Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Mannréttindi
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 101–150 af 292
    Raða eftir:
    18. ágú. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra stendur fyrir fundaröð um stöðu mannréttinda

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stendur fyrir fundaröð um stöðu mannréttinda í lok ágúst og byrjun september. Um er að ræða opna samráðsfundi um landið þar sem fjallað verður um stöðu mannréttinda, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara.

    09. ágú. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Vel heppnaðri fundaröð um mannréttindi lokið

    Hátt í tvö hundruð manns tóku þátt í umræðum um stöðu mannréttinda í fundaröð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Fimm opnir samráðsfundir voru haldnir víða um landið en fundað var á Selfossi, Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Markmið fundanna var að fá fram upplýsingar frá almenningi um stöðu mannréttinda á Íslandi, helstu áskoranir og tækifæri til framfara í málaflokknum.

    02. ágú. 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún átti símafund með utanríkisráðherra Sádi-Arabíu

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ræddi í dag í síma við Faisal Bin Farhan Al Saud utanríkisráðherra Sádi-Arabíu um framboð Sáda til að hýsa heimssýninguna, World Expo, í Ríad árið 2030. Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu óskaði eftir samtalinu.

    14. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra sótti ráðstefnu um stríðsglæpi í Úkraínu

    Í dag var haldin í Haag ráðstefna um hvernig tryggt verði að þeir sæti ábyrgð sem fremja stríðsglæpi og brjóta á mannréttinda- og mannúðarlögum í Úkraínu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti ráðstefnuna ásamt utanríkisráðherrum og öðrum fulltrúum um 50 ríkja.

    20. maí 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Starfshópur skipaður gegn hatursorðræðu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp gegn hatursorðræðu (e. hate speech) til að bregðast við vísbendingum um vaxandi hatursorðræðu í íslensku samfélagi. Forsætisráðherra lagði fram minnisblað þess efnis í ríkisstjórn í dag.

    17. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland verður gestgjafi IDAHOT+ Forum 2023

    Árlegur samráðsfundur IDAHOT+ Forum verður haldinn á Íslandi í maí 2023 í tengslum við formennsku Íslands í Evrópuráðinu. Þetta verður í tíunda sinn sem efnt er til þessa samráðs sem sameinar evrópskar ríkisstjórnir, aðgerðasinna, borgaralegt samfélag og aðra hagsmunaaðila til að meta framgang réttinda hinsegin fólks í álfunni. Fundurinn er haldinn árlegakringum alþjóðadag gegn fordómum gagnvart hinsegin fólki (IDAHOT) 17. maí.

    26. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Úkraína, Mannréttindi og jafnrétti

    Aukinn stuðningur við UNICEF, UN Women og UNFPA

    Þátttaka Íslands og stuðningur við starf Sameinuðu þjóðanna auk stríðsins í Úkraínu voru til umræðu á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með stjórnendum Sameinuðu þjóðanna í dag og í gær. Þar tilkynnti hún einnig að Ísland muni auka framlög sín til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), UN Women og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) á þessu ári. Stofnanirnar eru allar áherslustofnanir í þróunarsamvinnu Íslands.

    03. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Úkraína, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðherra lýsti áhyggjum af mannréttindum í Úkraínu vegna innrásar Rússa

    Stuðningur íslenskra stjórnvalda við úkraínsku þjóðina var ítrekaður og innrás Rússlands harðlega fordæmd í myndbandsávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna. Tveggja daga sérstakri umræðu sem fram fór í ráðinu um stöðu mannréttinda í Úkraínu lauk í dag.

    02. apr. 2022Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Tilnefningar Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu

    Forsætisráðuneytið hefur sent tilnefningar Íslands um dómaraefni við Mannréttindadómstól Evrópu til ráðgjafarnefndar á vegum Evrópuráðsins.

    31. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland veitir 400 milljónum í neyðaraðstoð í Afganistan

    Utanríkisráðherra tilkynnti um samtals 400 milljóna króna framlag Íslands til neyðaraðstoðar í Afganistan á fjáröflunarfundi Sameinuðu þjóðanna í dag. Þar af er 360 milljóna króna framlag fyrir tímabilið 2022-2024 sem skiptist milli Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þá tilkynnti ráðherra einnig um fjörtíu milljóna króna framlag til Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Um er að ræða áherslustofnanir Íslands í mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu og lykilstofnanir í verkefnum Sameinuðu þjóðanna í Afganistan.

    16. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Úkraína, Utanríkismál

    Rússlandi vísað úr Evrópuráðinu

    Ráðherranefnd Evrópuráðsins ákvað samhljóða á sérstökum aukafundi í dag að vísa Rússlandi formlega úr Evrópuráðinu. Ákvörðunin, sem tekur gildi í dag, er tekin á grundvelli þess að Rússland hafi með árás sinni á Úkraínu brotið gróflega gegn stofnsáttmála og grunngildum stofnunarinnar.

    05. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherra undirritar samstarfssamning við Mannréttindaskrifstofu Íslands

    Á föstudag var undirritaður samstarfssamningur milli utanríkisráðuneytisins og Mannréttindaskrifstofu Íslands. Samningurinn er sá sjötti sem ráðuneytið gerir við skrifstofuna og kveður á um samtals tólf milljón króna framlag á samningstímabilinu 2022-2024.

    25. jan. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þriðja allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála á Íslandi

    ​Þriðja allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála (e; Universal Periodic Review eða UPR) á Íslandi fór fram á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf í Sviss í dag. Fyrsta úttektin á stöðu mála á Íslandi var 2011 og sú næsta 2016.

    20. jan. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þrjár umsóknir bárust um stöðu íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu

    Þrjár umsóknir bárust um embætti íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu en umsóknarfrestur rann út 14. janúar sl.

    12. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrafundi ÖSE lokið

    Afleiðingar innrásarinnar í Úkraínu voru meginefni utanríkisráðherrafundar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) sem haldinn var í pólsku borginni Łódź. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra áréttaði skuldbindingar aðildarríkjanna við alþjóðalög og alþjóðakerfið og brýndi þau til beita sér fyrir friði, frelsi og mannréttindum í ávarpi sínu á fundinum.

    07. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðherra ávarpar sérstaka umræðu mannréttindaráðsins um stöðu mannréttinda í Afganistan

    Mikilvægi þess að virðing sé borin fyrir mannréttindum kvenna og stúlkna bar hæst í ávarpi utanríkisráðherra fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í sérstakri umræðu mannréttindaráðsins um stöðu mannréttinda í Afganistan í dag. Ráðherra tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.

    22. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland styður verkefni sem miðar að því að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Argentina Matavel-Piccin, yfirmaður skrifstofu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) fyrir Vestur- og Mið-Afríku, hafa skrifað undir samstarfssamning um verkefni sem styður stjórnvöld í Síerra Leóne í viðleitni sinni við að útrýma fæðingarfistli í landinu. Um er að ræða nokkuð algengt og mjög alvarlegt vandamál í landinu, en með verkefninu munu lífsgæði fjölda kvenna batna til mikilla muna. Verkefnið verður unnið í náinni samvinnu við heilbrigðisyfirvöld í Síerra Leóne en frjáls félagasamtök taka jafnframt þátt í því.

    22. des. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Staða íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu

    Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu rennur út hinn 31. október 2022. Evrópuráðið hefur því farið þess á leit að tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni en skv. 22. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. lög nr. 62/1994, eru dómarar við Mannréttindadómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir.

    10. des. 2021Rit og skýrslur, Mannréttindi, Alþjóðasamningur um efnahagsleg félagsleg og menningarleg réttindi, Skýrslur frá Íslandi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Fimmta skýrsla Íslands um alþjóðasamninginn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi

    október 2021 / Dómsmálaráðuneytið Fimmta skýrsla Íslands um alþjóðasamninginn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi Fimmta skýrsla Íslands um alþjóðasamninginn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi (pdf) Fimmta skýrsla Íslands um alþjóðasamninginn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi - á ensku (pdf)

    25. nóv. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Samningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum, Forsætisráðuneytið

    Níunda skýrsla Íslands um Kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna

    Ísland skilaði á dögunum níundu skýrslu sinni um framkvæmd Samnings Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Samningurinn er frá 1979 og hefur Ísland verið aðili að honum frá 1985.

    25. nóv. 2021Rit og skýrslur, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Mannréttindi, Samningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum, Dómsmálaráðuneytið, Skýrslur frá Íslandi

    Níunda skýrsla Íslands um framkvæmd Samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum

    nóvember 2021 / Dómsmálaráðuneytið Níunda skýrsla Íslands um framkvæmd Samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum Níunda skýrsla Íslands um framkvæmd Samnings Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum Iceland's Ninth Periodic Report on the CEDAW

    03. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Mannréttindi, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherrum Norðurlanda og Bretlands

    ​Öryggis- og alþjóðamál voru ofarlega á baugi á fjarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis og þróunarsamvinnuráðherra og utanríkisráðherra Norðurlanda (N5), með Dominic Raab utanríkisráðherra Bretlands.

    02. nóv. 2021Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Skýrsla Íslands til Sameinuðu þjóðanna vegna samnings um réttindi fatlaðs fólks

    Ísland hefur birt fyrstu skýrslu Íslands um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Henni er ætlað að veita heildstæða mynd af þeim ráðstöfunum sem gerðar hafa verið til að efna skuldbindingar samkvæmt samningnum.

    13. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn, Asía, Hjálparstarf, Utanríkismál

    Afganistan efst á baugi á kjördæmisfundi Alþjóðabankans

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í fjarfundi ráðherra kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum, þar sem málefni Afganistan voru helsta umfjöllunarefnið.

    12. okt. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra opnaði málþing um mannréttindi á tímum loftslagsbreytinga

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti opnunarávarp á málþingi um mannréttindi og réttlæti á tímum loftslagsbreytinga. Alþjóðamálastofnun, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið stóðu fyrir málþinginu í tilefni af alþjóðadegi mannréttinda í Veröld, húsi Vigdísar í hádeginu í dag.

    11. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ísland styrkir starf mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis – og þróunarsamvinnuráðherra átti fund með mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna í gær í tilefni undirritunar rammasamnings um stuðning við skrifstofu mannréttindafulltrúans (OHCHR) um 20 milljónir króna á ári næstu þrjú árin, 2021 til 2023.

    02. okt. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Rit og skýrslur, Sameinuðu þjóðirnar, Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Skýrslur frá Íslandi, Dómsmálaráðuneytið

    Fyrsta skýrsla Íslands um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

    febrúar 2021 / Dómsmálaráðuneytið Fyrsta skýrsla Íslands um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks Fyrsta skýrsla Íslands um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (íslensk útgafa) Fyrsta skýrsla Íslands um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (ensk útgafa)

    27. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Orka, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Loftslagsmál og mannréttindi efst á baugi í ræðu ráðherra á allsherjarþinginu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, talaði fyrir aðgerðum í loftslagsmálum, jafnari dreifingu bóluefna og mikilvægi mannréttinda og alþjóðalaga fyrir hagsæld og framþróun ríkja í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.

    27. sep. 2021Rit og skýrslur, Mannréttindi, Sameinuðu þjóðirnar, Allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna, Skýrslur frá Íslandi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Þriðja skýrsla um stöðu mannréttindamála á Íslandi

    Komin er út skýrsla Íslands í tilefni af þriðju allsherjarúttekt mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála

    21. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Covid-19, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Mannréttindi og jafnrétti

    UNGA76: Sjálfbær auðlindanýting, loftslagsmál og mannréttindi leiðarstefin

    Nú stendur yfir 76. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York sem sett var með formlegum hætti í síðustu viku. Að þessu sinni verður þingið blanda af fjarfundum og beinni þátttöku vegna heimsfaraldursins. Íslenskir ráðamenn taka þátt í þinginu og hliðarviðburðum með fjarfundabúnaði og myndabandsupptökum.

    07. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál

    Áhyggjum lýst yfir ástandi mannréttinda á átakasvæðum Úkraínu

    Mannréttindaástandið á átakasvæðum í austanverðri Úkraínu var umfjöllunarefnið í sameiginlegri yfirlýsingu NB8-ríkjanna sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra flutti fyrir þeirra hönd í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag.

    01. ágú. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Afríka, Úganda, Utanríkismál

    Ísland aðili að áskorun um fjölmiðlafrelsi í Úganda

    Ísland hefur gerst aðili að tveimur yfirlýsingum þar sem skorað er á stjórnvöld í Úganda, mikilvægu samstarfsríki Íslands á sviði þróunarsamvinnu, að tryggja öryggi blaðamanna þar í aðdraganda kosninga. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, segir nauðsynlegt að standa vörð um fjölmiðlafrelsi.

    19. júl. 2021Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi, Ræður og greinar, Mannréttindi og jafnrétti, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa

    Sameiginleg ávörp Norðurlanda og NB8 hópsins HRC47

    júlí 2021 / Utanríkisráðuneytið Sameiginleg ávörp Norðurlanda og NB8 hópsins HRC47 Í mannréttindaráðinu þá vinnur Ísland náið með Norðurlöndum og NB8 hópnum svokallaða sem eru þá baltnesku ríkin auk Norðurlandanna. Tekur Ísland þátt í fjölda ávarpa með þessum hópum í hverri lotu en í 47 lotu mannréttindaráðsins voru þetta alls 29 ræður um ástand mannréttinda í einstökum löndum og þematísk málefni

    12. júl. 2021Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið

    María Rún kjörin til setu í GREVIO

    María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, hefur fyrst Íslendinga verið kjörin til setu í GREVIO, eftirlitsnefnd Evrópuráðsins með Istanbúl-samningnum um aðgerðir gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Nefndin er skipuð 15 sjálfstæðum og óvilhöllum sérfræðingum frá 34 aðildarríkjum samningsins.

    07. júl. 2021Mannréttindi, Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Ný þýðing á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

    júlí 2021 / Dómsmálaráðuneytið Ný þýðing á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks Hari Alþingi hefur samþykkt nýja þýðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Fyrri þýðing samningsins var ekki talin í nógu góðu samræmi við frumtexta hans og þá hugmyndafræði sem hann boðar

    16. jún. 2021Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Mansal – aukin vernd þolenda, liðkað fyrir málsókn á hendur gerendum og ný upplýsingagátt

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á ákvæði almennra hegningarlaga um mansal.

    07. jún. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Mannréttindi hinsegin fólks í brennidepli á ráðherrafundi ERC

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt á ráðherrafundi Equal Rights Coalition (ERC), sem er bandalag ríkja sem vinna saman að því að tryggja að hinsegin fólk hvarvetna fái notið allra mannréttinda.

    02. maí 2021Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Sjálfstæð innlend mannréttindastofnun í bígerð

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að skipa starfshóp til að útfæra hugmyndir um sjálfstæða innlenda mannréttindastofnun, sem uppfyllir Parísarviðmið Sameinuðu þjóðanna um slíkar stofnanir á Íslandi.

    28. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ræddi við Antony Blinken

    Ráðherrafundur Norðurskautsráðsins, tvíhliða samskipti og samstarf á alþjóðavettvangi voru til umræðu á símafundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í dag.

    26. apr. 2021Mannréttindi, Útlendingar, Dómsmálaráðuneytið

    Ísland aðili að samningum um ríkisfangslausa einstaklinga

    Samningar Sameinuðu þjóðanna um ríkisfangsleysi öðlast gildi gagnvart Íslandi í dag. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur með bréfi til dómsmálaráðherra fagnað því sérstaklega að Ísland sé orðið aðili að umræddum samningum og bent á að það sé mikilvægt skref í baráttunni gegn ríkisfangsleysi á heimsvísu

    22. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi, Utanríkismál

    Harmar ákvörðun Tyrklands um að segja sig frá Istanbúl-samningi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra harmar ákvörðun tyrkneska stjórnvalda í síðustu viku að segja sig frá samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimililsofbeldi, Istanbúl-samningnum svonefnda.

    12. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún áréttaði sameiginlegar skuldbindingar ÖSE-ríkjanna

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í ráðherrafundi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) 1.-2. desember í Stokkhólmi. Öryggisáskoranir og staða mannréttinda á svæðinu voru meginviðfangsefni fundarins.

    23. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Guðlaugur Þór ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra varaði við því að heimsfaraldurinn væri notaður sem átylla til að skerða frelsi og borgaraleg réttindi í ávarpi sínu í mannréttindarráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Hann fagnaði sérstaklega ákvörðun Bandaríkjastjórnar að gerast aftur virkur þátttakandi í starfi mannréttindaráðsins. Ekki væri um gallalausa stofnun að ræða en einmitt þess vegna þyrftu lýðræðisríki að vinna að umbótum á mannréttindaráðinu og halda á lofti frelsi og mannréttindum.

    15. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ólögmætum fangelsunum á erlendum ríkisborgurum andæft

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í fjarfundi á vegum kanadískra stjórnvalda um ólögmæta fangelsisvistun á erlendum ríkisborgurum í pólitískum tilgangi.

    07. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með Sviatlönu Tsikhanouskayu

    Staða mannréttinda í Belarús og stuðningur íslenskra stjórnvalda við málstað umbótahreyfinga þar í landi voru aðalumræðuefnið á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Sviatlönu Tsikhanouskayu, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Belarús í morgun.

    06. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Aðför að mannréttindum til umræðu á NB8-fundi

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja ræddu öryggisáskoranir í Evrópu og aðför að mannréttindum og frelsi í álfunni á fjarfundi í dag. Auk þess var samstarf ríkjanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og nýafstaðin átök fyrir botni Miðjarðarhafs til umræðu á fundinum.

    03. feb. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Aðgerðir gegn mansali, Mannréttindi, Lög og réttur, Dómsmálaráðuneytið

    Mælt fyrir frumvarpi sem tekur á mansali

    Dómsmálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingar á mansalsákvæðum almennra hegningarlaga. Í frumvarpinu er lagt til að mansalsákvæði almennra hegningarlaga verði rýmkað með það fyrir augum að auka vernd þolenda mansals og greiða fyrir því að hægt sé að sækja brotamenn til saka.

    29. jan. 2021Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Vel heppnaður samráðsfundur um stöðu mannréttindamála

    Stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi hélt rafrænan samráðsfund með hagsmunaaðilum 27. janúar 2021 til þess að kynna ferlið við allsherjarúttektir Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttindamála (UPR) og bjóða gestum að koma með ábendingar eða tillögur um það sem leggja ætti áherslu á í næstu skýrslu Íslands

    21. jan. 2021Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Samráðsfundur um stöðu mannréttindamála

    Rafrænn samráðsfundur verður haldinn miðvikudaginn 27. janúar kl. 14:00 vegna þriðju allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hér á landi.

    16. des. 2020Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Fólk og félagasamtök leggi lóð á vogarskálar mannréttinda

    Undirbúningur er hafinn að þriðju allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála. Allsherjarúttektin felur í sér heildarúttekt á stöðu mannréttindamála innan aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna, en hún fer fram á u.þ.b. fimm ára fresti.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband