31. maí 2019Menntamál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Undirritun samnings um samstarf á sviði sjálfbærni, orku, nýsköpunar og loftslagsmála
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag samning við Háskólann í Reykjavík, Orkuklasann og GRP ehf., um samstarf á sviði sjálfbærni, orku, nýsköpunar og loftslagsmála. Undanfarin ár hafa íslenski Orkuklasinn og GRP ehf., ásamt stjórnvöldum, verið í samstarfi við Cornell háskóla í Bandaríkjunum með það að markmiði að vinna að þekkingaryfirfærslu í orkumálum og sjálfbærni, auk samstarfs í vísindarannsóknum og menntamálum. Með samningnum er efnt til áframhaldandi samstarfs við Cornell háskóla til næstu fjögurra ára og er markmiðið að samstarfið muni leiða af sér aukin tækifæri í nýsköpun, þekkingaryfirfærslu, sjálfbærni, grænum orkulausnum og verðmætaaukningu fyrir íslenskt samfélag.