10. jún. 2011Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, Úrskurðir
Mál nr. 61/2011
Fjallað er um heimild til að gera námssamning í lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, en skv. 12. gr. laganna eru námsúrræði einn flokkur vinnumarkaðsaðgerða.
<p>Kærandi uppfyllti ekki skilyrði þess að fá gerðan námssamning við Vinnumálastofnun, þar sem hann hafði ekki starfað á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði áður en hann sótti um gerð námssamnings.</p>
<p>Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar var staðfest.</p>
<p> </p>