Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Fjarskipti
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 151–200 af 343
Raða eftir:
02. ágú. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drögað lagabreytingum á sviði fjarskipta til umsagnar

Drög að breytingum á lögum um fjarskipti, lögum um Póst- og fjarskiptstofnun og lögum um fjarskiptasjóð eru nú til umsagnar. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir til og með 15. febrúar næstkomandi og skal senda þær á netfangið [email protected]

12. júl. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Úthlutun 450 milljóna króna til ljósleiðaraverkefna undirbúin

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórarráðherra, mun eftir að fjárlög liggja fyrir staðfesta samninga við sveitarfélög um lagningu ljósleiðara í kjölfar umsókna. Gert er ráð fyrir að samanlögð styrkupphæð nemi 450 milljónum króna.

12. júl. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Áform um lagasetningu um samnýtingu jarðvegsframkvæmda til að greiða fyrir ljósleiðaralagningu

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið undirbýr nú innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins nr. 2014/61/EB og áformar í því skyni að leggja frumvarp fyrir Alþingi er varðar samnýtingu jarðvegsframkvæmda á sviði fjarskipta-, raforku- og veitukerfa. Meginmarkmið tilskipunarinnar snúa að því að draga úr kostnaði við uppbyggingu háhraða fjarskiptaneta.

07. júl. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingu á fjarskiptalögum

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að lagafrumvarpi um breytingu á fjarskiptalögum nr. 81/2003 um CE-merkingar á fjarskiptabúnað. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið [email protected] til 10. ágúst næstkomandi.

14. jún. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Nýjar gerðir ESB vegna niðurfellingar reikigjalda innleiddar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú innleitt nýjar gerðir Evrópusambandsins á sviði fjarskiptaþjónustu er lúta að því að fella niður reikigjöld innan Evrópska efnahagssvæðisins. Frá og með 15. júní 2017 falla reikigjöld niður innan EES. Í því felst að neytendur EES-ríkja munu greiða sama gjald fyrir farsímanotkun á ferðalögum innan EES og þeir greiða heima.

09. maí 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Undirbúningur hafinn að landsátakinu Ísland ljóstengt vegna 2018

Hafinn er undirbúningur fyrir næsta áfanga landsátaksins Ísland ljóstengt. Snýr hann bæði að fjármagni til einstakra byggða sem verður úthlutað í annað sinn og svonefndum samkeppnispotti sem verður úthlutað úr í þriðja sinn.

14. mar. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Flug og flugvellir, Siglingar, Póstþjónusta, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

Heimsótti Póst- og fjarskiptastofnun og Samgöngustofu

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, heimsótti í dag Póst- og fjarskiptastofnun og Samgöngustofu. Starfsemin var kynnt fyrir ráðherra og fylgdarliði og hann heilsaði uppá starfsmenn.

11. mar. 2017Fjarskiptasjóður, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ísland ljóstengt 2018 - spurningar og svör vegna umsókna í A-hluta

Fjarskiptasjóður auglýsti nýverið umsóknarferli vegna verkefnisins Ísland ljóstengt sem er landsátak stjórnvalda í uppbyggingu ljósleiðarakerfa utan markaðssvæða í dreifbýli. Fyrirspurnarfrestur vegna styrkumsókna í A-hluta umsóknarferlisins vegna 2018 rann út í gær, 2. nóvember, sl. Meðfylgjandi eru svör við þeim átta spurningum sem bárust.

08. mar. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Samráð ESB um rafrænar upplýsingar varðandi heilsugæslu

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf nýverið almennt samráð um orðsendingu sína um breytingar á heilsugæslu og umönnun sem snerta rafræn samskipti og aðgang að rafrænum heilsufarsskrám. Samráðið stendur til 16. ágúst næstkomandi.

27. jan. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drögað breytingum á fjarskiptalögum til umsagnar

Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um fjarskipti eru nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Tilgangur breytinganna er að styrkja lagastoð til að unnt verði að innleiða ákvæði Evrópureglugerðar um nethlutleysi. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið [email protected] til og með 6. febrúar næstkomandi.

02. jan. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Sérstökum byggðastyrk úthlutað til lagningar ljósleiðara

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið með vísan til markmiða byggðaáætlunar og umsagnar stjórnar Byggðastofnunar að verja allt að 100 milljónum króna úr fjárveitingu byggðaáætlunar til að styrkja sérstaklega uppbyggingu ljósleiðarakerfis í strjálbýlum sveitarfélögum.

20. des. 2016Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ísland í öðru sæti á heimslista yfir upplýsingatækni

Ísland mælist í öðru sæti ríkja á lista yfir stöðu ríkja í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Fjölmargir þættir á sviði fjarskipta eru mældir svo sem aðgengi að gögnum og gæði þeirra, fjöldi fastlínunotenda og farsímanotenda, tölvueign, aðgengi að netinu, bandvídd og þróun verðlags í fjarskiptum.

20. apr. 2016Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Fjórtán sveitarfélög fá 450 milljóna króna styrk til ljósleiðaravæðingar

Fulltrúar fjarskiptasjóðs, nokkrra sveitarfélaga og innanríkisráðherra skrifuðu í dag undir samninga um styrki fjarskiptasjóðs fyrir uppbyggingu ljósleiðara í sveitarfélögunum til að efla fjarskiptasamband í dreifðum byggðum sem markaðurinn sinnir ekki. Alls fá 14 sveitarfélög styrki að þessu sinni til að tengja um 900 staði með ljósleiðara og um 200 staði með ídráttarröri fyrir ljósleiðara. Styrkur ríkisins er alls 450 milljónir króna. Meðal kostnaður ríkisins á hvern stað eru rúmar 400 þúsund krónur.

19. jan. 2016Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu til umsagnar

Drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu eru nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Unnt er að senda umsagnir um frumvarpið á netfangið [email protected] til og með 31. janúar 2016.

14. des. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Síðari hlutihringtengingar ljósleiðara á Vestfjörðum boðinn út

Auglýst hefur verið á  vef Ríkiskaupa útboð á seinni verkhluta ljósleiðarahringtengingar á Vestfjörðum. Tilboð verða opnuð 28. janúar 2016. Stefnt er að verklokum sama ár. Þá verða Vestfirðir hringtengdir með ljósleiðara sem gerir núverandi afkastaminni og óáreiðanlegri varasambönd óþörf. Þannig eykst til muna áreiðanleiki fjarskipta á öllu landsvæðinu.

09. nóv. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Samgönguáætlun, Innviðaráðuneytið

Starfsmenn norska samgönguráðuneytisins heimsóttu innanríkisráðuneytið

Hópur starfsmanna deildar norska samgönguráðuneytisins sem sinnir flugmálum, fjarskiptamálum og póstmálum heimsótti innanríkisráðuneytið í gær. Starfsmenn ráðuneytisins fræddu Norðmennina og fengu til liðs við sig fulltrúa frá Isavia og Póst- og fjarskiptastofnun.

03. nóv. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Starfshópur skilar ráðherra skýrslu um landsátak í uppbyggingu fjarskiptainnviða

Starfshópur sem innanríkisráðherra skipaði snemma árs 2014 um alþjónustu í fjarskiptum og útbreiðslu háhraða nettenginga hefur skilað Ólöfu Nordal innanríkisráherra skýrslu um landsátak í uppbyggingu fjarskiptainnviða. Haraldur Benediktsson, formaður starfshópsins, og Páll Jóhann Pálsson, sem einnig sat í starfshópnum, skiluðu ráðherra skýrslunni í dag.

14. okt. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Löggæsla, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drög aðlagafrumvarpi um eflingu netöryggissveitar til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að lagafrumvarpi um breytingar á lögum um almannavarnir sem fela meðal annars í sér að efla netöryggissveit sem hefur heyrt undir Póst- og fjarskiptastofnun og að hún verði flutt til ríkislögreglustjóra. Unnt er að senda ráðuneytinu umsögn um frumvarpsdrögin til og með 21. október næstkomandi. Skulu þau send á netfangið [email protected]

25. jún. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Samið við Mílu um hringtengingu ljósleiðara á Vestfjörðum

Í dag var undirritaður samningur milli fjarskiptasjóðs, f.h. innanríkisráðuneytisins, við Mílu ehf. um fyrri hluta hringtengingar ljósleiðarastrengs um Vestfirði. Ekkert fjarskiptafélag bauð sig fram til verksins á markaðslegum forsendum og bauð sjóðurinn því út styrk í mars síðastliðnum. Þrjú tilboð bárust á bilinu 56,3 til 123 milljónir króna og átti Míla hagstæðasta tilboð. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 131 milljón króna.

