09. okt. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Lyfjamál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Mikilvægt að takmarka útbreiðslu sýklalyfjaónæmis
Á árinu 2019 undirrituðu Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, yfirlýsingu um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. Í kjölfarið skipuðu ráðherrarnir stýrihóp um varnir gegn sýklalyfjaónæmum bakteríum sem vinnur að framgangi aðgerðaáætlunar sem markar stefnu stjórnvalda í málaflokknum. Auk þess settu ráðherrarnir á fót Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð sem fjármagnar verkefni í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi, fjármögnuðu nýjar stöður sérfræðinga í sýklalyfjaónæmi í þremur stofnunum auk fleiri verkefna. Ríkisstjórnin lýsti því yfir á árinu 2019 að hún ætli að vera í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.