Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1551–1600 af 1969
    Raða eftir:
    21. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Almannaöryggi

    Nýir ofanflóðagarðar vígðir í Neskaupsstað

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, opnaði formlega ný ofanflóðamannvirki á Tröllagiljasvæðinu í Neskaupsstað við hátíðlega athöfn í vikunni.

    15. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Rætt um framtíðarstefnu í baráttu gegn eyðimerkurmyndun

    Fulltrúar Íslands sitja nú 13. aðildarríkjaþing samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD) sem haldið er í borginni Ordos í Innri Mongólíu í Kína. Þar er stefna í starfi samningsins til næstu 12 ára til umfjöllunar, en í henni eru sett fram fjögur meginmarkmið.

    15. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur íslenskrar náttúru

    Viðurkenningar veittar í tengslum við Dag íslenskrar náttúru

    Ævar Þór Benediktsson hlaut fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Sigþrúður Jónsdóttir fékk Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í dag. Verðlaunin voru veitt í tengslum við Dag íslenskrar náttúru, sem er á morgun.

    14. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Evrópusamvinna

    Samgönguvika hefst á laugardag

    „Förum lengra – samferða“ er yfirskrift Evrópskrar samgönguviku í ár, en hún hefst á laugardag 16. september, á Degi íslenskrar náttúru. Um er að ræða samevrópska viku sem árlega stendur yfir dagana 16. – 22. september.

    10. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Friðlýsing vegna stækkunar friðlandsins í Þjórsárverum undirrituð

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði í dag auglýsingu um friðlýsingu vegna stækkunar friðlandsins í Þjórsárverum.

    02. sep. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands - áfangaskýrsla nefndar

    febrúar 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands - áfangaskýrsla nefndar Áfangaskýrsla nefndar sem hefur fjallað um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Skýrslan felur í sér greiningu á núverandi stöðu miðhálendisins auk kortlagningar svæðisins

    31. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Teista friðuð fyrir skotveiðum

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur með reglugerð friðað teistu fyrir skotveiðum. Ákvörðun um friðun er tekin á grundvelli umsagna frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Umhverfisstofnunar.

    22. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfismál á norðurslóðum í brennidepli nýrrar skýrslu

    Hnattræn hlýnun hefur einna mest áhrif á norðurslóðum en Norðurheimskautssvæðið hlýnar nú tvöfalt hraðar en önnur svæði jarðar að jafnaði. Ríki Evrópu eiga sinn þátt í þessari hröðu hlýnun en álfan getur einnig lagt sitt af mörkum til að sporna við frekari hlýnun í norðri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýlegri skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu um umhverfismál á norðurslóðum.

    18. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um Þjóðgarðastofnun kynnt í ríkisstjórn

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í dag í ríkisstjórn áform um að koma á fót Þjóðgarðastofnun sem tæki við verkefnum Vatnajökulsþjóðgarðs, Þjóðgarðsins á Þingvöllum, Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls auk annarra tiltekinna verkefna á sviði náttúruverndar á vegum Umhverfisstofnunar.

    11. ágú. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands – lokaskýrsla nefndar

    nóvember 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands – lokaskýrsla nefndar Lokaskýrsla nefndar um forsendur fyrir stofnun miðhálendisþjóðgarðs. Skýrslunni er ætlað að vera grundvöllur fyrir áframhaldandi umræðu og ákvarðanatöku varðandi verndun miðhálendisins

    11. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Lokaskýrsla um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands afhent ráðherra

    Nefnd um forsendur fyrir stofnun miðhálendisþjóðgarðs hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra lokaskýrslu sinni. Skýrslunni er ætlað að vera grundvöllur fyrir áframhaldandi umræðu og ákvarðanatöku varðandi verndun miðhálendisins.

    09. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra fundar með sveitarfélögum um þjóðgarð á miðhálendinu

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur síðustu mánuði fundað með þeim sveitarfélögum sem eiga land að miðhálendinu vegna þeirrar vinnu sem fer fram í ráðuneytinu þar sem kannaðar eru forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Alls eiga 22 sveitarfélög stjórnsýslumörk innan miðhálendislínunnar.

    09. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Tilnefningar til fjölmiðlaverðlauna á Degi íslenskrar náttúru

    Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem veitt verða föstudaginn 15. september í tengslum við Dag íslenskrar náttúru.

    25. júl. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Jökulsárlón og nærliggjandi svæði friðlýst sem hluti Vatnajökulsþjóðgarðs

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Jökulsárlóns og umfangsmikilla svæða sem liggja að lóninu. Um leið er svæðið fellt inn í Vatnajökulsþjóðgarð. Þar með nær þjóðgarðurinn frá hæsta tindi landsins niður að fjöru. Þessi breyting felur í sér að hluti þjóðvegar 1 liggur nú í gegn um þjóðgarð í fyrsta sinn.

    21. júl. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra hefur endurheimt votlendis við Urriðavatn

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, markaði í gær upphaf vinnu við endurheimt votlendis við Urriðavatn í Garðabæ með því að moka ofan í skurð við vatnið. Um leið undirrituðu Garðabær, Landgræðsla ríkisins, Toyota á Íslandi, Urriðaholt ehf og Byggingarfélag Gylfa og Gunnars samning um endurheimt votlendisins.

    09. júl. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra lýkur heimsóknum í stofnanir umhverfis- og auðlindaráðuneytisins

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, heimsótti í gær Þjóðgarðinn á Þingvöllum og hefur hún þar með heimsótt allar stofnanir ráðuneytisins frá því hún tók við embætti fyrr á árinu.

    06. júl. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Atvinnuvegir

    Ráðherra ávarpar hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í gær hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sem nú stendur yfir í New York í Bandaríkjunum. Á hafráðstefnunni eru saman komnir leiðtogar heims í umhverfisvernd og málefnum hafsins til að ræða leiðir til að hrinda í framkvæmd heimsmarkmiði SÞ nr. 14, sem lýtur að því að vernda hafið og nýta auðlindir þess á sjálfbæran hátt.

    30. jún. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Minni mengun í Atlantshafi en nýjar ógnir

    Styrkur ýmissa mengunarefna í norðaustur-Atlantshafi fer minnkandi og ástand sumra fisktegunda batnandi, samkvæmt nýrri úttekt OSPAR-samningsins á ástandi hafsvæðisins. Hins vegar er rusl í hafi viðvarandi vandi, ekki síst plast. Mikil niðursveifla hefur verið í mörgum stofnum sjófugla við norðanvert Atlantshaf. Til lengri tíma eru áhrif loftslagsbreytinga og súrnun hafsins mikið áhyggjuefni, en veruleg óvissa um hver áhrifin verða á lífríki hafsins.

    23. jún. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur íslenskrar náttúru

    Óskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningarfrestur er til 25. ágúst næstkomandi.

    22. jún. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Samningur við Kötlu Jarðvang undirritaður

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Brynja Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu Jarðvangs, undirrituðu í gær samning um stuðning ráðuneytisins við þróun og uppbyggingu jarðvangsins. Samningurinn er til fimm ára.

    21. jún. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Stefnt að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í gær hugmyndir um að setja af stað vinnu við stækkun friðlands Þjórsárvera, á fundi sem hún átti með fulltrúum þeirra sveitarfélaga sem eiga skipulagslega lögsögu á Þjórsárverasvæðinu og á Hofsjökli.

    16. jún. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Landspítali og Verandi tilnefnd til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

    Norræn dómnefnd hefur valið 11 verkefni til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs úr hópi þeirra tillagna sem borist hafa frá almenningi á Norðurlöndum. Þemað í ár eru verkefni sem færa okkur nær úrgangslausu samfélagi.

    16. jún. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Endurskoðuð fráveitureglugerð send út til umsagnar

    Nefnd um endurskoðun reglugerðar um fráveitur og skólp hefur skilað tillögum að breyttri reglugerð til ráðherra ásamt greinargerð. Nefndin leggur til ýmsar breytingar sem eru ætlaðar til að einfalda ákvæði reglugerðarinnar og gera hana skýrari.

    15. jún. 2017Orka, Auðlindir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Eignarnám vegna Kröflulínu 4 staðfest

    Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að eignarnám af hálfu Landsnets vegna Kröflulínu 4 hafi verið heimilt.

    26. maí 2017Fastanefndir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Fagráð náttúruminjaskrár Skipað 19. ágúst 2021. Fagráð náttúruminjaskrár er skipað samkvæmt 15

    26. maí 2017Fastanefndir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Breiðafjarðarnefnd Skipuð 27. október 2025. Nefndin hefur það hlutverk að vera umhverfis- orku- og loftslagsráðherra til ráðgjafar um það sem lýtur að framkvæmd laga nr

    24. maí 2017Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Efld vöktun á ástandi Mývatns

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur falið Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn (RAMÝ) og Umhverfisstofnun að efla vöktun á innstreymi næringarefna í Mývatn og fleiri þáttum nú í sumar. Slíkt sé nauðsynlegur þáttur í tengslum við aðgerðir til að draga úr áhrifum mannsins á lífríki vatnsins, s.s. í fráveitumálum.

    24. maí 2017Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Formaður og varaformaður Þingvallanefndar skipaðir

    Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Vilhjálm Árnason formann og Theodóru S. Þorsteinsdóttur varaformann Þingvallanefndar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi aðalmanna sem kosnir hafa verið af Alþingi til setu í Þingvallanefnd, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 47/2004, um þjóðgarðinn á Þingvöllum.

    24. maí 2017Orka, Auðlindir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ráðherra skipar starfshóp um úrbætur í þrífösun rafmagns

    Ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, hefur skipað starfshóp til að greina möguleika og gera tillögur um uppfærslur á raforkuflutningskerfi í dreifbýli, með áherslu á þrífösun rafmagns.

    05. maí 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd

    Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ýtt úr vör

    Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands skrifuðu í dag undir samstarfsyfirlýsingu um gerð aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem liggja skal fyrir í lok ársins.

    28. apr. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur umhverfisins

    Kuðungurinn veittur og Varðliðar umhverfisins útnefndir

    Umhverfis- og auðlindaráðherra, Björt Ólafsdóttir, veitti Endurvinnslunni í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Ártúnsskóla og Lýsuhólsskóla, Grunnskóla Snæfellsbæjar útnefndir Varðliðar umhverfisins.

    27. apr. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Fundi evrópskra umhverfisráðherra á Möltu lokið

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, er nýkomin heim af fundi evrópskra umhverfisráðherra sem haldinn var á Möltu í vikunni. Á fundinum ræddu ráðherrarnir þau umhverfismál sem talin eru hvað mest aðkallandi á 21. öldinni, þ.e. loftslagsbreytingar, plastmengun í hafi og hvernig megi koma á hringrásarhagkerfi í álfunni.

    25. apr. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur umhverfisins

    Dagur umhverfisins er í dag

    Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegur 25. apríl ár hvert. Dagurinn er tileinkaður Sveini Pálssyni sem fæddist þennan dag árið 1762. Sveinn er talinn meðal fyrstu Íslendinganna sem vöktu athygli á mikilvægi þess að vernda náttúruna og ganga ekki um of á gæði hennar. Árið 1998 valdi ríkisstjórn Íslands því fæðingardag hans, 25.apríl, sem Dag umhverfisins.

    09. apr. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Umhverfi og náttúruvernd

    Dagur íslenskrar náttúru haldinn hátíðlegur í 7. sinn

    Dagur íslenskrar náttúru verður haldinn hátíðlegur að venju þann 16. september næstkomandi. Þetta er í sjöunda sinn sem íslenskri náttúru er fagnað á þessum degi.

    07. apr. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Tillaga að stækkun friðlands Þjórsárvera til kynningar

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir til kynningar tillögu að mörkum og friðlýsingarskilmálum stækkaðs friðlands Þjórsárvera. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. október 2017.

    31. mar. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Úrskurðir umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytisins, Úrskurðir

    Mál 16040051 Hlífðarfatnaður fyrir slökkviliðsmenn

    <p>Úrskurður um stjórnsýslukæru Kosts lágvöruverðsverslunar ehf, dags. 12. apríl 2016,&nbsp;vegna ákvörðunar Mannvirkjastofnunar frá 29. febrúar 2016 þess efnis að synja kæranda um mat og viðurkenningu á Globe hlífðarfatnaði fyrir slökkviliðsmenn. Kæruheimild er í 36. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.</p>

    30. mar. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Rit og skýrslur

    Sjóbirtingur í Hornafirði og Skarðsfirði

    mars 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Sjóbirtingur í Hornafirði og Skarðsfirði Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskar ehf. hlaut styrk árið 2005 til að afla grunnupplýsinga um ferðir og fæðu sjóbirtinga Í Hornafirði og Skarðfirði með hliðsjón af eiginleikum fiskanna og árstíma

    30. mar. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Rit og skýrslur

    Áhrif beitarfriðunar á vöxt, blómgun og fræframleiðslu plantna á Skeiðarársandi

    mars 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Áhrif beitarfriðunar á vöxt, blómgun og fræframleiðslu plantna á Skeiðarársandi Dr. Bryndís Marteinsdóttir, próf

    17. mar. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Vistgerðir á Íslandi

    mars 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Vistgerðir á Íslandi Heildstætt yfirlit og lýsing á vistgerðum Íslands, útbreiðslu þeirra, stærð og verndargildi, útgefið af Náttúrufræðistofnun Íslands. Vistgerðir á Íslandi - fjölrit Náttúrufræðistofnunar Íslands (pdf-skrá)

    15. mar. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Önnur skýrsla Íslands um stöðu innleiðingar Árósasamningsins

    mars 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Önnur skýrsla Íslands um stöðu innleiðingar Árósasamningsins Önnur skýrsla Íslands til Árósasamningsins um stöðu innleiðingar samningsins hér á landi, skilað í mars 2017. Aðildarríkjum hans ber að skila slíkum skýrslum til skrifstofu samningsins á þriggja ára fresti

    14. mar. 2017Rit og skýrslur, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla um þróun kostnaðar heimila við raforkuöflun

    <p>Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur látið vinna skýrslu um þróun kostnaðar heimila við raforkuöflun, frá gildistöku raforkulaga 2005 til 2017. Sérstaklega er þar horft til heimila sem búa við rafhitun. Í skýrslunni er skoðuð þróun tekna og kostnaðar notenda fyrir kerfið í heild sinni (samkeppnis- og sérleyfisþátt) og sýndar samanburðartölur fyrir öll átta gjaldskrársvæði landsins; ásamt sköttum, verðjöfnun og niðurgreiðslum. </p>

    07. mar. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Ný reglugerð um varnir gegn mengun frá skipum

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett nýja reglugerð um varnir gegn mengun frá skipum, sem byggir á og innleiðir ákvæði MARPOL-samningsins, nánar tiltekið fjögurra viðauka hans. Markmið hennar er að vernda hafið og takmarka losun mengandi efna frá skipum í andrúmsloftið og í sjó.

    07. mar. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Drög að áætlun um loftgæði í umsögn

    Umhverfisstofnun hefur auglýst til kynningar drög að áætlun um loftgæði. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 31. ágúst 2017.

    05. mar. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Uppfærð framkvæmdaáætlun Íslands vegna þrávirkra lífrænna efna

    maí 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Uppfærð framkvæmdaáætlun Íslands vegna þrávirkra lífrænna efna Uppfærðri framkvæmdaáætlun Íslands vegna þrávirkra lífrænna efna var skilað inn til Stokkhólmssamningsins í mars 2017. Iceland, National Implementation Plan for the Stockholm Convention on Persistent Organic Pollutants (pdf-skjal)

    13. feb. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ísland og loftslagsmál - skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands

    febrúar 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Ísland og loftslagsmál - skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands (HHÍ) um möguleika Íslands til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti. Ísland og loftslagsmál - skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um möguleika Íslands til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda (pdf-skjal)

    06. feb. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Vegvísir um minnkun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði í vinnslu

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra og Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins skrifuðu í dag undir samning um verkefni við mótun vegvísis um minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði.

    06. feb. 2017Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Metnaðarfull aðgerðaáætlun í orkuskiptum fram til 2030

    Ísland ætlar sér áfram að vera í flokki með þeim þjóðum sem eru í fararbroddi varðandi notkun endurnýjanlegra orkugjafa og samþykkti einróma Alþingi í gær ályktun ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um orkuskipti til ársins 2030 og aðgerðaáætlun í 24 liðum.

    05. feb. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Norrænt samstarf

    Samstaða norrænu umhverfisráðherranna í loftslagsmálum

    Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra sat fund norrænu loftslags- og umhverfisráðherranna í Osló í dag.

    05. feb. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisráðherrar hvetja til sjálfbærrar nýtingar á plasti

    Framvegis ber að framleiða, nýta og endurvinna plast í hringrásarkerfi sem skaðar hvorki heilsu manna eða umhverfið. Þannig hljómar framtíðarsýn nýrrar plastáætlunar norrænu umhverfisráðherranna sem þeir samþykktu á fundi sínum í Osló í Noregi í dag.

    05. feb. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisþing haldið 20. október

    Umhverfis- og auðlindaráðherra boðar til X. Umhverfisþings í Hörpu í Reykjavík föstudaginn 20. október 2017.

    • First
    • Prev
    • 30
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband