11. nóv. 2010Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál, Úrskurðir
Mál nr. 9/2010
Málskotsheimild kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, sbr. lög nr. 77/2001 og lög nr. 66/2010. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Þar sem ágreiningur í máli þessu fellur utan við valdsvið úrskurðarnefndarinnar, er málinu vísað frá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála.