25. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Almannatryggingar og lífeyrir
Hækkun frítekjumarka húsnæðisbóta 1. september 2025 vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem felur í sér að frítekjumörk húsnæðisbóta hækka frá og með 1. september nk. Hækkunin er gerð vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu sem taka gildi sama dag.
„Örorkulífeyrisgreiðslur munu almennt hækka þegar nýja kerfið tekur gildi. Til að koma í veg fyrir að lífeyrisþegar lendi í því að húsnæðisbætur þeirra skerðist vegna hækkunarinnar var nauðsynlegt að hækka frítekjumörk húsnæðisbótanna. Það hef ég nú gert og reglugerðin tekur gildi strax um mánaðarmótin,“ segir ráðherra.