Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Þróunarsamvinna
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 151–200 af 272
    Raða eftir:
    25. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland veitir 80 milljónum til uppbyggingar í Afganistan

    Íslensk stjórnvöld munu veita alls 80 milljónum króna í sérstakan sjóð Sameinuðu þjóðanna fyrir Afganistan (e. Multi Partner Special Trust Fund for Afghanistan) til þess að styðja við þróunarverkefni í landinu samhliða mannúðaraðstoð. Mikil neyð ríkir í Afganistan og áætla Sameinuðu þjóðirnar að rúmlega helmingur þjóðarinnar þurfi á alþjóðlegri mannúðaraðstoð að halda.

    12. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Afríka, Malaví, Utanríkismál

    Miðstöð fæðingarfistils í nafni Lilju Dóru opnuð í Malaví

    Í dag var formlega tekin í notkun ný miðstöð og skurðstofa við héraðssjúkrahúsið í Mangochi í Malaví þar sem boðið er upp heildstæðan stuðning við konur og stúlkur sem þjást af fæðingarfistli og/eða hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. ​

    12. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Malaví

    Byggðaþróunarverkefni í Nkhotakota héraði ýtt úr vör

    Byggðaþróunarverkefni héraðsstjórnarr Nkhotakota héraðs og íslenskra stjórnvalda gegnum sendiráð Íslands í Lilongve var formlega ýtt úr vör á skólalóð grunnskóla í héraðinu í gær.

    06. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Dómsmálaráðuneytið

    Utanríkisráðherra Namibíu í heimsókn á Íslandi

    Netumbo Nandi-Ndaitwah aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Namibíu er í heimsókn hér á landi ásamt sendinefnd. Hún átti fundi í dag með utanríkisráðherra og forsætisráðherra þar sem svonefnt Samherjamál var meðal annars til umræðu. Síðdegis átti hún svo fund með aðstoðarmanni ráðherra og starfsfólki í dómsmálaráðuneytinu.

    02. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Þróunarsamvinna, UNICEF, Utanríkismál

    UNICEF fær stuðning til að hraða dreifingu bóluefna í þróunarríkjum

    Utanríkisráðuneytið mun verja 250 milljónum króna til að styðja við starfsemi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) til að hraða dreifingu og aðgengi að COVID-19 bóluefnum í þróunarríkjum. Ísland hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings baráttu þróunarríkja gegn heimsfaraldrinum og áhrifum hans en auk framlagisins til UNICEF hafa stjórnvöld veitt rúmum milljarði króna til COVAX bóluefnasamstarfsins.

    27. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ, Utanríkismál

    Ársskýrsla GRÓ 2020-2021 komin út

    Fyrsta ársskýrsla GRÓ ̶ Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu er komin út. Skýrslan nær yfir fyrstu tvö árin í starfsemi miðstöðvarinnar, 2020-2021. GRÓ er sjálfstæð miðstöð sem tók til starfa 1. janúar 2020 og starfar undir merkjum UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Miðstöðin fellur undir utanríkisráðuneytið sem sinnir eftirliti og umsýslu með framlögum til hennar.

    27. jún. 2022Rit og skýrslur, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ársskýrsla GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu 2020-2021

    GRÓ er sjálfstæð miðstöð sem tók til starfa 1. janúar 2020 og starfar undir merkjum UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Miðstöðin fellur undir utanríkisráðuneytið sem sinnir eftirliti og umsýslu með framlögum til hennar.

    22. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs

    Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs styrkir fimm fyrirtæki til þróunarsamvinnuverkefna

    Fimm fyrirtæki á sviði heilbrigðistækni, jarðhitatækni og fiskveiða hljóta styrki til þróunarsamvinnuverkefna úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu. Verkefnin koma til framkvæmda í Djíbútí, Eþíópíu, Indlandi, Víetnam og Úkraínu. Samningar þess efnis voru undirritaðir af fulltrúum fyrirtækjanna og ráðuneytisins í gær. Heildarframlag úr sjóðnum er 72 milljónir króna á móti framlagi fyrirtækjanna fimm.

    05. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ráðherrar og ráðuneytisstjórar Norðurlandanna funda með framkvæmdastjóra OCHA

    Ráðherrar og ráðuneytisstjórar Norðurlandanna funduðu í dag með Martin Griffiths, framkvæmdastjóra hjá samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA).

    27. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Afríka, Íslensk frjáls félagasamtök, Þróunarsamvinna

    Sjö íslensk félagasamtök hljóta styrki til þróunarsamvinnuverkefna í Afríku

    Utanríkisráðuneytið hefur gert samninga við sjö íslensk félagasamtök um styrki vegna þróunarsamvinnuverkefna víðsvegar í ríkjum í Afríku. Árlega eru veittir styrkir til slíkra verkefna undir hatti samstarfs ráðuneytisins við félagasamtök í þróunarsamvinnu en fjölbreytt flóra samtaka er til staðar hér á landi.

    23. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ

    Tuttugu og þrír nemendur útskrifast frá Jafnréttisskóla GRÓ

    Jafnréttisskóli GRÓ (GRÓ-GEST) útskrifaði 23 sérfræðinga frá 15 löndum á föstudag, en þá var útskrift fjórtánda nemendahóps skólans frá upphafi fagnað í hátíðarsal Háskóla Íslands. Alls hafa nú 195 nemendur, frá 34 löndum útskrifast frá Jafnréttisskólanum með diplóma á meistarastigi í alþjóðlegum jafnréttisfræðum. Í ár voru í fyrsta sinn nemendur við skólann frá Moldóvu, Pakistan og Simbabve.

    12. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Malaví

    Samstarfssamningur Íslands og Malaví endurnýjaður á tvíhliða fundi

    Samstarfssamningur Íslands og Malaví var endurnýjaður í dag á tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum ríkjanna í Lilongve, höfuðborg Malaví. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra átti tvíhliða fund í morgun með Nancy Tembo utanríkisráðherra Malaví þar sem samstarfssamningurinn var formlega endurnýjaður.

    27. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland veitir 80 milljónum til Eþíópíu

    Á framlagaráðstefnu sem fram fór í Genf í gær tilkynntu íslensk stjórnvöld að þau myndu veita 80 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Eþíópíu á þessu ári. Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Evrópusambandið, Eþíópía, Kenía og Sómalía stóðu fyrir ráðstefnunni vegna yfirvofandi hungursneyðar af völdum þurrka á svæðinu sem kennt er við horn Afríku.

    26. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Úkraína, Mannréttindi og jafnrétti

    Aukinn stuðningur við UNICEF, UN Women og UNFPA

    Þátttaka Íslands og stuðningur við starf Sameinuðu þjóðanna auk stríðsins í Úkraínu voru til umræðu á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með stjórnendum Sameinuðu þjóðanna í dag og í gær. Þar tilkynnti hún einnig að Ísland muni auka framlög sín til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), UN Women og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) á þessu ári. Stofnanirnar eru allar áherslustofnanir í þróunarsamvinnu Íslands.

    22. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland veitir 130 milljónum í efnahagslega neyðaraðstoð við Úkraínu

    Íslensk stjórnvöld mun veita alls 130 milljónum króna í sérstakan sjóð Alþjóðabankans í efnahagslega neyðaraðstoð við Úkraínu, eða því sem nemur alls einni milljón Bandaríkjadala. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti um viðbótarframlag Íslands til sjóðsins á ráðherrafundi um stuðning við Úkraínu í gær sem haldinn var í tengslum við vorfundi Alþjóðabankans í Washington.

