02. ágú. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Líf og heilsa, Atvinnuvegir, Heilbrigðisráðuneytið
Sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra undirrituðu í dag yfirlýsingu um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, Alþjóðadýraheilbrigðismálastofnuninni, Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins og Matvælaöryggisstofnun Evrópusambandsins er útbreiðsla sýklalyfjaónæmis ein helsta heilbrigðisógn sem steðjar að mönnum. Sýklalyfjaónæmi á Íslandi hefur verið umtalsvert minna vandamál en í nálægum löndum en mikilvægt þykir að stemma stigu við frekari útbreiðslu.