16. okt. 2024Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ísland sat fyrir svörum á fundi Mannréttindanefndar SÞ
Sjötta skýrsla Íslands um samninginn borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi var tekin fyrir á fundi Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf 15. og 16. október 2024.
Í skýrslunni er fjallað um hvernig Ísland hefur uppfyllt skyldur sínar samkvæmt samningnum og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í því skyni að uppfylla tilmæli nefndarinnar um nauðsynlegar úrbætur.