða eigin framtíð án utanaðkomandi afskipta.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Flóttafólk, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, UN Women, Utanríkismál

    66°Norður og UN Women fá styrk til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur

    66°Norður og UN Women á Íslandi hafa fengið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins um þróunarsamvinnu til að vinna að verkefni til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur frá þróunarríkjum í Tyrklandi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Bjarney Harðardóttir hjá 66°Norður skrifuðu undir samning í gær um tæplega 30 milljóna króna styrk ráðuneytisins gegn sambærilegu mótframlagi fyrirtækisins.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Heimsmarkmiðasjóðurinn styður við samfélagsverkefni Kerecis í Egyptalandi

    Framlag úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu verður nýtt til að styðja við samstarf lækningafyrirtækisins Kerecis og egypska Ahl Masr-sjúkrahússins um að nota íslenskt sáraroð við meðhöndlun alvarlegra brunasára. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Guðmundur Fertram Sigurjónsson forstjóri Kerecis hafa undirritað samning um 30 milljóna króna stuðning ráðuneytisins úr Heimsmarkmiðasjóðnum við samfélagsverkefni Kerecis í Egyptalandi.

    17. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Úkraína í brennidepli á varnarmálaráðherrafundi NB8

    Málefni Úkraínu voru til umfjöllunar á fjarfundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) í dag. Ríkin eru sammála um að sú staða sem þar er komin upp ​vegna umfangsmikillar hernaðaruppbyggingar Rússlands sé verulegt áhyggjuefni, ekki síst í samhengi við pólitískar yfirlýsingar rússneskra stjórnvalda að undanförnu.

    16. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Utanríkismál

    Yfirlit yfir áður óbirta þjóðréttarsamninga birt á Stjórnarráðsvefnum

    Sérstakt yfirlit yfir þjóðréttarsamninga frá tímabilinu 2012-2020 hefur nú verið gert aðgengilegt á vef Stjórnarráðsins. Yfirlitið er hluti af átaksverkefni utanríkisráðuneytisins um birtingu áður óbirtra samninga og veitir upplýsingar um stöðu hvers samnings.

    11. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Staða og horfur í öryggis og varnarmálum í brennidepli

    Tim Radford, hershöfðingi og næstæðsti yfirmaður Evrópuherstjórnar Atlantshafsbandalagsins (DSACEUR), heimsótti Ísland nú í vikunni.

    07. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Íslands og Bretlands funduðu í Lundúnum

    Vaxandi tvíhliða samskipti Íslands og Bretlands, alþjóðamál og mannréttindi voru á meðal umræðuefna Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands, á fundi þeirra í Lundúnum í morgun.

    07. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Menntamál, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Brexit, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkomulag við Bretland á sviði menntunar og vísinda

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur undirritað fyrir Íslands hönd samkomulag við bresk stjórnvöld um samstarf á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar og geimvísinda. Hann segir það fagnaðarefni að greiður aðgangur íslenskra náms- og fræðimanna að breskum menntastofnunum verði áfram tryggður.

    07. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Menntamál, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Brexit, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkomulag við Bretland á sviði menntunar og vísinda

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur undirritað fyrir Íslands hönd samkomulag við bresk stjórnvöld um samstarf á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar og geimvísinda. Hann segir það fagnaðarefni að greiður aðgangur íslenskra náms- og fræðimanna að breskum menntastofnunum verði áfram tryggður.

    01. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Brexit, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar EFTA ríkjanna innan EES funduðu með Michel Barnier

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra stýrði utanríkisráðherrafundi EFTA-ríkjanna innan EES í dag þar sem fundað var með Michel Barnier, aðalsamningamanni ESB gagnvart Bretlandi.

    24. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór stýrði fundi með EFTA-nefndum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, stýrði í gær fundi EFTA-ríkjanna með þingmannanefnd og ráðgjafarnefnd EFTA sem fram fór í Brussel. Ráðherrann tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði og fór í máli sínu yfir áhersluatriði sögulegrar formennsku Íslands í EFTA-samstarfinu en um er að ræða fyrsta skiptið þar sem tímabil formennskuríkis er eitt ár.

    18. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði tengslanet norrænna kvenna

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hélt opnunarávarp á ársfundi tengslanets norrænna kvenna í friðarumleitunum og sáttamiðlun (Nordic Women Mediators Network) í dag en fundurinn fer fram hér á landi dagana 17.-19. nóvember.

    17. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Utanríkismál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland kjörið í framkvæmdastjórn UNESCO

    Ísland var kosið í framkvæmdastjórn Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í dag með yfirgnæfandi stuðningi á aðalráðstefnu stofnunarinnar sem nú stendur yfir í París. nnan Vesturlandahópsins voru Austurríki og Tyrkland einnig í framboði. Ísland hlaut flest atkvæði í kosningunni, eða 168 en 178 ríki greiddu atkvæði.

    16. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Fyrsti rammasamningur Íslands við UNFPA

    Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Ib Petersen, aðstoðarframkvæmdastjóri Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), skrifuðu í gær undir rammasamning um stuðning Íslands við UNFPA. Með samningnum formfestir Ísland stuðning sinn við stofnunina og fylgir eftir skuldbindingu í verkefninu Kynslóð jafnréttis sem forsætisráðherra Íslands tilkynnti á leiðtogafundi í París síðastliðið sumar.

    11. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    NORDEFCO-ráðherrar funduðu í Finnlandi

    Horfur í öryggismálum í Norður-Evrópu og málefni Afganistans voru meðal umfjöllunarefna á ráðherrafundi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO) sem lauk í gær. Fundurinn fór fram í Majvik í Kirkkonummi í útjaðri Helsinki.

    05. nóv. 2021Rit og skýrslur, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna (JPO) - Innri rýni á þátttöku Íslands 2005-2015

    Ísland tók þátt í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna 2005-2015 og hefur innri rýni ráðuneytisins á þeirri þátttöku nú verið gefin út, auk samantektar. Markmiðið var m.a. að afla lærdóms sem hægt væri að leggja til grundvallar þátttöku Íslands á nýjan leik.

    05. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Árangursrík þátttaka í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna

    Ísland tók þátt í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna 2005-2015 og hefur innri rýni ráðuneytisins á þeirri þátttöku nú verið gefin út, auk samantektar. Markmiðið var m.a. að afla lærdóms sem hægt væri að leggja til grundvallar þátttöku Íslands á nýjan leik.

    03. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Mannréttindi, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherrum Norðurlanda og Bretlands

    ​Öryggis- og alþjóðamál voru ofarlega á baugi á fjarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis og þróunarsamvinnuráðherra og utanríkisráðherra Norðurlanda (N5), með Dominic Raab utanríkisráðherra Bretlands.

    03. nóv. 2021Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa, Utanríkismál, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Vefráðstefna um baráttuna gegn loftslagsbreytingum með grænum lausnum frá Íslandi

    Þann 9 mars sl. hélt íslenska formennskan í fastanefnd EFTA-ríkjanna fyrri hluta árs 2021 vefráðstefnu þar sem til umfjöllunar voru íslensk sjónarmið í nýsköpun og grænum lausnum til að glíma við loftslagsbreytingar.

    02. nóv. 2021Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Mikilvægt að standa vörð um norrænt samstarf á tímum faraldurs

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, sat í dag á fjarfund samstarfsráðherra Norðurlanda.

    02. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Þrjátíu ár frá viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Litáens

    Í dag eru þrjátíu ár liðin frá því að Ísland viðurkenndi fyrst ríkja sjálfstæði Litáens eftir lok kalda stríðsins. Af því tilefni færði Inga Minelgaité, kjörræðismaður Litáens á Íslandi, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, blóm og þakkir.

    29. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Orka, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Ráðherra lagði áherslu á græna orku á ráðherrafundi um loftslagsmál

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók þátt í ráðherrafundi um loftslagsmál á vegum forseta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þann 26. október. Fundinum var ekki síst ætlað að auka á þrýsting um árangur á loftslagsfundi Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem hefst í Glasgow þann 1. nóvember.

    27. okt. 2021Menningarmál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samningur um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri undirritaður af Íslands hálfu

    Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, hefur undirritað Evrópusamning um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.

    22. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Öryggis- og varnarmál í deiglunni í Brussel

    Öryggis- og varnarmál í Evrópu og á Atlantshafi og samstarf Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins voru efst á baugi á tveggja daga fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag. Auk þeirra tóku Antti Kaikkonen, varnarmálaráðherra Finnlands, og Peter Hultqvist, varnarmálaráðherra Svíþjóðar þátt í fundinum.

    18. okt. 2021Sendiráð Íslands í Helsinki, Sendiskrifstofa, Borgaraþjónusta, Utanríkismál

    Ræðismannaráðstefna í Helsinki

    Kjörræðismenn Íslands í Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi og Úkraínu komu saman til fundar í sendiráðinu í Helsinki á föstudaginn 15. október sl.

    18. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Formaður hermálanefndarinnar heimsótti Ísland

    Rob Bauer, aðmíráll, formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins, heimsótti Ísland dagana 14.-16. október. Meðan á heimsókninni stóð fundaði hann með Martin Eyjólfssyni ráðuneytisstjóra og fleiri embættismönnum ráðuneytisins.

    13. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn, Asía, Hjálparstarf, Utanríkismál

    Afganistan efst á baugi á kjördæmisfundi Alþjóðabankans

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í fjarfundi ráðherra kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum, þar sem málefni Afganistan voru helsta umfjöllunarefnið.

    12. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Utanríkismál

    Ísland aðili að evrópsku öndvegissetri um fjölþáttaógnir

    Ísland gerðist í dag aðili að Evrópska öndvegissetrinu um fjölþáttaógnir í Helsinki. Öndvegissetrið var sett á fót árið 2017 með það að markmiði að efla getu ríkja til að mæta áskorunum á sviði fjölþáttaógna.

    11. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ísland styrkir starf mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis – og þróunarsamvinnuráðherra átti fund með mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna í gær í tilefni undirritunar rammasamnings um stuðning við skrifstofu mannréttindafulltrúans (OHCHR) um 20 milljónir króna á ári næstu þrjú árin, 2021 til 2023.

    11. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í París, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Framboðsáherslur Íslands kynntar á aðalráðstefnu UNESCO

    Fulltrúar Íslands kynntu áherslur sínar vegna framboðs til framkvæmdastjórnar UNESCO á aðalráðstefnu stofnunarinnar sem nú stendur yfir. Íslendingar hafa aukið starf sitt og framlög til þróunarsamvinnu innan UNESCO á undanförnum árum.

    06. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á fundi útflutnings- og markaðsráðs

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ræddi nýgerðan fríverslunarsamning við Bretland og undirstrikaði mikilvægi þess að auka útflutningstekjur á fundi útflutnings- og markaðsráðs í dag.

    30. sep. 2021Menningarmál, Menntamál, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samið um þátttöku EFTA-ríkjanna í samstarfsáætlunum ESB

    Tilkynnt hefur verið um áframhaldandi aðild EFTA-ríkjanna að samstarfsáætlunum Evrópusambandsins, árin 2021-2027.

    30. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál, Asía

    Fundur utanríkisráðherra Norðurlanda um Afganistan

    Utanríkisráðherrar Norðurlandana áttu í gær fund með Martin Griffiths, yfirmann Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna vegna mannúðarmála (OCHA) þar sem þeir ræddu stöðuna í málefnum Afganistans. María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri, tók þátt á fundinum fyrir hönd Íslands.

    28. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Árni Páll í stjórn ESA

    Árni Páll Árnason tekur sæti í stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá og með næstu áramótum.

    27. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Orka, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Loftslagsmál og mannréttindi efst á baugi í ræðu ráðherra á allsherjarþinginu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, talaði fyrir aðgerðum í loftslagsmálum, jafnari dreifingu bóluefna og mikilvægi mannréttinda og alþjóðalaga fyrir hagsæld og framþróun ríkja í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.

    27. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Orka, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Loftslagsmál og mannréttindi efst á baugi í ræðu ráðherra á allsherjarþinginu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, talaði fyrir aðgerðum í loftslagsmálum, jafnari dreifingu bóluefna og mikilvægi mannréttinda og alþjóðalaga fyrir hagsæld og framþróun ríkja í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.

    24. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skuldbindingar Íslands kynntar á leiðtogafundi um orkumál

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um orkumál, sem fram fór í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.

    21. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Covid-19, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Mannréttindi og jafnrétti

    UNGA76: Sjálfbær auðlindanýting, loftslagsmál og mannréttindi leiðarstefin

    Nú stendur yfir 76. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York sem sett var með formlegum hætti í síðustu viku. Að þessu sinni verður þingið blanda af fjarfundum og beinni þátttöku vegna heimsfaraldursins. Íslenskir ráðamenn taka þátt í þinginu og hliðarviðburðum með fjarfundabúnaði og myndabandsupptökum.

    17. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ný skýrsla um samskipti Íslands og Póllands

    Efla ætti enn frekar samskipti Íslands og Póllands og auka þarf viðveru íslenskra stjórnvalda í Póllandi að mati starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra skipaði í september 2019. Skýrsla starfshópsins Vinátta og vaxtarbroddar: Samskipti Íslands og Póllands hefur nú verið gefin út.

    15. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ísland og Svíþjóð efla samstarf í öryggis- og varnarmálum

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Peter Hultqvist varnarmálaráðherra Svíþjóðar undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um samstarf Íslands og Svíþjóðar í öryggis- og varnarmálum.

    13. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Flóttafólk, Asía, Hjálparstarf, Utanríkismál

    25 milljóna viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar í Afganistan

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnu ráðherra tilkynnti um 25 milljóna króna framlag til mannúðaraðstoðar í Afganistan á áheitaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í Genf í dag. Framlagið rennur til samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) og bætist það við fjárframlög íslenskra stjórnvalda til Afganistans að undanförnu.

    12. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Peking, Utanríkismál

    50 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Kína fagnað

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, lagði áherslu á gott samband Íslands og Kína á mörgum sviðum í ávarpi sem flutt var á í hátíðarmóttöku í sendiráði Íslands í Peking í gær. 50 ár eru nú liðin síðan Ísland og Alþýðulýðveldið Kína tóku upp stjórnmálasamband.

    12. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ávarpaði fund Viðskiptaráðs

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ávarpaði í gær fund Viðskiptaráðs þar sem utanríkisviðskipti voru efst á baugi en fundurinn bar yfirskriftina „Hvert fer álið og hvaðan koma ávextirnir?“.

    11. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Guðlaugur Þór á opnunarviðburði Heimsþings kvenleiðtoga

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í formlegri opnun Heimsþings kvenleiðtoga sem nú fer fram í Hörpu. Staða og hlutverk Íslands í jafnréttismálum á alþjóðavísu var efst á baugi á þessum opnunarviðburði ráðstefnunnar sem lýkur á morgun.

    09. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ný skýrsla um samskipti Íslands og Færeyja

    Aukið samstarf á sviði viðskipta, heilbrigðismála og menntamála eru á meðal tillagna starfshóps utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um hvernig efla megi tengsl Íslands og Færeyja. Ráðherra væntir þess að tillögur hópsins skapi forsendur fyrir nýjum og spennandi tækifærum í samskiptum þessara vinaþjóða.

    07. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál

    Áhyggjum lýst yfir ástandi mannréttinda á átakasvæðum Úkraínu

    Mannréttindaástandið á átakasvæðum í austanverðri Úkraínu var umfjöllunarefnið í sameiginlegri yfirlýsingu NB8-ríkjanna sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra flutti fyrir þeirra hönd í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag.

    06. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Norðurhópsins ræddu öryggis- og varnarmál

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í fjarfundi Norðurhópsins í dag þar sem hernaðaruppbygging Rússlands var ofarlega á baugi. Norðurhópurinn er vettvangur reglubundins samráðs líkt þenkjandi ríkja um öryggis- og varnartengd málefni. Hópinn skipa tólf ríki: Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Bretland, Holland, Þýskaland og Pólland.

    31. ágú. 2021Utanríkisráðuneytið, Borgaraþjónusta, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Sendiráð Íslands í Helsinki, Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Sendiráð Íslands í London, Utanríkismál

    Borgaraþjónustan aðstoðaði 33 við að komast frá Afganistan

    Undanfarna daga hafa 33 einstaklingar notið aðstoðar borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins við að komast frá Afganistan hingað til lands. Íslensk stjórnvöld taka undir áskorun fjölmargra ríkja til nýrra valdahafa í Afganistan um að heimila fólki frjálsa för úr landi.

    27. ágú. 2021Utanríkisráðuneytið, Borgaraþjónusta, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fjarfundur ráðherra í norræna varnarsamstarfinu

    Staða mála í Afganistan var til umfjöllunar á fjarfundi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO) sem fram fór í dag. Á fundinum þakkaði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra fyrir veitta aðstoð Norðurlandanna við brottflutning íslenskra ríkisborgara frá Afganistan.

    • First
    • Prev
    • 18
    • 19
    • 20
    • 21
    • 22
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband