02. feb. 2018Lög og réttur, Löggæsla, Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar, Almannaöryggi, Réttarfar
Auknar fjárveitingar til meðferðar kynferðisbrota hjá lögreglu og héraðssaksóknara
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra kynnti í dag á blaðamannafundi í dómsmálaráðuneytinu aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu og áform um eflingu löggæslunnar í landinu. Auka á fjárveitingar til að bæta við stöðugildum hjá lögreglu og hjá héraðssaksóknara, til að auka endurmenntun og til að bæta rannsóknarbúnað og verklagsreglur hjá lögreglu.