Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1251–1300 af 1835
    Raða eftir:
    14. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Líf og heilsa, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hagstæð aldurssamsetning skýrir lægri útgjöld til heilbrigðismála

    Framlög til heilbrigðismála hafa hækkað verulega á Íslandi síðustu ár. Frá því að núverandi ríkisstjórn tók við hafa þau fengið meira vægi og vaxið um rúmlega 28% frá árinu 2017. Íslenska þjóðin er ung í alþjóðlegum samanburði, sem hefur í för með sér að útgjaldabyrði vegna heilbrigðismála er minni hér á landi en í nágrannalöndunum.

    13. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Mikilvægar breytingar í þágu sykursjúkra

    Fólki með insúlínháða sykursýki mun fljótlega standa til boða nýr búnaður sem gerir notendum kleift að fylgjast á einfaldan hátt með blóðsykri sínum og stuðlar þannig m.a. að markvissari meðferð. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur undirritað reglugerð sem tryggir niðurgreiðslu búnaðarins og kveður jafnframt á um breytingu í þágu þeirra sem ekki geta eða eiga kost á að nýta sér fyrrnefndan búnað, þannig að sömu reglur gildi fyrir alla, ólíkt því sem verið hefur.

    13. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Nefnd um menntun hjúkrunarfræðinga og fjölgun í stéttinni

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað nefnd til að fjalla um menntun hjúkrunarfræðinga og gera tillögur um aðgerðir sem leitt geta til þess að fleiri útskrifist með hjúkrunarfræðimenntun. Nefndinni er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. mars næstkomandi.

    11. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfsstjórn tekin til starfa á Reykjalundi

    Sérstök þriggja manna starfsstjórn Reykjalundar sem sett hefur verið á fót fyrir tilstilli heilbrigðisráðherra var kynnt fyrir starfsfólkinu þar í morgun. Starfsstjórnin hefur fullt sjálfstæði og óskorað umboð til athafna við stjórnun stofnunarinnar meðan unnið verður að því að aðgreina rekstur endurhæfingarþjónustu Reykjalundar frá annarri starfsemi og eignum SÍBS. Stefán Yngvason endurhæfingarlæknir verður formaður starfsstjórnarinnar en aðrir stjórnarmenn eru Anna Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur og Óskar Jón Helgason, sjúkraþjálfari.

    06. des. 2019Líf og heilsa, Neytendamál, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skimun fyrir sjúkdómsvaldandi bakteríum í kjöti á markaði 2018

    Skimunin sýnir að STEC E. coli finnst bæði í kjöti af íslensku sauðfé og nautgripum. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Matvælastofnunar. Þetta er í fyrsta sinn sem skimað er fyrir þessari eiturmyndandi tegund E. coli í kjöti af sauðfé og nautgripum hérlendis. Salmonella og kampýlóbakter greindust ekki í svína- og alifuglakjöti að undanskilinni salmonellu sem fannst í einu sýni af svínakjöti. Ljóst er að mikill árangur hefur náðst með forvörnum og eftirliti í eldi og við slátrun alifugla og svína.

    06. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál

    Opinn kynningarfundur um heilbrigðisstefnu til ársins 2030

    Efnt var til opins kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu í Hofi á Akureyri 12. júní. Fjallað var um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

    04. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðningur við aldraða til sjálfstæðrar búsetu verði aukinn

    Efnt verður til samstarfsverkefnis með áherslu á heilsueflingu aldraða og markvissari þjónustu við þá sem þurfa stuðning til að geta búið á eigin heimili vegna heilsubrests. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu heilbrigðisráðherra þessa efnis á fundi sínum í dag. Undirbúningur verkefnisins verður á hendi ráðuneyta heilbrigðis- forsætis- félags- og fjármála, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Embættis landlæknis og mun starfshópur þessara aðila skila tillögum um fyrirkomulag þess til heilbrigðisráðherra í júní næstkomandi.

    29. nóv. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum á Akranesi fjölgað um fjögur

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Höfða á Akranesi varanlega rekstrarheimild fyrir fjórum hjúkrunarrýmum sem þar hafa verið rekin tímabundið sem biðrými fyrir Landspítalann.

    28. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Löngu tímabær endurskoðun lyfjalaga

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Gildandi lög voru sett fyrir aldarfjórðungi og hefur síðan þá verið breytt tæplega fimmtíu sinnum. Miklar breytingar hafa orðið á sviði lyfjamála frá samþykkt gildandi laga árið 1994 og heildarendurskoðun laganna því nauðsynleg og löngu tímabær segir ráðherra.

    28. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilsueflandi móttökur settar á fót um allt land

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 200 milljónum króna af fjárlögum næsta árs til að koma á fót heilsueflandi móttökum um allt land innan heilsugæslunnar. Framlagið kemur til viðbótar 130 milljónum króna sem ráðherra hefur ákveðið að verja til að efla þjónustu heimahjúkrunar. Móttökurnar verða ætlaðar eldra fólki og einstaklingum með fjölþætt eða langvinn heilsufarsvandamál. Markmiðið að tryggja þessum hópi þverfaglega og heildstæða heilbrigðisþjónustu og innleiða skipulagða heilsuvernd fyrir aldraða.

    27. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hámarksgeymslutími kynfruma lengdur

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð um tæknifrjóvgun þannig að hámarksgeymslutími kynfruma verði lengdur úr tíu árum í tuttugu. Breytingin er einkum til hagsbóta fyrir ungt fólk sem af einhverjum ástæðum vilja geyma kynfrumur sínar lengur en nú er heimilt, til dæmis vegna illkynja sjúkóma, kynleiðréttingarferlis eða af öðrum ástæðum.

    25. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bygging 60 rýma hjúkrunarheimilis í Árborg hafin

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Árborgar tóku fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili fyrir íbúa sveitarfélaga á Suðurlandi síðastliðinn föstudag. Byggingaframkvæmdir hefjast af fullum krafti í desember. Stefnt er að því að hjúkrunarheimilið verði tilbúið til notkunar haustið 2021. Með tilkomu heimilisins fjölgar hjúkrunarrýmum á svæðinu um 25 frá því sem nú er.

    21. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðnings- og ráðgjafarteymi langveikra barna með sjaldgæfa sjúkdóma tekið til starfa

    Stuðnings- og ráðgjafarteymi langveikra barna með sjaldgæfa sjúkdóma með miklar stuðningsþarfir hefur tekið til starfa á Landspítala. Teymið var sett á fót fyrir tilstilli 40 milljóna króna framlags heilbrigðisráðherra til spítalans í þessu skyni.

    21. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Endurnýjun sjúkrabílaflotans hafin – 25 nýir bílar keyptir

    Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um kaup á 25 nýjum sjúkrabílum liggur fyrir í kjölfar útboðs Ríkiskaupa. Þar með er endurnýjun sjúkrabílaflotans hafin í samræmi við samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins á Íslandi frá 11. júlí síðastliðnum. Reiknað er með að fyrstu bílarnir verði afhentir fullbúnir til notkunar í september á næsta ári. Frá þessu er sagt í tilkynningu á vef Sjúkratrygginga Íslands.

    19. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vel heppnað heilbrigðisþing að baki

    Fjölmennt var á heilbrigðisþingi um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu síðastliðinn föstudag og margir fylgdust með þinginu í beinni útsendingu á vefnum. Hægt er að nálgast upptöku af þinginu í heild, glærur fyrirlesara hafa verið gerðar aðgengilegar og sömuleiðis fjöldi ljósmynda sem teknar voru af fyrirlesurum og gestum þingsins meðan á því stóð.

    15. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bein útsending frá heilbrigðisþingi

    Heilbrigðisþing er haldið í dag. Á fjórða hundrað manns eru skráð á þingið og komast færri að en vilja. Hér er hægt að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu sem hefst kl. 9.00 með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.

    14. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þarfir í sjöunda veldi

    Guðlaug Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, hefur í starfi sínu lagt áherslu á innleiðingu rauntímamæla, gæða og öryggisvísa. Hún hefur starfað við stjórnun heilbrigðisþjónustu í yfir tuttugu ár og setið í innlendum og erlendum fagnefndum innan heilbrigðisþjónustu. Guðlaug Rakel er meðal fyrirlesara á heilbrigðisþinginu á morgun og heldur þar erindi sem hún kallar „þarfir í sjöunda veldi."

    13. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Lausnir 21. aldarinnar við langvinnum sjúkdómum - umfjöllunarefni á heilbrigðisþingi 2019

    Langvinnir lífsstílstengdir sjúkdómar eiga þátt í allt að 86% dauðsfalla í Vestur-Evrópu og taka til sín um 70-80% alls kostnaðar sem tengist heilbrigðismálum. Marga þessara sjúkdóma og dauðsfalla er hægt að fyrirbyggja eða takmarka með markvissu forvarnastarfi og lífsstílsmeðferð. ,,Í ljósi þess er óskiljanlegt að Íslendingar verji aðeins um 1,6% af heilbrigðisútgjöldum í forvarnir" segja þeir Tryggvi Þorgeirsson læknir og lýðheilsufræðingur og Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala. Á heilbrigðisþinginu á föstudaginn munu þeir fjalla um þetta og ræða hvernig auka megi þátttöku og virkni fólks í eigin meðferð, fyrirbyggja sjúkdóma og nýta betur ýmis gögn og tækni með aðferðum 21. aldarinnar.

    13. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjallað um lýðheilsu og mikilvægi heilsulæsis á heilbrigðisþingi

    Mikilvægi heilsulæsis í lýðheilsustarfi, jafnt í heilsueflingu og forvörnum verður umfjöllunarefni Dóru Guðrúnar Guðmundsdóttur sálfræðings og doktors í lýðheilsuvísindum, á heilbrigðisþinginu næstkomandi föstudag.

    12. nóv. 2019Fullnusta refsinga, Heilbrigðismál, Mannréttindi, Líf og heilsa, Dómsmálaráðuneytið

    Aðgerðaráætlun um heilbrigðisþjónustu fanga

    Dómsmála- og heilbrigðisráðherra hafa samþykkt aðgerðaráætlun um aðgerðir í heilbrigðismálum í fangelsum og úræðum vegna vímuefnavanda fanga.

    12. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla OECD um heilbrigðismál

    Hægt er að lesa ýmsar upplýsingar um heilsufar þjóða, helstu áhættuþætti, gæði og árangur heilbrigðiskerfa, heilbrigðisútgjöld, lyfjanotkun, mönnun heilbrigðiskerfisins og margt fleira í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD); Health at a Glance þar sem birtur er samanburður milli aðildarríkja stofnunarinnar.

    11. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Forgangsröðun í fjárveitingum til umfjöllunar á heilbrigðisþingi 15. nóvember

    Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar og framkvæmdastjóri bráða- og þróunarsviðs Sjúkrahússins á Akureyri er meðal fyrirlesara á heilbrigðisþingi næstkomandi föstudag. Þar ræðir hún um nauðsyn þess að forgangsraða fjárveitingum svo íslenskt heilbrigðiskerfi standi undir því markmiði að tryggja örugga og hagkvæma heilbrigðisþjónustu þar sem aðgengi landsmanna er tryggt og þjónusta á heimsmælikvarða.

    10. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Dagskrá heilbrigðisþings 15. nóvember 2019

    Athygli er vakin á drögum að dagskrá heilbrigðisþings 15. nóvember 2019 þar sem fjallað verður um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Þingið verður haldið á Hótel Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá 8.30 – 16.00. Skráning fer fram á vefnum heilbrigdisthing.is og er fólk hvatt til að skrá sig með góðum fyrirvara.

    10. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins á sviði heilbrigðismála. Heilbrigðisráðherra mun leggja áherslu á að styrkja verkefni sem lúta að heilsueflingu aldraðra og kvennaheilsu. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 11. nóvember nætkomandi.

    09. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjárlagafrumvarpið: Helstu áherslur í heilbrigðismálum

    Stóraukin framlög til þjónustu við aldraða, styrking heilsugæslunnar, auknir fjármunir til að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga, efling geðheilbrigðisþjónustu og aukið fé til að innleiða ný lyf.

    07. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samkomulag um kaup og rekstur sjúkrabifreiða

    Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa náð samkomulagi um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabifreiða. Heilbrigðisráðherra staðfesti samkomulagið við undirritun þess í dag. Tafarlaust verður ráðist í kaup á 25 nýjum sjúkrabifreiðum samkvæmt útboði sem nú stendur yfir og má vænta þess að fyrstu bílarnir verði teknir í notkun á árinu 2020.

    07. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Rúmum 400 milljónum kr. úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 400 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar og endurbóta á hjúkrunarheimilum um land allt. Úthlutunin er í samræmi við tillögu stjórnar sjóðsins.

    04. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum: Birting útboðsgagna

    Undirbúningi að fyrsta sameiginlega norræna lyfjaútboðinu er lokið og útboðsgögn hafa nú verið birt. Vonir standa til að samvinnan geti meðal annars aukið afhendingaröryggi lyfja sem skortur hefur verið á að undanförnu.

    03. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Staðreyndir um mislinga á heimsvísu

    Dauðsföllum af völdum mislinga á heimsvísu fækkaði um 80% milli áranna 2000 og 2017 vegna aukinnar áherslu á bólusetningu. Áætlað er að bólusetning fyrir mislingum hafi komið í veg fyrir 21,1 milljón dauðsfalla á þessu árabili. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur tekið saman staðreyndir um mislinga og bólusetningu við þeim og segir stofnunin bólusetningu við sjúkdómnum með ábatasömustu fjárfestingum til að efla lýðheilsu.

    03. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um bætt skipulag krabbameinsskimana

    „Með markvissum skimunum er hægt að ná enn betri árangri í baráttunni gegn krabbameini" segir í blaðagrein Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag. Ráðherra fjallar þar um áformaðar breytingar á fyrirkomulagi skimana í samræmi við tillögur skimunarráðs og Embættis landlæknis sem tengjast einnig innleiðingu íslenskrar krabbameinsáætlunar.

    02. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Upphaf stefnumótunar í málefnum fólks með heilabilun

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Jóni Snædal öldrunarlækni að móta drög að stefnu í málefnum fólks með heilabilun. Í þeirri vinnu verði lögð áhersla á þverfaglegt samstarf þjónustuveitenda og á samráð við sjúklingahópinn og aðstandendur fólks með heilabilun.

    02. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Nýjar reglur munu auka öryggi lyfjanotenda

    Nýjar reglur um merkingu lyfjaumbúða tóku gildi laugardaginn 9. febrúar. Reglunum er ætlað að draga úr líkum á því að fölsuð lyf rati inn í keðju löglegrar lyfjaframleiðslu og auka þar með öryggi notenda.

    01. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Starfshópur fjallar um skipulag líknar- og lífslokameferðar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi.

    31. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Dr. Göran Hermerén á heilbrigðisþinginu 15. nóvember

    Dr. Göran Hermerén, prófessor emeritus við háskólann í Lundi í Svíþjóð flytur inngangserindi heilbrigðisþingsins 2019 sem haldið verður 15. nóvember næstkomandi. Upplýsingar um fyrirlesara og erindi þeirra, drög að dagskrá og form til að skrá þátttöku á þinginu er á www.heilbrigdisthing.is.

    31. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aukin þjónusta með opnun endurhæfingarrýma á Sauðárkróki

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu stjórnenda Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) um að koma á fót aðstöðu með allt að fjórum rýmum til almennrar endurhæfingar við starfsstöð stofnunarinnar á Sauðárkróki. Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN segir þetta framfaraskref sem styrki starfsemina á Sauðárkróki og geri kleift að bjóða fleirum en ella endurhæfingu í nærumhverfi sínu.

    25. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Líf og heilsa

    Málþing um örplast og lyfjaleifar í íslensku umhverfi

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðar til málþings 31. október þar sem kynntar verða niðurstöður skýrslna um helstu uppsprettur örplasts á Íslandi og lyfjaleifar í íslensku umhverfi.

    24. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Styrkir til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu 2019. Tilgangur styrkjanna er að stuðla að umbótum, nýbreytni og auknum gæðum í heilbrigðisþjónustunni. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember næstkomandi.

    24. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Líf og heilsa

    „Aðgát skal höfð…“ Morgunverðarfundur 31. október

    Viðmið í umfjöllun um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum verða kynnt á morgunverðarfundinum „Aðgát skal höfð“ sem heilbrigðisráðuneytið boðar til á Grand hótel 31. október næstkomandi. Viðmiðin eru afrakstur starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að setja fram leiðbeiningar um hvernig best megi fjalla um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum án þess að ala á fordómum gagnvart fólki með geðrænan vanda. Hópurinn var skipaður í samræmi við ályktun Alþingis stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum og skilaði ráðherra skýrslu sinni í dag.

    24. okt. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra skrifar um kosti rafrænna fylgiseðla

    Þann 18. október síðastliðinn var haldinn hér á landi fjölmennur fundur íslenskra og erlendra sérfræðinga í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Umfjöllunarefni fundarins voru kostir rafrænna fylgiseðla lyfja með lyfjum en Ísland hefur haft forystu um innleiðingu rafrænna fylgiseðla á norrænum vettvangi. Innleiðing rafrænna fylgiseðla hefur verið eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar og er einnig sett fram sem markmið í ályktun Alþingis um lyfjastefnu til ársins 2020.

    22. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjölmennur vinnufundur um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu

    Undirbúningur að mótun þingsályktunartillögu um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu hófst formlega með fjölmennum vinnufundi sem heilbrigðisráðherra efndi til í liðinni viku. Heilbrigðisþing 2019 sem haldið verður 15. nóvember næstkomandi verður helgað þessu viðfangsefni og var vinnufundurinn haldinn til að leggja grunn að umfjöllun þingsins svo það verði sem árangursríkast.

    18. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Innleiðing rafrænna fylgiseðla með lyfjum mikilvægt hagsmunamál

    Norðurlandaþjóðirnar telja mikinn ávinning í því að innleiða rafræna fylgiseðla með lyfjum og vinna að því sameiginlega gagnvart Evrópusambandinu. Horft er til þess að rafrænir fylgiseðlar verði mikilvægur liður í því að sporna við lyfjaskorti og auka öryggi sjúklinga. Um þetta var fjallað á fjölmennum fundi íslenskra og erlendra sérfræðinga í Reykjavík í gær sem haldinn var í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    15. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þjónusta geðheilsuteyma efld með þátttöku borgarinnar

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samstarfsyfirlýsingu ásamt samningi sem kveður á um þátttöku þjónustumiðstöðva velferðarsviðs í verkefnum geðheilsuteyma heilsugæslunnar í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri staðfestu samkomulagið og samstarfsyfirlýsinguna við undirritun í dag. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir samstarfið marka tímamót og engan vafa leika á því að það muni efla og bæta þjónustu geðheilsuteymanna við notendur.

    12. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um geðheilbrigðisþjónustu við fanga

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um tímamót í geðheilbrigðisþjónustu við fanga með stofnun sérstaks geðheilsuteymis í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag.

    12. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lokað kl. 14.00 vegna veðurs

    Afgreiðslu heilbrigðisráðuneytisins verður lokað kl. 14.00 í dag vegna afleitrar veðurspár og viðvörunar frá Veðurstofu Íslands. Gert er ráð fyrir venjubundnum opnunartíma á morgun frá kl. 8.30 – 16.00 að því gefnu að versta veðrið verði þá gengið niður.

    10. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn – áhersla á forvarnir gegn sjálfsvígum

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) helgar alþjóðageðheilbrigðisdaginn sem er í dag, 10. október, forvörnum gegn sjálfsvígum. Á vef stofnunarinnar má m.a. finna fræðslumyndband fyrir kennara ásamt einblöðungum með upplýsingum fyrir ólíka markhópa, t.d. kennara, blaðamenn, heilbrigðisstarfsfólk, lögreglu og marga fleiri þar sem fjallað er um forvarnir gegn sjálfsvígum.

    07. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Sendiráð Íslands í Brussel

    Bréf norrænna heilbrigðisráðherra um rafræna fylgiseðla með lyfjum afhent í Brussel

    Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Brussel afhenti í dag, bréf til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að skoðað verði að opna heimild til að notast við rafræna fylgiseðla með lyfjum.

    05. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Miklar breytingar með nýrri reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli

    Heilbrigðisráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli. Nýja sjúkrahótelið við Hringbraut er tekið til starfa og voru fyrstu gestirnir innritaðir í byrjun vikunnar. Reglugerðin felur í sér grundvallarbreytingar sem rýmka verulega rétt fólks til að dvelja á sjúkrahóteli frá því sem verið hefur.

    01. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Viljayfirlýsing um rekstur 40 rýma hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi

    Vigdísarholt ehf. mun annast rekstur nýja hjúkrunarheimilisins á Seltjarnarnesi, samkvæmt viljayfirlýsingu heilbrigðisráðherra og Vigdísarholts ehf. sem undirrituð var í dag. Félagið mun einnig taka að sér rekstur dagdvalarrýma í bæjarfélaginu og er stefnt að umtalsverðri fjölgun þeirra.

    01. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra heimsækja Landspítala

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Landspítala-háskólasjúkrahús í morgun. Páll Matthíasson forstjóri og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri, tóku á móti ráðherrunum á bráðamóttökunni í Fossvogi.

    30. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjallað um þvingunarúrræði lögræðislaga - áhersla á samráð

    Starfshópur heilbrigðisráðherra um þvingunarúrræði lögræðislaga hefur tekið til starfa. Hópurinn óskar eftir ábendingum frá þeim sem hafa reynslu eða þekkingu á þessu sviði um hvað betur má fara og hefur útbúið netfang í þessu skyni. Hópurinn boðar einnig til sameiginlegs vinnufundar með starfshópnum, notendum, aðstandendum og öðrum sem hafa áhuga, fimmtudagin 17. október.

    • First
    • Prev
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband