Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Norðurslóðir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 101–144 af 144
    Raða eftir:
    20. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Sjávarútvegur, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Þingsályktunartillaga um fullgildingu Norður-Íshafssamningsins

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu utanríkisráðherra um að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um fullgildingu samnings um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins.

    15. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Góður fundur Guðlaugs Þórs og Maas

    Öryggis- og varnarmál, málefni norðurslóða og alþjóðlegt viðskiptaumhverfi voru meðal helstu umræðuefna á tvíhliða fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, sem fram fór í Berlín fyrr í dag.

    10. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Efnahagssamvinna efst á baugi á Barentsráðsfundi

    Styrking efnahagslegrar samvinnu á Barentssvæðinu var aðalumræðuefnið á ráðherrafundi Barentsráðsins í Umeå í Svíþjóð í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti fundinn og tók um leið þátt í ráðstefnunni EU Arctic Forum.

    15. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Forsætisráðuneytið

    Pompeo fundaði með utanríkisráðherra og forsætisráðherra

    Viðskipti, málefni norðurslóða og öryggis- og varnarmál voru meðal umræðuefna á hádegisverðarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Michael Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem haldinn var í Hörpu í dag, en Pompeo var staddur hér á landi í vinnuheimsókn í boði Guðlaugs Þórs. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók einnig á móti Pompeo í Ráðherrabústaðnum í kurteisisheimsókn þar sem ráðherrarnir ræddu meðal annars loftslagsbreytingar, kjarnorkuafvopnun og norðurskautsmál auk þess sem þau ræddu tvíhliða samskipti landanna.

    29. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Viljayfirlýsing um norðurslóðasamstarf undirrituð

    Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Audun Halvorsen, aðstoðarutanríkisráðherra Noregs, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framhald rannsóknasamstarfs á sviði norðurslóðafræða.

    14. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Norðurslóðir í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Finnlands

    Tvíhliða samskipti Íslands og Finnlands, málefni norðurslóða, Norðurlandasamstarfið, Evrópumál og öryggis- og varnarmál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands, á fundi þeirra fyrr í dag sem fram fór á Síldarminjasafninu á Siglufirði. Soini, sem er staddur hér á landi í vinnuheimsókn, kynnti sér jafnframt atvinnulíf og starfsemi fyrirtækja á Tröllaskaga.

    04. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Mannréttindi, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór stýrði utanríkisráðherrafundi NB8 og Visegrad-ríkja

    Öryggis- og varnarmál, þróun mála í Evrópu og málefni Sameinuðu þjóðanna voru meðal umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja, sem lauk í Palanga, Litháen, fyrr í dag.

    10. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisráðherrar ræddu plastmengun, loftslagsbreytingar og líffræðilegan fjölbreytileika á Norðurslóðum

    Fundi umhverfisráðherra Norðurskautsríkjanna lauk í dag með umræðum um samvinnu ríkjanna í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, vörnum gegn mengun og vernd líffræðilegs fjölbreytileika. Fundurinn fór fram í Rovaniemi, höfuðstað Finnlands í Lapplandi.

    10. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Íslands og Danmerkur funduðu í Kaupmannahöfn

    Formennska Íslands í norrænni samvinnu og Norðurskautsráðinu, Brexit og tvíhliða samskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þór Þórðarsonar utanríkisráðherra og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur í Kaupmannahöfn í gær. Utanríkisráðherra kynnti sér jafnframt fyrirkomulag danskrar þróunarsamvinnu með þátttöku atvinnulífsins og sótti viðburði í tilefni fullveldisafmælis Íslands.

    09. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Fjárlagafrumvarpið: Aukin hagsmunagæsla vegna EES

    Aukin hagsmunagæsla vegna EES-samstarfsins, formennska Íslands í Norðurskautsráðinu og norrænu ráðherranefndinni og aukin framlög til þróunarsamvinnu eru á meðal helstu áherslna á málefnasviði utanríkisráðherra sem birtast í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2019.

    30. okt. 2018Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Utanríkismál

    Umbætur á samstarfi Norðurlandanna halda áfram

    Samstarfsráðherrar Norðurlandanna ákváðu á fundi í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Osló að breyta og bæta norrænt samstarf þannig að það nýtist íbúum sem best.

    30. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Umbætur á Norðurlandasamstarfinu halda áfram

    Á fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Osló var ákveðið að halda áfram með að breyta og bæta norrænu samstarfi þannig að það nýtist íbúum sem best.

    19. okt. 2018Innviðaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Leit og björgun, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Samgöngur og fjarskipti

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fjallaði um samgöngur á norðurslóðum

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fjallaði um sérstöðu og hlutverk Íslands í samgöngum á norðurslóðum í málstofu á Arctic Circle í dag.

    19. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Íslands og Japans ræddu norðurslóðamál

    Málefni norðurslóða, fríverslun og flug voru til umræðu á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Taro Kono, utanríkisráðherra Japans, á Keflavíkurflugvelli í morgun.

    19. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir

    Forsætisráðherra ávarpar Hringborð norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp við opnun Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle Assembly) í morgun. Forsætisráðherra lagði þunga áherslu á loftslagsmál og talaði um nýútkomna skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.

    15. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Landbúnaður, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Norski utanríkisráðherrann í vinnuheimsókn

    Utanríkisráðherra Noregs heimsótti í dag bændur í Borgarfirði sem ætla að selja hey til norskra bænda. Þau Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra ræddu ýmis málefni í vinnuheimsókn hennar hingað til lands.

    09. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherra og varaforseta Kína

    Aukin viðskipti Íslands og Kína, jarðhitasamstarf, loftslagsmál, norðurslóðamál og mannréttindi voru helstu umræðuefnin á fundum sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti með varaforseta og utanríkisráðherra Kína í Peking í dag.

    15. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Málefni frumbyggja á norðurslóðum í brennidepli

    Málefni frumbyggja, sjálfbær samfélög og sameiginlegar áskoranir á norðurslóðum voru til umræðu á málstofu í Norræna húsinu í dag. Utanríkisráðherra lagði í opnunarávarpi áherslu á að samvinna yrði lykilstef í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu.

    18. apr. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Norrænir utanríkisráðherrar funduðu í Stokkhólmi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sat fund utanríkisráðherra Norðurlanda sem haldinn var í Stokkhólmi í dag. Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins og helstu málefni á alþjóðavettvangi, þar á meðal stríðið í Sýrlandi, voru á meðal umræðuefna á fundinum.

    07. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ráðherrarnir ræddu öryggismál

    Tvíhliða samskipti Íslands og Danmerkur, öryggismál og leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í næstu viku voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, sem fram fór á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag.

    30. jan. 2018Utanríkisráðuneytið, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Brexit

    Ræddi EFTA, Brexit, öryggis- og varnarmál og þróunarsamvinnu í Ósló

    Málefni EFTA, Brexit, öryggis- og varnarmál og þróunarsamvinna voru meðal umræðuefna á fundum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra með norskum ráðamönnum í Osló í dag.

    18. jan. 2018Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Ræddi öryggisáskoranir á norðurslóðum hjá Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnuninni

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, gerði öryggisáskoranir á norðurslóðum að umtalsefni í ávarpi sem hann flutti í Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnuninni í Stokkhólmi (SIPRI) í dag. Ráðherra gerði grein fyrir þeim breytingum sem orðið hefðu í öryggismálum á Norður-Atlantshafi á undanförnum árum með vaxandi umferð rússneskra herflugvéla og kafbáta, sem og viðbrögðum Atlantshafsbandalagsins

    17. jan. 2018Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Brexit

    Ræddu tvíhliða samskipti, norræna samvinnu, Brexit og öryggismál

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, og Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar, funduðu í Stokkhólmi en Guðlaugur Þór er í föruneyti Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, sem staddur er í opinberri heimsókn í Svíþjóð.

    10. jan. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Utanríkismál

    EES-mál í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Frakklands

    Öryggismál á norðurslóðum, EES-mál, útganga Breta úr Evrópusambandinu og tvíhliða samskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands í París í morgun.

    28. des. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir

    Utanríkisráðherra endurnýjar samning við Norðurslóðanet Íslands

    Í dag undirrituðu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Eyjólfur Guðmundsson formaður stjórnar Norðurslóðanets Íslands og rektor Háskólans á Akureyri endurnýjaðan samstarfssamning til fjögurra ára.

    10. des. 2017Forsætisráðuneytið, Norðurslóðir

    Forsætisráðherra fundar með Ségolène Royal sendiherra Frakklands í málefnum norður- og suðurpóls

    ​Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, átti fund í dag með Ségolène Royal sendiherra Frakklands í málefnum norður- og suðurpóls. Á fundinum var rætt um góð samskipti og samstarf Frakklands og Íslands, málefni norðurslóða, umhverfis- og loftslagsmál, auk efnahagsmála.

    05. des. 2017Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Utanríkismál, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Samvinna og sjálfbærni á norðurslóðum

    Utanríkisráðherrafundi Norðurskautsráðsins, sem fram fór í Fairbanks í Alaska, lauk í gærkvöld en á fundinum, sem markar lok formennsku Bandaríkjanna í ráðinu og upphaf formennsku Finnlands, ræddu utanríkisráðherrar Norðurskautsríkjanna átta málefni norðurslóða og störf og áætlanir Norðurskautsráðsins til næstu ára.

    27. nóv. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkismál, Barnaréttur, Mannréttindi og jafnrétti

    Ársskýrsla formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu 2016-2017

    Í ársskýrslunni er farið yfir helstu verkefni og viðburði á formennskutímabilinu, en áherslur Íslands lutu að jafnréttismálum, lýðræði og málefnum barna.

    22. nóv. 2017Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ríkur samhljómur á samráðsfundi Íslands og Bretlands

    Embættismenn utanríkisráðuneytisins áttu í gær árlegan tvíhliða samráðsfund með háttsettum breskum embættismönnum til að efla enn frekar víðtækt samráð ríkjanna.

    20. nóv. 2017Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðrið dregur sífellt fleiri að

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra gerði þróun mála á norðurslóðum að umtalsefni í ræðu sinni á Hringborði norðurslóða, sem hófst í Edinborg, Skotlandi, í dag.

    17. okt. 2017Forsætisráðuneytið, Norðurslóðir

    Tvíhliða fundir forsætisráðherra í tengslum við Hringborð norðurslóða

    Í tengslum við Hringborð norðurslóða 13.-15. október sl., átti Bjarni Benediktsson forsætisráðherra nokkra tvíhliða fundi.

    14. okt. 2017Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Tryggja verði sjálfbæra þróun efnahags- og viðskiptalífs á norðurslóðum, í sátt við við umhverfið

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sagði að efnahagsþróun á norðurslóðum verði ekki aðeins að vera sjálfbær og taka tillit til viðkvæmra vistkerfa, hún eigi líka að nýtast þeim sem á svæðinu búa.

    13. okt. 2017Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Málefni norðurslóða og loftslagsmál rædd á fundum utanríkisráðherra

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fjölda funda í tengslum við Hringborð norðurslóða sem sett var í morgun í Hörpu, en um 2.000 þátttakendur frá yfir 50 ríkjum taka þátt í þinginu að þessu sinni.

    13. okt. 2017Forsætisráðuneytið, Norðurslóðir

    Forsætisráðherra ávarpar Hringborð norðurslóða

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, var í dag viðstaddur opnun Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle Assembly). Í ávarpi forsætisráðherra þakkaði hann formanni og stofnanda Hringborðs norðurslóða, Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrir framtakið og stöðugan innblástur. "Loftslagsbreytingar eru áskorun sem virða ekki landamæri, fullveldi ríkja eða alþjóðalög. Þetta er viðfangsefni sem ekkert ríki getur fengist við eitt og sér - en þarfnast alþjóðlegs átaks og samvinnu", sagði forsætisráðherra.

    22. sep. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Í ræðu sinni gagnrýndi Guðlaugur Þór meðal annars eldflauga- og kjarnavopnatilraunir Norður-Kóreustjórnar og efnavopnaárásir Sýrlandsstjórnar og lýsti áhyggjum af aðstæðum Rohingya í Myanmar.

    31. ágú. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Samstarfssamningur við Færeyjar og Grænland undirritaður

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Poul Michelsen, utanríkisráðherra Færeyja og Suka K. Frederiksen, utanríkisráðherra Grænlands. Á fundinum undirrituðu ráðherrarnir samstarfssamning milli landana .

    31. ágú. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ræddi stöðu mála á Kóreuskaganum við varautanríkisráðherra Kína

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Wang Chao, varautanríkisráðherra Kína, sem staddur var hér á landi. Ráðherrarnir ræddu m.a. málefni Norður-Kóreu, mannréttindamál, tvíhliða samskipti og norðurslóðir á fundi sínum.

    25. ágú. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Brexit

    Umræða um Brexit fyrirferðamikil á fundi NB8 ríkjanna

    Umræða um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, Brexit, var fyrirferðarmikil á á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Osló í dag og lagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra áherslu á mikilvægi þess að forðast nýjar viðskiptahindranir og að samningar næðust á endanum sem allir aðilar gætu vel unað við.

    22. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfismál á norðurslóðum í brennidepli nýrrar skýrslu

    Hnattræn hlýnun hefur einna mest áhrif á norðurslóðum en Norðurheimskautssvæðið hlýnar nú tvöfalt hraðar en önnur svæði jarðar að jafnaði. Ríki Evrópu eiga sinn þátt í þessari hröðu hlýnun en álfan getur einnig lagt sitt af mörkum til að sporna við frekari hlýnun í norðri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýlegri skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu um umhverfismál á norðurslóðum.

    12. jún. 2017Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Samstarf Íslands og Noregs heldur áfram að eflast

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Ine Marie Eriksen Søreide, utanríkisráðherra Noregs, í tengslum við utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins.

    12. jún. 2017Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Mikilvægt að standa vörð um stöðugleika

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu 5.-6. desember í Brussel m.a. um samvinnu Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins, samskiptin við Rússland, baráttuna gegn hryðjuverkum og stöðu mála í Norður Kóreu.

    12. jún. 2017Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Dómsmálaráðuneytið

    Reglubundið samráð um alþjóða- og öryggismál

    Reglubundinn samráðsfundur háttsettra íslenskra og bandarískra embættismanna um alþjóðamál og öryggis- og varnarmál fór fram í Washington DC í gær, þriðjudag.

    22. maí 2017Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Orka, Utanríkisviðskipti, Mannréttindi

    Ræddu samskipti Íslands og Kína

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Zhao Hongzhu, stjórnarmanni í miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins, sem staddur er hér á landi.

    12. jan. 2017Utanríkisráðuneytið, Auðlindir, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Norðurslóðir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Nýr samningur um stjórnun fiskveiða og vísindasamstarf í Norður-Íshafi

    Samkomulag hefur náðst á milli Bandaríkjanna, Danmerkur f.h. Færeyja og Grænlands, Íslands, Japan, Kanada, Kína, Noregs, Rússlands, Suður-Kóreu og Evrópusambandsins um drög að samningi sem kemur í veg fyrir stjórnlausar fiskveiðar í Norður-Íshafi ef ísinn þar hopar enn frekar og möguleikar til fiskveiða skapast.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband