09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
1212/2024. Úrskurður frá 9. september 2024
Utanríkisráðuneyti synjaði beiðni um aðgang að samskiptum í tengslum við þá ákvörðun ráðherra að senda farþegaflugvél til Ísrael til að ferja heim Íslendinga sem þar væru strandaglópar. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á því að hluti gagnanna varðaði einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt og eðlilegt væri að færu leynt, sbr. 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, auk þess sem annar hluti þeirra hefði að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál felldi úr gildi þann hluta ákvörðunarinnar sem var byggður á 1. málsl. 9. gr. laganna og lagði fyrir ráðuneytið að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu að því leyti.…