11. des. 2021Atvinnuvegir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Félags- og fjölskyldumál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Mikilvægur hvati fyrir nýsköpun og þróun í mannvirkjagerð
Stofnaður hefur verið nýr sjóður til að efla rannsóknir og nýsköpun í mannvirkjagerð á Íslandi. Opnað var fyrir umsóknir í fyrsta sinn í vikunni og hægt er að sækja um styrki fyrir rannsóknar- eða þróunarverkefni á sviði mannvirkjamála. Sjóðurinn, sem hefur fengið nafnið Askur, er fjármagnaður sameiginlega af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) annast stjórn og daglega umsýslu sjóðsins.