31. jan. 2020Menningarmál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Winnipeg, Sendiskrifstofa
Úttekt á starfsemi aðalræðisskrifstofunnar í Winnipeg
Í tilefni þess að 20 ár voru liðin frá stofnun aðalræðisskrifstofu Íslands í Manitoba í Kanada, með útsendum starfsmanni í utanríkisþjónustunni, ákvað Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í fyrra að fela Halldóri Árnasyni, fyrrverandi formanni Þjóðræknisfélagsins og Snorrasjóðs, að gera úttekt á starfseminni og tillögur um hvernig mætti bæta hana. Úttektin hefur verið kynnt í ríkisstjórn og utanríkismálanefnd verið upplýst.