Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1251–1300 af 1969
    Raða eftir:
    17. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Almannaöryggi, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Starfshópur meti fjárveitingar til ofanflóðasjóðs

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að skipa starfshóp fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytisins og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem fer yfir framkvæmdaáætlun ofanflóðasjóðs og leggur til heildstætt mat á framkvæmdir við ofanflóðavarnir með áherslu á tímabil næstu fjármálaáætlunar fyrir árin 2021-2025 sem kynnt verður í vor.

    17. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Opinn kynningarfundur í Reykjavík á morgun um Hálendisþjóðgarð

    Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs á opnum fundi í Reykjavík á morgun, laugardaginn 18. janúar klukkan 11:00. Fundurinn fer fram í Skriðu, í húsakynnum Háskóla Íslands í Stakkahlíð og í verður í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

    14. jan. 2020Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Siglingar, Sjávarútvegur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Orkuskipti skipa - Möguleikar á orkuskiptum á sjó: skýrsla Eflu

    Skýrsla verkfræðistofunnar Eflu þar sem skoðaðir eru möguleikar á Íslandi vegna orkuskipta á sjó, bæði fyrir innlent og erlent eldsneyti.

    13. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Kynningarfundi í Reykjavík um Hálendisþjóðgarð frestað vegna veðurs

    Kynningarfundi umhverfis- og auðlindaráðherra um Hálendisþjóðgarð sem halda átti í Reykjavík í dag er frestað vegna veðurs. Ný tímasetning fyrir fundinn verður auglýst á næstu dögum.

    12. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Miðhálendið verði þjóðgarður

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti frumvarp um Hálendisþjóðgarð á fundi með fréttamönnum í dag.

    12. jan. 2020Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Drög að breytingu á reglugerð um stjórnvaldssektir vegna brota á efnalögum

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um stjórnvaldssektir fyrir brot á efnalögum, sem sett hafa verið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.

    12. jan. 2020Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Blaðamannafundur um hálendisþjóðgarð

    Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, boðar til blaðamannafundar um frumvarp um stofnun Hálendisþjóðgarðs klukkan 16:00 í dag og verður fundurinn í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

    10. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Friðlýsingar, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu Gerpissvæðisins

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Gerpissvæðisins ásamt sveitarfélaginu Fjarðabyggð og í samstarfi við landeigendur.

    10. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ísland undirritar stuðningsyfirlýsingu um náttúruna

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerði vernd og endurheimt vistkerfa að umtalsefni í ávarpi sínu á fundi um líffræðilegan fjölbreytileika sem haldinn var í gær í tengslum við 75. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir.

    09. jan. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    10 aðgerðir til að efla vísindi og nýsköpun

    Framlög í samkeppnissjóði í vísindum og nýsköpun munu vaxa um helming á næsta ári miðað við fjárlög ársins 2020, samkvæmt nýrri vísinda- og tæknistefnu.

    07. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Skuldbindingar Íslands gagnvart Parísarsamkomulaginu staðfestar

    Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um loftslagsmál sem ætlað er að styrkja umgjörð skuldbindinga Íslands gagnvart Parísarsamkomulaginu til 2030. Með breytingunni er lögfest samstarf Íslands, Noregs og Evrópusambandsins um 40% heildarsamdrátt ríkjanna í losun gróðurhúsalofttegunda fram til 2030, miðað við losun ársins 1990.

    04. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Friðlýsingar, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Gjástykki friðlýst gegn orkuvinnslu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Gjástykkis í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). Þetta er fyrsta friðlýsing háhitasvæðis í verndarflokki rammaáætlunar.

    20. des. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Bann við tilteknum plastvörum kynnt í samráðsgátt

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingum á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með frumvarpinu verður bannað að setja tilteknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað.

    20. des. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs til kynningar

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs. Með frumvarpinu eru innleiddar Evróputilskipanir sem ætlað er að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis í því skyni að ýta undir bætta endurvinnslu úrgangs og draga úr myndun hans.

