12. maí 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, Úrskurðir
Mál nr. 173/2011
<p>Með hliðsjón af 3. mgr. 9. gr., c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar var ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi hafi ekki átt rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta á því tímabili sem hún var stödd erlendis og að fella skuli niður bótarétt hennar í tvo mánuði skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009 og 3. gr. laga nr. 153/2010, staðfest. Þá var einnig staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi ætti að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún þáði á þeim tíma, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.</p>