11. jún. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál
Ræddi húsnæðismál við norræna ráðherra
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sótti í gær norrænan ráðherrafund um húsnæðismál sem fram fór í Helsinki í Finnlandi. Ráðherrarnir ræddu meðal annars um þau áhrif sem skortur á húsnæði á viðráðanlegu verði hefði og um væntanlega samevrópska húsnæðisstefnu, hvaða skref væri vænlegt að stíga á samevrópskum vettvangi og hvað leystist best í einstaka ríkjum.