    20. des. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landgræðsla og skógrækt, Umhverfi og náttúruvernd

    Lýsing vinnu við landsáætlun í skógrækt í samráðsgátt

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda drög að lýsingu á þeim áherslum sem verða í forgrunni vinnu við gerð landsáætlunar í skógrækt. Lýsingin var unnin af verkefnisstjórn sem umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði í sumar.

    20. des. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Friðlýsingar

    Spurningar og svör um Hálendisþjóðgarð

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur tekið saman spurningar og svör um Hálendisþjóðgarð.

    18. des. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Friðlýsingar

    Frumvörp um Hálendisþjóðgarð og Þjóðgarðastofnun kynnt í samráðsgátt

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt í samráðsgátt tvö frumvörp, um Hálendisþjóðgarð og um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða.

    16. des. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Loftslagsráðstefnu SÞ lokið eftir langar viðræður

    Tuttugasta og fimmta aðildarríkjafundi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna lauk eftir hádegi í gær eftir langar og strangar samningaviðræður, hálfum öðrum sólarhring seinna en gert var ráð fyrir.

    16. des. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla um jarðstrengi í flutningskerfi raforku

    Skýrsla hins sérfróða aðila liggur nú fyrir og hefur hún verið sett í opið umsagnarferli á samráðsgátt stjórnvalda

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Átakshópur um úrbætur á innviðum í framhaldi af fárviðrinu 10. og 11. desember

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, í framhaldi af fárviðrinu sem gekk yfir landið 10. og 11. desember, skipan starfshóps fimm ráðuneyta sem falið er að meta hvaða aðgerðir séu færar til að efla innviði í flutnings- og dreifikerfi raforku og fjarskiptum til að tryggja að slíkir grunninnviðir séu sem best í stakk búnir til að takast á við ofsaveður eða aðrar náttúruhamfarir.

    09. des. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra sjósetur flothylki sem sýnir ferðir rusls í hafi á norðurslóðum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sjósetti í dag flothylki til að sýna hvernig rusl í hafi ferðast til og frá norðurslóðum. Verkefnið tengist formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu og er ætlað að stuðla að aukinni þekkingu og meðvitund um rusl í hafi, ekki síst plasti.

    29. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Styrkir til verkefna og rekstrar lausir til umsóknar

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og rekstrarstyrkja til félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála. Umsóknarfrestur vegna rekstrarstyrkja er til kl. 16:00 3. janúar 2020 og til kl. 16:00 7. janúar vegna verkefnastyrkja. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

    28. nóv. 2019Fjármálaáætlun, Nýsköpun, Opinber innkaup, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýsköpunarráðherra kynnir Kríu frumkvöðlasjóð

    Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir kynnti í dag Kríu frumkvöðlasjóð, nýjan íslenskan hvatasjóð nýsköpunardrifins frumkvöðlastarfs.

    28. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Nýsköpun, Umhverfi og náttúruvernd

    500 milljónir til Loftslagssjóðs – opnað fyrir umsóknir

    Alls verður um 500 milljónum króna varið til Loftslagssjóðs á fimm árum og þar af verða 140 milljónir króna til ráðstöfunar í fyrstu úthlutun. Opnað var í dag fyrir umsóknir í Loftslagssjóð en stofnun hans er ein af aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum.

    27. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Kynningarfundur um Loftslagssjóð

    Kynningarfundur um Loftslagssjóð fer fram í Norræna húsinu á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember

    25. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Sigríður Halldórsdóttir ráðin aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra

    Sigríður Halldórsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra.

    22. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Breytingar á lögum um loftslagsmál í samráðsferli

    Frumvarp um breytingu á lögum um loftslagsmál hefur verið sett í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Frumvarpinu er m.a. ætlað að heimila setningu reglna sem varða kröfur vegna skuldbindinga Íslands samkvæmt Parísarsamningnum.

    20. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform kynnt um lagafrumvarp um þjóðgarð á miðhálendi Íslands

    Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um þjóðgarð á miðhálendi Íslands. Þverpólitísk nefnd um undirbúning að stofnun þjóðgarðsins hefur unnið að áherslum sem frumvarpið mun byggja á. Áformin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

    15. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Starfshópur mótar tillögur gegn matarsóun

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp til að móta tillögur að aðgerðum gegn matarsóun. Markmiðið er að gerð verði heildstæð áætlun gegn matarsóun til næstu ára.

    10. nóv. 2019Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Samanburður á löggjöf nokkurra nágrannaþjóða um mat á umhverfisáhrifum

    Rannsóknin til undirbúnings heildarendurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum

    10. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Guðmundur Ingi ræðir náttúruvernd og loftslagsmál á Hringborði norðurslóða

    Loftslagsmál og norðurskautið eru í forgrunni tvíhliða funda sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur átt á ráðstefnunni Hringborði norðurslóða sem nú stendur yfir í Hörpu. Fjallað verður um Vatnajökulsþjóðgarð og friðlýst svæði á norðurslóðum á sérstakri málstofu á ráðstefnunni á morgun.

    09. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Endurheimt landgæða lykilatriði í baráttunni gegn loftslagsvánni – ráðherra ávarpaði aðildarríkjaþing Eyðimerkursamnings SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í gær aðildarríkjaþing Eyðimerkursamnings Sameinuðu þjóðanna (UNCCD) fyrir Íslands hönd. Ráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að ríki heims reyndu að tryggja sjálfbæra landnýtingu og endurheimt vistkerfa til að sporna við hamfarahlýnun af mannavöldum.

    07. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Óskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningarfrestur er til 23. ágúst næstkomandi.

    07. nóv. 2019Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ársskýrsla 2018 - Umhverfis- og auðlindaráðherra

    júlí 2019 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Ársskýrsla 2018 - Umhverfis- og auðlindaráðherra Ársskýrsla 2018 - Umhverfis- og auðlindaráðherra

    04. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Framkvæmdir við Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi hafnar

    Fyrsti áfangi framkvæmda við Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi er hafinn en byggingin mun hýsa sýningar, skrifstofur og aðra aðstöðu Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra var viðstaddur þegar formlega var hafist handa við jarðvegsvinnu vegna miðstöðvarinnar s.l. föstudag.

    04. nóv. 2019Auðlindir, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla um þróun raforkuverðs og samkeppni frá setningu raforkulaga 2003

    Fyrr á þessu ári óskaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið eftir því að verkfræðistofan EFLA tæki saman skýrslu að nýju um þau mál og hvernig til hafi tekist með þá breytingu sem átti sér stað með setningu raforkulaga 2003. Með þeim lögum var raforkuvinnsla og sala raforku gefin frjáls en sérleyfi þarf til að flytja eða dreifa raforku.

    03. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Alþjóðamál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna sett í dag

    Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna hófst í Naíróbí í Kenía í dag. Á þinginu eru rædd ýmis brýn úrlausnarefni sem fyrir liggja í umhverfismálum á heimsvísu og í þetta sinn verða sjálfbær neysla og framleiðsla í brennidepli.

    31. okt. 2019Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Lyfjaleifar í íslensku umhverfi

    Samantekt Matís um lyfjaleifar í íslensku umhverfi, losun út í umhverfið og væntanlegt magn og áhættu.

    31. okt. 2019Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Örplast í hafinu við Ísland - Helstu uppsprettur, magn og farvegir í umhverfinu

    Samantekt Sjávarlíftæknisetursins Biopol um helstu uppsprettur örplasts á Íslandi og farvegi þess til sjávar.

    31. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Skýrslur um örplast og lyfjaleifar í íslensku umhverfi kynntar

    Tvær skýrslur sem unnar voru fyrir umhverfis- og auðlindaráðuneytið voru kynntar á málþingi sem fram fór í dag. Annars vegar er um að ræða samantekt Sjávarlíftæknisetursins Biopol um helstu uppsprettur örplasts á Íslandi og farvegi þess til sjávar og hins vegar samantekt Matís um lyfjaleifar í íslensku umhverfi, losun út í umhverfið og væntanlegt magn og áhættu.

    30. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Aukið norrænt samstarf í málefnum hafs og loftslags

    Norrænir umhverfis- og loftslagsráðherrar undirrituðu í dag yfirlýsingu um sjálfbærni í hafmálum á Norðurlöndum og nauðsyn þess að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga á hafið en fundur þeirra stendur nú yfir í Stokkhólmi. Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og er hafið eitt af áherslumálum Íslands.

    25. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Samkomulag Íslands og Noregs við ESB á sviði loftslagsmála

    Gengið var frá samkomulagi Íslands og Noregs við Evrópusambandið á sviði loftslagsmála í dag, með ákvörðun á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar. Með samkomulaginu eykst samvinna Íslands og Noregs með ríkjum ESB á sviði loftslagsmála og ríkin búa við sambærilegar reglur og skuldbindingar.

    25. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Líf og heilsa

    Málþing um örplast og lyfjaleifar í íslensku umhverfi

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðar til málþings 31. október þar sem kynntar verða niðurstöður skýrslna um helstu uppsprettur örplasts á Íslandi og lyfjaleifar í íslensku umhverfi.

    22. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Auðlindir, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Orka

    Styrkjum úthlutað til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt

    Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt þar sem hægt verður að hlaða ríflega 110 rafbíla á hverjum tíma. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum.

    12. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    „Verðum að nálgast loftslagsvána með hugarfari þess sem vill og getur“ – umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpaði Loftslagsráðstefnu SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í dag Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Hann hvatti þjóðir heims til lausnamiðaðrar nálgunar í baráttunni gegn hamfarahlýnun. „Ef athafnir okkar geta stefnt okkur í jafnmikinn voða og raun ber vitni þá getum við líka gripið til aðgerða sem afstýra hættunni. Við mannfólkið getum unnið stórkostleg afrek. Við verðum að nálgast loftslagsvána með hugarfari þess sem vill og getur.“

    08. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Vatnasvið Jökulsár á Fjöllum fyrsta svæðið sem friðlýst er gegn orkuvinnslu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). Þetta er fyrsta friðlýsing svæðis í verndarflokki rammaáætlunar. Undirritunin fór fram í Ásbyrgi og er hluti af átaki stjórnvalda í friðlýsingum.

    07. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Breyting á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð í umsagnarferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð. Breytingin varðar reglur um atvinnutengda starfsemi innan þjóðgarðsins.

    05. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisstofnun skilar skýrslu um áætlaðan samdrátt í losun

    Umhverfisstofnun hefur skilað skýrslu til Evrópusambandsins með spá fyrir losun gróðurhúsalofttegunda fyrir Ísland til 2035. Spáin byggir m.a. á orku- og eldsneytisspá og á upplýsingum sem stofnunin hefur safnað.

    04. okt. 2019Rit og skýrslur, Auðlindir, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla um þróun raforkuverðs og samkeppni frá setningu raforkulaga 2003

    apríl 2019 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Skýrsla um þróun raforkuverðs og samkeppni frá setningu raforkulaga 2003 Skýrsla um þróun raforkuverðs og samkeppni frá setningu raforkulaga 2003 Snemma árs 2019 óskaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið eftir því að verkfræðistofan EFLA tæki saman skýrslu að nýju um þau mál og hvernig til hafi tekist með þá breytingu sem átti sér stað með setningu raforkulaga 2003. Með þeim lögum var raforkuvinnsla og sala raforku gefin frjáls en sérleyfi þarf til að flytja eða dreifa raforku

    04. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Þörf á metnaðarfullum markmiðum fyrir náttúruna

    Á fundi sínum í Reykjavík í dag ræddu norrænu umhverfisráðherrarnir mikilvægi þess að sett verði metnaðarfull markmið í baráttunni gegn hnignun náttúrunnar í gegnum samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegrar fjölbreytni. Þeir leggja áherslu á að nýta aðferðir náttúrunnar við að takast á við loftslagsmálin, svo sem með endurheimt skóga og votlendis og landgræðslu. Enn fremur vilja ráðherrarnir tryggja að ungt fólk fái tækifæri til að taka þátt í vinnu Sameinuðu þjóðanna við að setja þessi markmið.

    • First
    • Prev
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband