Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnahagsmál og opinber fjármál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 1179
    Raða eftir:
    15. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherra á fundi AGS og Alþjóðabankans

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra sótti ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans á Bali í Indónesíu, sem haldinn var 8.-14. október. Þar voru meðal annars til umræðu þær áskoranir sem fjölþjóðasamstarf stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að viðhalda slíku samstarfi og efla með nýrri tækni og nýjum leiðum.

    12. okt. 2018Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla: Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið

    Skýrsla starfshóps um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi.

    12. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið

    Gott regluverk og öflugt eftirlit, hagkvæmni í bankarekstri og traust eignarhald fjármálafyrirtækja eru þær þrjár meginstoðir sem framtíðarsýn íslensks fjármálakerfis þarf að mótast af. Þetta er niðurstaða starfshóps sem skipaður var í febrúar til að vinna hvítbók um fjármálakerfið, en hópurinn hefur lokið störfum og skilað skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra.

    09. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fundaði með fjármálaráðherra Noregs

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Siv Jensen, fjármálaráðherra Noregs, funduðu í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag, en Siv er stödd í óformlegri heimsókn hér á landi.

    28. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Álagning opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2017

    Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2017, sem er mánuði fyrr en á síðasta ári. Álögð gjöld eru samtals 186,8 ma.kr. sem er hækkun um 752 milljónir króna á milli ára, en breytingar einstakra skatttegunda eru bæði til hækkunar og lækkunar.

    25. sep. 2018Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla Félagsvísindastofnunar á ensku fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið - The 2008 Icelandic Bank Collapse: Foreign Factors

    The 2008 Icelandic Bank Collapse: Foreign Factors. A report for the Ministry of Finance and Economic Affairs.

    25. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Álit Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir heimsókn til Íslands

    Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur sent frá sér meðfylgjandi álit eftir tveggja vikna heimsókn til Íslands. Sendinefndin átti fundi með fulltrúum stjórnvalda, Seðlabanka Íslands, aðilum á vinnumarkaði og fulltrúum atvinnulífsins og fjármálastofnana.

    14. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður lánar Íslandspósti 500 milljónir króna til að styrkja lausafjárstöðu

    Ríkissjóður hefur veitt Íslandspósti 500 milljóna króna lán til allt að 12 mánaða til að styrkja lausafjárstöðu félagsins, með fyrirvara um heimild í fjáraukalögum.

    11. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Aukinn stuðningur við rannsóknir, þróun og nýsköpun

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á Alþingi mælt fyrir frumvarpi um að auka stuðning við rannsóknir og þróun fyrirtækja og stuðla þannig að enn frekari nýsköpun. Lagt er til að núgildandi viðmiðunarfjárhæðir endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar tvöfaldist, hækki úr 300 m.kr. í 600 m.kr.

    08. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fulltrúar kínverska kommúnistaflokksins funduðu með fjármála- og efnahagsráðherra

    Fulltrúar kínverska kommúnistaflokksins, CPC, heimsóttu Ísland á dögunum og óskuðu eftir fundi með Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Á fundinum kynntu fulltrúar CPC hugmyndir flokksins að auknu samstarfi við önnur ríki.

    02. sep. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Yfirlýsing Norður- og Eystrasaltslandanna um fjármálastöðugleika

    Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing hlutaðeigandi ráðuneyta, seðlabanka, fjármálaeftirlita og skilavalda (resolution authorities) á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum um samvinnu landanna og samræmingu á sviði fjármálastöðugleika.

    29. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sigurður Skúli Bergsson settur tollstjóri

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sett Sigurð Skúla Bergsson, aðstoðartollstjóra, tímabundið í embætti tollstjóra frá 1. október næstkomandi, þar til skipað hefur verið í stöðuna.

    20. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla starfshóps um endurskoðun skattlagningar ökutækja og eldsneytis

    Starfshópur sem unnið hefur að endurskoðun skattlagningar ökutækja og eldsneytis hefur skilað skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra.

    06. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Standard og Poor's

    S&P staðfestir óbreyttar A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfesti í dag A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldir í innlendum og erlendum gjaldmiðlum með stöðugum horfum.

    06. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Fitch staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtímaskuldir í erlendri mynt sem A með stöðugum horfum. Samkvæmt matsfyrirtækinu endurspeglar þessi einkunn á annan bóginn háar þjóðartekjur, sterkar stofnanir, góð lífskjör og gott viðskiptaumhverfi og á hinn bóginn að hagkerfið reiðir sig að stórum hluta á hrávörur í útflutningi og er næmt fyrir ytri áföllum auk fyrri reynslu af sveiflum í efnahags- og fjármálum.

    03. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals lokið og viðurkenningar veittar

    Í dag lauk á jafnréttisþingi tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals sem staðið hefur frá árinu 2013. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra veitti þátttakendum viðurkenningar en markmið verkefnisins var að prófa jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012 og átta sig á umfangi innleiðingar hans, ávinningi og áskorunum.

    03. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Kynntu samstarfs- og fjárfestingartækifæri hjá Endureisnar- og þróunarbanka Evrópu

    Fjárfestingartækifæri og tækifæri til samstarfs milli fyrir íslenskra fyrirtækja og Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD)voru kynnt á fundi í Hörpu í dag. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Íslandsstofa og Íslenski jarðvarmaklasinn stóðu að fundinum þar sem einnig var farið almennt yfir starfsemi bankans.

    01. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður greiðir 19 milljarða króna inn á lífeyrisskuldbindingar

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið staðfesti í dag samkomulag við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR) um framsal eigna fyrir 19 milljarða króna, sem voru hluti af svonefndum stöðugleikaframlögum fallinna fjármálafyrirtækja. Framsalið er gert á grundvelli heimildar í fjáraukalögum fyrir árið 2017 sem Alþingi samþykkti 30. desember sl.

    20. júl. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Moody‘s

    Moody’s breytir horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í jákvæðar úr stöðugum

    Matsfyrirtækið Moody’s Investors Service breytti í kvöld horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í jákvæðar úr stöðugum og staðfesti lánshæfiseinkunnina A3 fyrir langtímaskuldbindingar.

    12. júl. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfestir óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfesti í dag óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar í erlendum og innlendum gjaldmiðli með stöðugum horfum

    12. júl. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Matsfyrirtækið Fitch staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldir í erlendum gjaldmiðli sem A með stöðugum horfum.

    12. júl. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sóknarfrumvarp samþykkt: Fjárlög 2019 afgreidd frá Alþingi

    Fjárlög fyrir árið 2019 voru samþykkt á Alþingi í dag. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2011 sem fjárlög eru samþykkt í fyrstu heilu viku desember, eins og kveðið er á um í þingskapalögum.

    12. júl. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á lögum - losun fjármagnshafta á aflandskrónueigendur og framkvæmd bindingarskyldu á fjármagnsinnstreymi

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum nr. 37/2016, um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.

    02. júl. 2018Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Brugðist við athugasemdum ESA með frumvarpi til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki

    Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) birti í dag fréttatilkynningu varðandi rökstutt álit ESA um að íslensk stjórnvöld hafi ekki innleitt þrjú ákvæði tilskipunar 2001/24/EB um endurskipulagningu og slitameðferð lánastofnana með fullnægjandi hætti í íslenskan rétt.

    21. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nefnd um aukna skilvirkni í skattframkvæmd, álagningu og innheimtu opinberra gjalda

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað nefnd um aukna skilvirkni í skattframkvæmd, álagningu og innheimtu opinberra gjalda.

    21. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Óskað eftir umsögnum um drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið óskar eftir umsögnum á samráðsgátt stjórnvalda um drög að lagafrumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð.

    14. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Endurskoða tekjuskatts- og bótakerfi einstaklinga og fjölskyldna

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað tvo hópa til að vinna að endurskoðun tekjuskatts- og bótakerfa hjá einstaklingum og fjölskyldum.

    13. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla um lagaumgjörð Fjármálaeftirlitsins

    Hinn 24. ágúst 2017 skipaði þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp sem fékk það verkefni að endurskoða lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, lög um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi auk ákvæða annarra laga um fjármálamarkaði eða fjármálafyrirtæki, sem tengjast eftirliti með markaðnum.

    11. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddu breytingar í umhverfi fjármálastofnana á fundi ráðherra fjármála- og efnahagsmála í Brussel

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sótti í dag árlegan fund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Fundurinn fór fram í Brussel.

    04. jún. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun 2019-2023: Blásið til sóknar í umhverfismálum

    Samkvæmt tillögu að fjármálaáætlun 2019-2023 er gert ráð fyrir að aukning heildarframlaga til umhverfismála yfir tímabilið 2019 til 2023 nemi 35% raunvexti frá árinu 2017. Uppsafnað aukið útgjaldasvigrúm til ýmissa áherslumála nemur alls 14,7 ma. króna yfir tímabilið.

    04. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Sveitarstjórnir og byggðamál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið

    Nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga árin 2019-2023 var undirritað í dag. Samkomulagið var undirritað af fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Það byggir á lögum um opinber fjármál sem hafa að markmiði að ríki og sveitarfélög stuðli að góðri hagstjórn og styrkri og ábyrgri stjórn opinberra fjármála.

    02. jún. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvítbók um fjármálakerfið

    Fjármála- og efnahagsráðherra hyggst skipa starfshóp sem vinna á hvítbók um framtíðarsýn og stefnu fyrir fjármálakerfið á Íslandi, í samræmi við stjórnarsáttamála ríkisstjórnarinnar. Markmiðið er að skapa traustan grundvöll fyrir umræðu, stefnumörkun og ákvarðanatöku um málefni er varða fjármálakerfið, framtíðargerð þess og þróun.

    29. maí 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aðgengileg og notendavæn framsetning álagningar opinberra gjalda

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti á blaðamannafundi í morgun breytta framsetningu álagningar opinberra gjalda sem birt verður í vikunni, þar sem markmiðið er að upplýsingar séu aðgengilegar og notendavænar.

    17. maí 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Forkaupsréttur ríkisins í tengslum við frumskráningu Arion banka

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Kaupþing hafa náð niðurstöðu um framkvæmd ákvæðis 3.6 í afkomuskiptasamningi íslenska ríkisins, Kaupþings hf. og dótturfélags þess Kaupskila ehf. frá 13. janúar 2016. Í ákvæðinu felst að forkaupsréttur ríkisins við sölu hlutabréfa í Arion banka skuli aðlagaður við skráningu bankans á markað.

    11. maí 2018Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Nýsköpun hjá hinu opinbera kortlögð í fyrsta sinn

    Á dögunum fengu um 800 stofnanir ríkis og sveitarfélaga senda könnun sem ætlað er að kortleggja nýsköpun hjá hinu opinbera og um leið efla hana. Könnunin, sem nefnist Nýsköpunarvogin, er samnorræn en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í slíkri könnun.

    11. maí 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framgangur áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur brit greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    07. maí 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla starfshóps um gildisdagsetningar í virðisaukaskatti

    Starfshópur sem skipaður var til að fara yfir gildisdagsetningar í virðisaukaskatti hefur lokið störfum og skilað skýrslu til ráðherra.

    27. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framgangur áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra birti í dag greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    20. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherrar Íslands og Noregs funda í Washington

    ​Fjármálaráðherra Noregs, Siv Jensen, segist sýna því fullan skilning að Ísland þurfi í sumum tilvikum að óska eftir aðlögun vegna regluverks Evrópusambandsins áður en það er tekið upp í EES-samninginn, en þau Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra Íslands, funduðu í Washington í dag.

    18. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Alþjóðlegur samningur gegn skattaflótta tekur gildi á árinu

    Alþjóðasamningurinn MLI, sem ætla er að stemma stigu við skattaflótta, og sem Ísland undirritaði í fyrra, tekur gildi 1. júlí á þessu ári gagnvart þeim ríkjum sem fullgilt hafa samninginn. Undirritunaraðilar samningsins eru nú 78 og hafa yfir 100 ríki lýst vilja til að undirrita samninginn. Samningurinn er sá eini sinnar tegundar og með gerð hans eru unnt að breyta þúsundum tvísköttunarsamninga án þess að stjórnvöld í hverju ríki þurfi að fara í tímafrekar tvíhliða viðræður við hvern og einn samningsaðila.

    13. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður kaupir eigin bréf fyrir 27 milljarða króna

    Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 27 ma.kr. Um er að ræða bréf í flokknum RIKH 18 fyrir um 4,7 ma.kr. að nafnvirði og í flokknum RIKB 19 fyrir um 21,6 ma.kr. að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fór fram í dag.

    13. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ýmsir þættir skattkerfisins til endurskoðunar á næstu árum

    Næstu árin verða ýmsir þættir íslenska skattkerfisins til endurskoðunar, til hagsbóta fyrir einstaklinga og fyrirtæki, eins og sjá má í nýframkominni fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir tímabilið 2019-2023. Þar verður m.a. horft til þess að gera Ísland samkeppnishæfara í alþjóðlegum samanburði, auk þess að gera skattheimtu einfaldari, skilvirkari og sanngjarnari.

    04. apr. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun 2019-2023: Styrkari samfélagsinnviðir, lægri skattar og betri þjónusta

    Í fyrstu fjármálaáætlun ríkisstjórnar Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks endurspeglast áherslur ríkisstjórnarinnar um að samfélagið allt njóti góðs af yfirstandandi hagvaxtarskeiði og að samfélagslegur stöðugleiki og lífsgæði verði treyst til framtíðar.

    04. mar. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vinnur tímabundið fyrir stjórnvöld að málefnum sem tengjast fjármálakerfinu

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Michael Ridley um að hann vinni tímabundið fyrir stjórnvöld að málefnum sem tengjast fjármálakerfinu á Íslandi.

    28. feb. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áætlaður fjárhagslegur ávinningur ríkissjóðs vegna Kaupþings/Arion banka rúmir 150 ma.kr.

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur til nánari skýringar tekið saman yfirlit yfir fjárhagsleg áhrif vegna endurreisnar Arion banka í kjölfar fjármálaáfallsins 2008 og tekna af stöðugleikaframlagi Kaupþings í ríkissjóð í tengslum við samning slitabúsins við Seðlabanka Íslands vegna veitingar undanþágu frá gjaldeyrishöftum. Áður hefur komið fram að þessi áhrif nema samanlagt ríflega 150 ma.kr. og sundurliðast sú fjárhæð sem hér segir:

    23. feb. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður selur 13% hlut í Arion banka til Kaupskila

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur, að undangengnu samráði við ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins og ríkisstjórn, fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á 13% hlut ríkissjóðs í Arion banka til Kaupskila ehf. (dótturfélags Kaupþings ehf.) fyrir 23,4 milljarða króna. Salan fer fram á grunni kaupréttar á hlutnum samkvæmt hluthafasamkomulagi frá árinu 2009 og lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum nr. 155/2012 en 2. mgr. 1. gr. laganna fjallar sérstaklega um sölu vegna m.a. kaupréttarákvæðisins er tengist Arion banka auk þess sem heimild hefur verið í fjárlögum sem Alþingi hefur samþykkt árlega frá og með fjárlögum ársins 2014.

    23. feb. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Drög að skýrslu starfshóps um skattlagningu ökutækja og eldsneytis birt á samráðsgátt

    Hinn 5. febrúar 2016 skipaði fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp sem falið var að taka skattlagningu ökutækja og eldsneytis til endurskoðunar. Nánari upplýsingar um starfshópinn og verkefni hans má finna á vefsíðu stjórnarráðsins. Starfshópurinn hefur átt fundi með nokkrum fjölda haghafa ásamt því sem honum bárust ýmsar upplýsingar og ábendingar eftir að þeirra hafði verið leitað.

    16. feb. 2018Rit og skýrslur, Mannauðsmál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um starfshóps um málefni kjararáðs

    febrúar 2018 / Forsætisráðuneytið Skýrsla um starfshóps um málefni kjararáðs Í skýrslu hópsins er að finna samanburð fyrirkomulags við launaákvarðanir hjá kjörnum fulltrúum, dómurum og æðstu embættismönnum á Íslandi og í nágrannalöndunum, greining á úrskurðum kjararáðs og samanburður við launaþróun annarra starfsgreina. Þá var hópnum falið að gera tillögur að breyttu fyrirkomulagi og úrbótum

    15. feb. 2018Forsætisráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Niðurstöður starfshóps um kjararáð

    Starfshópur um málefni kjararáðs sem forsætisráðherra skipaði hinn 23. janúar sl. hefur lokið störfum.

    10. feb. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Japan tekur gildi 31. október 2018

    Þann 1. október 2018 fóru fram í Reykjavík skipti á fullgildingarskjölum vegna nýs tvísköttunarsamnings við Japan sem undirritaður var þann 15. janúar 2018.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband