14. des. 2011Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál, Úrskurðir
Mál nr. 125/2011
<p>Ágreiningur um verðmat íbúðar. Kærandi telur verðmat fasteignar hans ekki gefa rétta mynd af raunvirði hennar þar sem umrætt mat var framkvæmt árið 2007, en síðar hafi komið í ljós ýmsir gallar á fasteigninni og að mikilla endurbóta sé þörf. Í mati löggilts fasteignasala kemur fram að matið sé byggt á skoðun sem sögð er hafa farið fram í júlí 2011, en sú skoðun virðist hafa farið fram með skoðun rafrænna gagna um fyrri sölu fasteignarinnar. Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er felld úr gildi og lagt fyrir Íbúðalánasjóð að taka málið til meðferðar að nýju.</p>