    12. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Íslensk frjáls félagasamtök, Malaví, Þróunarsamvinna, Erlend frjáls félagasamtök

    Helmingur barnanna á íslenska SOS-foreldra

    Helmingur barna á SOS barnaheimilinu í Lilongve, höfuðborg Malaví, á íslenska SOS-foreldra. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti SOS-barnaþorpið í dag, á fyrsta degi vinnuheimsóknar til Malaví, elsta samstarfsríkis Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

    31. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland veitir 400 milljónum í neyðaraðstoð í Afganistan

    Utanríkisráðherra tilkynnti um samtals 400 milljóna króna framlag Íslands til neyðaraðstoðar í Afganistan á fjáröflunarfundi Sameinuðu þjóðanna í dag. Þar af er 360 milljóna króna framlag fyrir tímabilið 2022-2024 sem skiptist milli Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þá tilkynnti ráðherra einnig um fjörtíu milljóna króna framlag til Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Um er að ræða áherslustofnanir Íslands í mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu og lykilstofnanir í verkefnum Sameinuðu þjóðanna í Afganistan.

    16. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra tilkynnti um stuðning Íslands við Jemen

    Framlagsráðstefna til að tryggja lífsnauðsynlega mannúðaraðstoð fyrir almenna borgara Jemen var haldin í dag. Á slíkum ráðstefnum tilkynnir forsvarsfólk ríkja um viðbrögð við ákalli um neyðaraðstoð í tengslum við tiltekin verkefni. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti að heildarframlög Íslands til stuðnings Jemen muni á þessu ári nema 125 milljónum króna.

    15. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra undirritar rammasamninga við félagasamtök

    Utanríkisráðherra undirritaði í gær rammasamninga við fjögur íslensk félagasamtök sem starfa á sviði mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. Rammasamningarnir munu veita félagasamtökunum fyrirsjáanleika sem auðveldar skipulagningu verkefna og eykur viðbragðsflýti samtakanna, til dæmis þegar neyðarástand skapast.

    10. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs

    Umsóknarfrestur Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífs framlengdur til 17. október

    Umsóknarfrestur vegna styrkja úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulifs um þróunarsamvinnu hefur verið framlengdur til og með mánudeginum 17. október.

    23. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Aukin framlög til loftslagsaðgerða í þróunarríkjum

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að auka framlög til stuðnings loftslagsaðgerðum í þróunarríkjum, í samræmi við lokayfirlýsingu COP26 loftlagsráðstefnunnar í Glasgow. Um er að ræða framlög til fjögurra stofnana og sjóða sem eiga það sammerkt að starfa með fátækustu ríkjum heims í baráttu þeirra við loftslagsvána.

    31. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Íslensk fyrirtæki láti til sín taka í þróunarsamvinnu

    Frestur til að sækja um í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífs um þróunarsamvinnu er út 3. febrúar næstkomandi. Sjóðurinn mun verja 200 m.kr. til samstarfsverkefna íslenskra fyrirtækja í þróunarlöndum á þessu ári.

    03. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál, Atvinnuvegaráðuneytið, Skólar GRÓ

    Rúmlega fimmtán hundruð sérfræðingar frá þróunarríkjum útskrifaðir frá GRÓ skólunum

    Tuttugu og sjö sérfræðingar á sviði sjávarútvegs- og fiskimála, frá sextán löndum í Afríku, Asíu, Eyjaálfu og Mið-Ameríku, útskrifuðust frá Sjávarútvegsskóla GRÓ í dag. Eftir útskriftina hefur heildarfjöldi útskrifaðra sérfræðinga frá skólunum fjórum sem starfa á vegum GRÓ Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu farið yfir fimmtán hundruð manna markið, en alls er fjöldinn 1.513.

    30. des. 2021Utanríkisráðuneytið, WFP, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, UNHCR

    Tvö hundruð milljónir króna í alþjóðlega mannúðaraðstoð

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur ákveðið að úthluta 200 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Afganistan, Eþíópíu og Jemen. Að mati Sameinuðu þjóðanna hefur þörf á mannúðaraðstoð aldrei verið meiri og eykst dag frá degi. Áætlað er að um 274 milljónir manna þurfi á aðstoð að halda á næsta ári, tæplega fjörutíu milljónum fleiri en á árinu sem er að kveðja.

    22. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland styður verkefni sem miðar að því að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Argentina Matavel-Piccin, yfirmaður skrifstofu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) fyrir Vestur- og Mið-Afríku, hafa skrifað undir samstarfssamning um verkefni sem styður stjórnvöld í Síerra Leóne í viðleitni sinni við að útrýma fæðingarfistli í landinu. Um er að ræða nokkuð algengt og mjög alvarlegt vandamál í landinu, en með verkefninu munu lífsgæði fjölda kvenna batna til mikilla muna. Verkefnið verður unnið í náinni samvinnu við heilbrigðisyfirvöld í Síerra Leóne en frjáls félagasamtök taka jafnframt þátt í því.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Flóttafólk, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, UN Women, Utanríkismál

    66°Norður og UN Women fá styrk til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur

    66°Norður og UN Women á Íslandi hafa fengið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins um þróunarsamvinnu til að vinna að verkefni til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur frá þróunarríkjum í Tyrklandi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Bjarney Harðardóttir hjá 66°Norður skrifuðu undir samning í gær um tæplega 30 milljóna króna styrk ráðuneytisins gegn sambærilegu mótframlagi fyrirtækisins.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Heimsmarkmiðasjóðurinn styður við samfélagsverkefni Kerecis í Egyptalandi

    Framlag úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu verður nýtt til að styðja við samstarf lækningafyrirtækisins Kerecis og egypska Ahl Masr-sjúkrahússins um að nota íslenskt sáraroð við meðhöndlun alvarlegra brunasára. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Guðmundur Fertram Sigurjónsson forstjóri Kerecis hafa undirritað samning um 30 milljóna króna stuðning ráðuneytisins úr Heimsmarkmiðasjóðnum við samfélagsverkefni Kerecis í Egyptalandi.

    16. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Fyrsti rammasamningur Íslands við UNFPA

    Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Ib Petersen, aðstoðarframkvæmdastjóri Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), skrifuðu í gær undir rammasamning um stuðning Íslands við UNFPA. Með samningnum formfestir Ísland stuðning sinn við stofnunina og fylgir eftir skuldbindingu í verkefninu Kynslóð jafnréttis sem forsætisráðherra Íslands tilkynnti á leiðtogafundi í París síðastliðið sumar.

    11. nóv. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Þróunarsamvinna

    Unnið að samningi um loftslagsvæn viðskipti

    Viðskiptareglur sem taka tillit til loftslagsbreytinga og sjálfbærrar þróunar eru mikilvægur liður í því að markmið Parísarsamningsins náist, sem og að viðskiptalífið leggi aukna áherslu á sjálfbæra þróun.

    05. nóv. 2021Rit og skýrslur, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna (JPO) - Innri rýni á þátttöku Íslands 2005-2015

    Ísland tók þátt í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna 2005-2015 og hefur innri rýni ráðuneytisins á þeirri þátttöku nú verið gefin út, auk samantektar. Markmiðið var m.a. að afla lærdóms sem hægt væri að leggja til grundvallar þátttöku Íslands á nýjan leik.

    05. nóv. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Árangursrík þátttaka í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna

    Ísland tók þátt í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna 2005-2015 og hefur innri rýni ráðuneytisins á þeirri þátttöku nú verið gefin út, auk samantektar. Markmiðið var m.a. að afla lærdóms sem hægt væri að leggja til grundvallar þátttöku Íslands á nýjan leik.

    13. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn, Asía, Hjálparstarf, Utanríkismál

    Afganistan efst á baugi á kjördæmisfundi Alþjóðabankans

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í fjarfundi ráðherra kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum, þar sem málefni Afganistan voru helsta umfjöllunarefnið.

    05. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, UNICEF, Þróunarsamvinna

    Ráðherra undirritar nýjan rammasamning við UNICEF

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Henrietta Fore, framkvæmdarstjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, skrifuðu í dag undir nýjan rammasamning um stuðning Íslands við UNICEF.

    26. ágú. 2021Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Gagnagrunnur um stuðning Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu formlega opnaður

    Vefsvæðinu www.openaid.is var formlega ýtt úr vör í dag af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Um er að ræða gagnagrunn um stuðning Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu þar sem almenningi og haghöfum gefst kostur á að rýna í opinber framlög Íslands til málaflokksins.

    20. ágú. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Asía, Flóttafólk, Utanríkismál

    Framlög til mannúðaraðstoðar vegna stöðunnar í Afganistan

    Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt um 60 milljóna króna framlag til mannúðaraðstoðar í Afganistan. Verður framlaginu skipt jafnt á milli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC). Báðar stofnanirnar hafa sérstöðu á sínu sviði, einkum hvað varðar aðgengi og þjónustu við fólk á átakasvæðum.

    12. ágú. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland setur 95 milljónir í Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna

    Framlag Íslands til Neyðarsjóðs Sameinuðu þjóðanna (CERF) verður 95 milljónir króna á næsta ári. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, greindi frá þessari ákvörðun á framlagaráðstefnu sjóðsins í dag, en Ísland mun veita 45 milljón króna viðbótarframlag auk venjubundins 50 milljón króna framlags sem Ísland greiðir samkvæmt rammasamningi við sjóðinn.

    09. ágú. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs

    Samstarfstækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í þróunarríkjum

    Utanríkisráðuneytið auglýsir þessa dagana eftir umsóknum um styrki í Samstarfssjóð við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna fyrirtækja í þróunarríkjum.

    16. júl. 2021Hjálparstarf, Þróunarsamvinna, Annað, Utanríkisráðuneytið

    Úthlutun styrkja til þróunarsamvinnuverkefna íslenskra félagasamtaka

    Utanríkisráðuneytið hefur gefið fjórtán félagasamtökum vilyrði um styrki vegna þróunarsamvinnuverkefna víðsvegar í ríkjum í Afríku. Árlega eru veittir styrkir til slíkra verkefna undir hatti samstarfs ráðuneytisins við félagasamtök í þróunarsamvinnu en fjölbreytt flóra samtaka er til staðar hér á landi.

    06. júl. 2021Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, Afríka, Fjölþjóðastofnanir, neyð, Utanríkismál

    30 milljónir til stríðshrjáðra kvenna og barna í Eþíópíu

    Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að verja 30 milljónum króna til að bregðast við ákalli Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) vegna mannskæðra átaka í Tigray-héraði í Eþíópíu.

    04. júl. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór áréttaði mikilvægi einkageirans á fundi Alþjóðabankans

    Framþróun einkageirans og græn uppbygging í þróunarlöndum voru helsta umfjöllunarefnið á ráðherrafundi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum sem fram fór í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði þar sérstaka áherslu á mikilvægi þess að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki í þróunarlöndunum og að viðspyrnuaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins nái til kvenna.

    21. jún. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Afríka, Malaví, Utanríkismál

    Áfram unnið að uppbyggingu grunnþjónustu í Malaví

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur ákveðið að framlengja stuðning Íslands við héraðsþróun í Mangochi-héraði í Malaví til næstu tveggja ára. Skrifað var undir samning þess efnis í höfuðborginni Lilongve fyrir helgi.

    16. jún. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á Tidewater-fundi

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, sat í dag fjarfund þróunarmálaráðherra aðildarríkja þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD DAC) . Margþættar áskoranir vegna heimsfaraldurs, lýðræði og mannréttindi var meðal þess sem hæst bar í umræðum ráðherranna.

    12. jún. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, OECD, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún á fundi þróunarmiðstöðvar OECD

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í ráðherrafundi Development Centre, þróunarmiðstöðvar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), þar sem sjónum var beint að nauðsyn þess að öll ríki heims hafi aðgang að bjargráðum til að takast á við afleiðingar heimsfaraldursins.

    16. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Grænni og betri uppbygging að loknum heimsfaraldri

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra áréttaði hlutverk einkageirans í atvinnuuppbyggingu á fundi norrænna og afrískra ráðherra í dag. Hann lagði jafnframt áherslu á hlutverk sjálfbærrar orku við að ná markmiðum heimsmarkmiðanna.

    11. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Utanríkismál

    Ísland eykur framlag sitt til loftslagstengdrar þróunarsamvinnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ávarpaði í dag viðburð Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) sem haldinn var af tilefni loftlagsráðstefnunarinnar í Glasgow, COP26. Þar tilkynnti hann jafnframt þátttöku Íslands í fjármögnun verkefnis UNDP til stuðnings loftslagstengdrar þróunarsamvinnu. Framlag Íslands nemur 150 milljónum króna til næstu þriggja ára.

    24. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, WFP, Malaví

    Ísland veitir neyðaraðstoð í Malaví

    Ísland veitir Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) í Malaví 26 milljónir króna til að bregðast við neyðarástandi vegna COVID-19. Með stuðningi Íslands setur WFP upp skimunar- og greiningaraðstöðu við landamærastöðvar Malaví og Sambíu og reisir sex bráðabirgðaskýli við sjúkrahús sem nýtast sem rannsóknarstofur og legudeildir fyrir COVID-19 smitaða.

    09. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna í Afganistan rædd á ráðherrafundi

    Þróunarsamvinnuráðherrar Norðurlanda og framkvæmdastjóri Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) ræddu stöðuna í Afganistan á sérstökum fjarfundi í dag. Áframhaldandi starf stofnana Sameinuðu þjóðanna í landinu, og aðgerðir landanna á sviði mannúðaraðstoðar voru til umræðu, sem og möguleikinn á langtímaþróunarsamvinnu í Afganistan.

    28. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Fjölþjóðastofnanir, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn

    Aukin fjármögnun frá einkageiranum mikilvæg fyrir uppbyggingu í kjölfar heimsfaraldurs

    Áskoranir tengdar COVID-19 og djúpstæð efnahags- og félagsleg áhrif heimsfaraldursins á þróunarríki voru ofarlega á baugi á árlegum tveggja daga fjarfundi kjördæma Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá fjölþjóðlegum þróunarbönkum. Samhljómur var um mikilvægi aukinnar fjármögnunar fyrir græna og bætta enduruppbyggingu í kjölfar faraldursins en einnig voru skulda-, loftslags- og orkumál áberandi umræðuefni á fundinum.

    03. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, WFP, Mið-Austurlönd, Sameinuðu þjóðirnar

    Ísland leggur fram 285 milljónir króna til mannúðaraðstoðar í Jemen

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tilkynnti um 285 milljóna króna heildarframlag Íslands, til þriggja ára, á áheitaráðstefnu um Jemen í dag. Framlagið skiptist á milli þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna.

    18. des. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, Fjölþjóðastofnanir, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn

    Framhald á samstarfi við orkusjóð Alþjóðabankans

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur ákveðið að framlengja til næstu fjögurra ára samstarfssamning við orkusjóð Alþjóðabankans (ESMAP). Ísland fjármagnar einnig stöðu jarðhitasérfræðings hjá sjóðnum. Sjóðurinn kemur að mótun og undirbúningi verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku í þróunarríkjum, sem síðar koma til fjármögnunar hjá bankanum og fleiri aðilum. Jafnframt er sjóðurinn mikilvægt þekkingarsetur um endurnýjanlega orku.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband