02. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Endurskoðaður rammasamningur ríkis og bænda undirritaður
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
„Það er afskaplega ánægjulegur áfangi að hafa nú lokið við endurskoðun á öllum fjórum búvörusamningunum á þessu kjörtímabili. Að baki er mikil vinna með umfangsmiklum breytingum á starfsskilyrðum íslensks landbúnaðar til hins betra. Í samkomulaginu sem nú var undirritað er að finna ákvæði sem ég er sannfærður um að muni styrkja undirstöður landbúnaðarins, m.a. ákvæði um að ný landbúnaðarstefna fyrir Ísland, sem mun liggja fyrir í vor, verði grunnur að endurskoðun búvörusamninga árið 2023.…