Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks
Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri
Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili mun rísa við Þursaholt 2 á Akureyri. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu samkomulag þess efnis í dag og skoðuðu byggingarstaðinn ásamt fulltrúum úr bæjarstjórn, öldungaráði og stjórn félags eldri borgara á Akureyri. „Ég er afar ánægð með að nýtt hjúkrunarheimili rísi á Akureyri og óska Akureyringum hjartanlega til hamingju. Gríðarleg þörf hefur verið fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila á Íslandi og nú er verkstjórn tekin við sem setur málið á dagskrá. Uppbygging hjúkrunarheimila er nú hafin fyrir alvöru,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.