11. ágú. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Málefni eldra fólks, Félags- og fjölskyldumál, Hagsýn í rekstri
Ríki og sveitarfélög taka höndum saman um gagnaöflun og stafræna þróun í velferðarþjónustu
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga landsins, munu ráðast í samstarf um öflun og nýtingu gagna í velferðarþjónustu og stafræna þróun hins opinbera. Markmiðið er að taka saman upplýsingar frá ólíkum þjónustuaðilum og stofnunum þannig að yfirsýn fáist yfir aðstæður þeirra sem þurfa á þjónustu að halda og stuðlað sé að samfellu í þjónustunni. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafa undirritað samkomulag þess efnis.