21. maí 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Drög að reglugerð um póstdreifingu til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd póstþjónustu. Miðar breytingin meðal annars að því að draga úr kostnaði við dreifingu pósts. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um reglugerðardrögin til og með 1. júní 2015 og skulu þær berast á netfangið [email protected].

11. maí 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Fyrsti fundur netöryggisráðs haldinn ívikunni

Fyrsti fundur netöryggisráðs var haldinn í innanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 3. nóvember en í ráðinu sitja fulltrúar opinberra aðila. Megin hlutverk ráðsins er að hafa umsjón með framkvæmd á stefnu stjórnvalda um net- og upplýsingaöryggi.

28. apr. 2015Rit og skýrslur, Löggæsla, Persónuvernd, Fjarskipti, Persónuréttur, Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Stefna um net- og upplýsingaöryggi kynnt í ríkisstjórn

Ólöf Nordal innanríkisráðherra lagði í morgun fram til kynningar í ríkisstjórn stefnu stjórnvalda um net- og upplýsingaöryggi fyrir tímabilið 2015–2026 ásamt aðgerðaáætlun til næstu þriggja ára.

24. apr. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Opnun tilboða í hringtengingar ljósleiðara á Vestfjörðum og Snæfellsnesi

Tilboð í hringtengingar ljósleiðara á Vestfjörðum og Snæfellsnesi voru opnuð í dag hjá Ríkiskaupum. Þrjú tilboð bárust í hvort verk. Öll tilboðin gera ráð fyrir verklokum árið 2015. Hagkvæmustu tilboðin eru vel undir kostnaðaráætlun.

09. apr. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Annað, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir styrki

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til sjóðsins en næsta úthlutun styrkja fer fram í október. Frímerkja- og póstsögusjóður var stofnaður árið 1986 og gilda um hann reglur nr. 453/2001. Umsóknarfrestur er til 5. október næstkomandi.

20. mar. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ljósleiðarahringtenging um Snæfellsnes og Vestfirði boðin út

Auglýst hefur verið á vef Ríkiskaupa útboð á ljósleiðaratengingum á Snæfellsnesi og Vestfjörðum en innanríkisráðherra fól fjarskiptasjóði fyrir skemmstu að stuðla að bættu öryggi fjarskipta á þessum landsvæðum. Stefnt er að því að unnt verði að skrifa undir verksamninga í byrjun maí.

07. mar. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Samið við Orkufjarskipti um hringtengingu ljósleiðara um Snæfellsnes

Í dag var undirritaður samningur milli fjarskiptasjóðs, f.h. innanríkisráðuneytisins, við Orkufjarskipti hf. um hringtengingu ljósleiðara um Snæfellsnes. Ekkert fjarskiptafélag bauð sig fram til verksins á markaðslegum forsendum og bauð sjóðurinn því út styrk í mars síðastliðnum. Þrjú tilboð bárust á bilinu 66 til 87 milljónir króna og áttu Orkufjarskipti hf. hagstæðasta tilboðið. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 86 milljónir króna.

23. feb. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ljósleiðarahringtenging undirbúin á Snæfellsnesi og Vestfjörðum

Fjarskiptasjóður hefur kallað eftir upplýsingum um markaðsáform fjarskiptafyrirtækja um lagningu og rekstur ljósleiðarahringtenginga um Snæfellsnes og Vestfirði. Innanríkisráðherra hefur falið sjóðnum að styrkja framkvæmdina reynist þess þörf.

10. jan. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

ESB efnir til samráðs um framtíðarreglur varðandi fjarskipti

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur opnað samráð á tveimur sviðum um framtíðarreglur um fjarskipti í Evrópu. Í báðum tilvikum stendur samráðið til 7. desember næstkomandi.

19. nóv. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Dagur upplýsingatækninnar haldinn 27. nóvember

Dagur upplýsingatækninnar 2014 verður haldinn á Grand hóteli í Reykjavík fimmtudaginn 27. nóvember. Fyrir hádegi fer fram fræðslufundur um öryggi opinberra vefja og eftir hádegi verður ráðstefna með yfirskriftinni: Byggjum, tengjum og tökum þátt.

18. nóv. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Leiðbeiningar um ljósleiðarauppbyggingu opinberra aðila

Póst- og fjarskiptastofnun hefur útbúið leiðbeiningar fyrir sveitarfélög og aðra opinbera aðila vegna uppbyggingar ljósleiðarakerfa. Leiðbeiningarnar fela í sér upplýsingar um regluverk EES-samningsins á sviði samkeppni og ríkisaðstoðar, tæknikröfur, upplýsingar um kröfur í útboðum ásamt fyrirmynd að útboðsgögnum og að samningi við fjarskiptafyrirtæki um tengingu og rekstur ljósleiðarakerfa.

30. okt. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Ný reglugerð um stjórn fjarskiptasjóðs og verkefnisstjórn

Reglugerð um stjórn fjarskiptasjóðs og verkefnisstjórn um framkvæmd fjarskiptaáætlunar hefur tekið gildi og kemur í stað eldri reglugerðar um sama efni. Ástæða þessarar breytingar er sú að tilfærsla hefur orðið á verkefnum með sameiningu ráðuneyta, uppfæra þurfti lagatilvísanir í reglugerðinni og um leið var breytt nokkrum öðrum efnisatriðum.

02. okt. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Innanríkisráðherra skipar formenn fagráða siglingamála og fjarskiptamála

Innanríkisráðherra hefur skipað Jarþrúði Ásmundsdóttur, framkvæmdastjóra, formann fagráðs um fjarskiptamál til næstu tveggja ára og Sigrúnu Lilju Guðbjartsdóttur, hagfræðing, formann fagráðs um siglingamál. Fagráðin eru skipuð annars vegar í samræmi við lög um fjarskiptamál og hins vegar lög um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála.

01. okt. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Kynnt drög að reglugerð um lénið .eu

Innanríkisráðuneytið birtir til kynningar drög að reglugerð um höfuðlénið .eu. Reglugerð þessi gerir íslenskum aðilum mögulegt að fá úthlutað léni með endingunni .eu. Áhrif og kostnaður af innleiðingu reglugerðarinnar eru óveruleg þar sem hér er um að ræða reglugerð sem veitir íslenskum aðilum ákveðin réttindi, þ.e. til þess að fá úthlutað lénum með .eu endingu en leggur takmarkaðar skyldur á herðar þeim.

15. sep. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Innanríkisráðherra leggur til að fjarskiptasjóður styrki hringtengingu ljósleiðara á Vestfjörðum

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra var til andsvara við sérstaka umræðu á Alþingi í gær þegar staða og öryggi í fjarskiptum á landsbyggðinni og uppbygging háhraðatenginga í dreifbýli var til umfjöllunar. Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður var málshefjandi. Ráðherra kvaðst hafa lagt til við fjarskiptasjóð að styrkja lagningu ljósleiðara milli Súðavíkur og Brúar í Hrútafirði og myndi slík hringtenging bæta mjög rekstraröryggi almennra fjarskipta sem og neyðarfjarskipta.

09. ágú. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Annað, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir styrki

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til sjóðsins. Umsóknarfrestur er til 30. september næstkomandi. Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð um í hvaða skyni sótt er um styrk.

27. maí 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

Drög að matslýsingu samgönguáætlunar og fjarskiptaáætlunar til umsagnar

Innanríkisráðuneytið kynnir um þessar mundir drög að matslýsingu fyrir samgönguáætlun 2015-2026 og fjarskiptaáætlun 2015-2026. Ráðuneytið leitar samráðs við almenning og hagsmunaaðila um matslýsinguna og er unnt að senda athugasemdir og ábendingar til 23. júní á netfangið [email protected].

11. maí 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Frumvarpsdrög um flutning netöryggissveitar til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra til umsagnar

Drög að lagafrumvarpi um flutning netöryggissveitar frá Póst- og fjarskiptastofnun til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra er nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að starfssvið sveitarinnar verði víkkað. Unnt er að senda umsagnir um frumvarpið á netfangið [email protected] til og með 17. nóvember næstkomandi.

28. mar. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Netöryggissveit flutt til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra um að netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar verði flutt til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Frumvarpinu er ætlað að tryggja aukið öryggi á þessu sviði og tryggja að forvarnir, viðbrögð og áherslur er varða netöryggi séu í samræmi við það sem best gerist í nágrannalöndum okkar.

26. feb. 2014Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Innanríkisráðherra skrifaði undir með farsíma

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra, undirritaði í gær skjal með farsíma á stærstu farsímaráðstefnu í heimi sem nú stendur yfir á Spáni. Jafnframt var í gær og fyrradag haldinn ráðherrafundur sem Hanna Birna sótti. Undirritunin fór í gegnum íslenska hugbúnaðinn CoreData. Ráðstefnan sem haldin er í Barcelona ár hvert er vel sótt og sýna um 1.700 sýnendur á ráðstefnunni og um 80.000 gestir.

16. des. 2013Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Starfshópur um þróun og regluverk í póstverslun skilar skýrslu

Helstu tillögur starfshóps um samkeppnisstöðu póstverslunar eru að lagt er til að erlendum fyrirtækjum sem selja vörur og póstleggja til Íslands verði heimilt að innheimta og skila virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum af þeim sendingum. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúar forsætisráðuneytis, innanríkisráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, Samtaka verslunar og þjónustu, Neytendasamtakanna og talsmanns neytenda. Fulltrúi innanríkisráðuneytis var Steinunn Valdís Óskarsdóttir.

09. okt. 2013Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Annað, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir styrki

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til sjóðsins. Umsóknarfrestur er til 30. september næstkomandi. Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð um í hvaða skyni sótt er um styrk.

20. ágú. 2013Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Umsagnarfrestur framlengdur um drög að breytingu á reglugerð um alþjónustu

Framlengdur hefur verið umsagnarfrestur um drög að breytingu á reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu nr. 364/2003. Umsagnarfrestur er nú til og með 2. september næstkomandi og skulu umsagnir sendar á netfangið [email protected].

18. júl. 2013Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Drög að breytingu á reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu til umsagnar

Drög að breytingu á reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu nr. 364/2003 eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu. Umsagnarfrestur er til og með 20. ágúst næstkomandi og skulu umsagnir sendar á netfangið [email protected].

04. maí 2013Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drög að reglugerð um netöryggissveit til umsagnar

Drög að reglugerð um starfsemi netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar eru nú til umsagnar og eru áhugasamir hvattir til þess að senda inn umsagnir. Unnt er að senda inn athugasemdir til 19. apríl og skulu þær berast á netfangið [email protected].

12. mar. 2013Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Óháð úttekt vegna netöryggis almennings

Innanríkisráðuneytið hefur ákveðið að láta gera óháða úttekt á netöryggi almennings vegna þess alvarlega öryggisbrests sem átti sér stað vegna tölvuinnbrots hjá Vodafone um síðustu helgi.

14. des. 2012Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Innanríkisráðherra heimsótti Skipti

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra heimsótti Skipti á dögunum og kynnti sér starfsemi fyrirtækisins. Skipti rekur fyrirtæki sem einkum starfa á sviði fjarskipta og upplýsingatækni.

09. júl. 2012Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Annað, Fjarskipti, Póstþjónusta, Innviðaráðuneytið

Auglýsing um úthlutun styrkja Frímerkja- og póstsögusjóðs

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til sjóðsins. Næsta úthlutun styrkja fer fram á degi frímerkisins þann 9. október 2012.

25. maí 2012Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Reglugerð um alþjóðlegt reiki væntanleg

Í innanríkisráðuneytinu hefur verið hafinn undirbúningur innleiðingar á nýrri Evrópureglugerð um alþjóðlegt reiki á grundvelli 2. mgr. 35. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003. Drög reglugerðarinnar eru birt hér á ensku og unnt er að gera athugsemdir til 13. júní. Umsagnir sendist á netfangið [email protected].

02. jan. 2012Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Innanríkisráðherra mælti fyrir fjarskiptaáætlun á Alþingi

Tillögur til þingsályktunar um fjögurra og tólf ára fjarskiptaáætlanir voru til umræðu á Alþingi í dag þegar innanríkisráðherra mælti fyrir þeim en umræðum var frestað og síðari mál tekin af dagskrá. Þá lauk umræðu í gær um samgönguáætlanir og ganga þær nú til meðferðar umhverfis- og samgöngunefndar.

26. okt. 2011Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

Drög að nýrri fjarskiptaáætlun til umsagnar

Innanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja nýja fjarskiptaáætlun fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi nú í haust. Verkefnið var unnið í innanríkisráðuneytinu með aðkomu Póst- og fjarskiptastofnunar auk vinnuhópa úr stjórnkerfinu í umsjón verkefnisstjórnar um endurskoðun fjarskiptaáætlunar.

• First
• Prev
• 3
• 4
• 5
• 6
• 7
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband