Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1601–1650 af 1835
    Raða eftir:
    04. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun 2019-2023: Umtalsverð aukning til heilbrigðismála

    Útgjöld til reksturs heilbrigðismála munu aukast um 79 milljarða króna alls á næstu fimm árum miðað við fjárlög yfirstandandi árs. Stofnkostnaður, m.a. vegna byggingaframkvæmda, verður 101 milljarður á tímabilinu. Stefnt er að því að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga á tímabili fjármálaáætlunar, þannig að hlutdeild sjúklinga hérlendis verði sambærileg því sem gerist á Norðurlöndunum.

    02. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Frumvarp um rafrettur verður lagt fyrir Alþingi

    Heilbrigðisráðherra mun leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um rafrettur sem felur í sér heildstæðar reglur um innflutning, sölu og markaðssetningu á rafrettum og áfyllingum fyrir þær, auk ákvæða um eftirlit og skorður við notkun þeirra. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi ríkissstjórnar í liðinni viku.

    01. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heimsókn heilbrigðisráðherra á Landspítala

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti sér ýmsa þætti í starfsemi Landspítalans þegar hún heimsótti sjúkrahúsið í gær, auk þess sem hún átti fund með framkvæmdastjórn sjúkrahússins.

    01. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýr heilbrigðisstefna með jöfnuð að leiðarljósi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir eitt mikilvægasta verkefnið framundan að móta skýra og markvissa heilbrigðisstefnu sem verði hluti af samfélagssáttmála og snúist um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag eða búsetu fólks og tryggi skynsamlega nýtingu almannfjár. Slík stefna þurfi jafnframt að lifa af kosningar og breytingar á landsstjórninni.

    27. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Heilsugæslu á landsbyggðinni

    Heildstæð heilbrigðisstefna er forsenda árangursríkrar heilsugæslu á landsbyggðinni og þess að hægt sé að endurbæta fjármögnunarkerfi heilsugæslunnar. Því er brýnt að heilbrigðisráðherra leggi fram slíka stefnu. Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, Heilsugæsla á landsbyggðinni.

    26. apr. 2018Menningarmál, Líf og heilsa, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsagnir um verkferla í íþróttum

    Í kjölfar #églíka yfirlýsinga íþróttakvenna hefur mennta- og menningarmálaráðherra skipað starfshóp til þess að gera tillögur um frekari aðgerðir. Opið er fyrir umsagnir til hópsins í Samráðsgátt til. 7. maí.

    26. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    „Risastór og langþráður áfangi í uppbyggingu Landspítalans“

    Útboð jarðvinnu við nýjan meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut hefur verið auglýst og framkvæmdir munu hefjast í sumar. Meðferðarkjarninn er stærsta bygging framkvæmdarinnar og mun gjörbreyta allri aðstöðu fyrir sjúklinga, starfsfólk og aðra sem tengjast starfsemi sjúkrahússins.

    25. apr. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Uppbygging hjúkrunarrýma, áskoranir og nýsköpun í öldrunarþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í dag áætlanir um stórátak í uppbyggingu hjúkrunarrýma á landsvísu. Kynningin var haldin í Höfða við upphaf þriggja daga nýsköpunarvinnustofu um áskoranir í öldrunarþjónustu sem haldin er í samvinnu velferðarráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

    24. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skipað í samstarfsráð um uppbyggingu Landspítalans

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað samstarfsráð til að styrkja samvinnu aðila um uppbyggingu Landspítalans og efla samráð og miðlun upplýsinga þannig að áætlanagerð, framkvæmdir og forgangsröðun taki sem best mið af áherslum þeirra sem tengjast verkefninu.

    23. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Um rammasamning við ljósmæður og þjónustu við sængurkonur

    Heilbrigðisráðherra leggur kapp á að finna fyrirkomulagi á þjónustu við sængurkonur í heimahúsum traustari umgjörð en felst í þeim rammasamningi sem starfað hefur verið eftir hingað til. Þótt afsögn ljósmæðra af rammasamningi snerti nýbakaðar mæður óhjákvæmilega munu þær engu að síður njóta allrar þjónustu sem þörf er fyrir.

    20. apr. 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur starfshóps um viðbrögð við vaxandi nýgengi sykursýki

    apríl 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps um viðbrögð við vaxandi nýgengi sykursýki Skýrsla starfshóps um viðbrögð við vaxandi nýgengi sykursýki. Hópurinn var skipaður í samræmi við ályktun Alþingis nr

    17. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Úthlutun styrkja til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitti í dag styrki til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu. Gæðastyrkir hafa verið veittir árlega frá árinu 2001. Þeir eru einkum hugsaðar til að stuðla að umbótastarfi, nýbreytni og auknum gæðum heilbrigðisþjónustunnar og sem hvatning og viðurkenning fyrir störf á þessu sviði.

    17. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Breyting á reglugerð um lyfjaávísanir til umsagnar

    Athygli er vakin á drögum að reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1266/2017 um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem birt hefur verið til umsagnar í Samráðsgáttinni. Umsagnarfrestur er til 25. apríl næstkomandi.

    16. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Árangursríkt meðferðarátak gegn lifrarbólgu C vekur athygli

    Um 650 einstaklingar hafa lokið eða eru í meðferð vegna lifrarbólgu C á grundvelli meðferðarátaks sem hófst í ársbyrjun 2016. Af þeim 473 sem lokið höfðu meðferð þegar 15 mánuðir voru liðnir af átakinu höfðu 94% hlotið lækningu. Fjallað var um átakið á alþjóðlegu þingi í París í liðinni viku.

    12. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Helga Björg aðstoðar heilbrigðisráðherra tímabundið

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ráðið Helgu Björg Ragnarsdóttur tímabundið í stöðu aðstoðarmanns til að leysa af Iðunni Garðarsdóttur meðan hún er í fæðingarorlofi. Helga Björg er skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg en verður í leyfi frá störfum sínum þar meðan á afleysingu stendur.

    10. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hjúkrunarrýmum í Hafnarfirði fjölgar um 33

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Hafnarfjarðarbæ heimild sem gerir kleift að fjölga hjúkrunarrýmum í bæjarfélaginu um 33 innan tveggja ára. Hjúkrunarrými í Hafnarfirði verða þar með rúmlega 90. Ráðherra kynnti Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra ákvörðun sína í Hafnarfirði í dag. Ákvörðunin er liður í stórátaki stjórnvalda um uppbyggingu hjúkrunarrýma sem heilbrigðisráðherra kynnti fyrr á þessu ári með framkvæmdaáætlun til ársins 2023.

    09. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tannheilsa og aðgengi að tannlæknaþjónustu

    Með endurskoðun á greiðsluþátttöku aldraðra vegna tannlæknaþjónustu og nýjum rammasamningi hefur verið lagður hornsteinn sem jafnar aðgengi eldra fólks að nauðsynlegri tannlæknaþjónustu og stuðlar að betri tannheilsu þegar aldurinn færist yfir. Þetta er mat Embættis Landlæknis sem fjallar um tannheilsu og aðgengi að tannlæknaþjónustu í nýjasta Talnabrunni – fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar.

    09. apr. 2018Menntamál, Líf og heilsa, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Unga fólkið hefur rödd og áhrif

    Vellíðan, réttindi og menntunarmöguleikar ungs fólk bar helst á óformlegum fundi ungmennaráðs Samfés og Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í liðinni viku.

    06. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Kröfur landlæknis um öryggi við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu

    Embætti landlæknis hefur tekið saman skjal þar sem lýst er kröfum embættisins um öryggi við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu. Skjalið hefur verið birt til umsagnar á Samráðsgátt stjórnvalda áður en það verður lagt fyrir heilbrigðisráðherra til staðfestingar. Umsagnarfrestur er til 18. júní næstkomandi.

    05. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Afrakstur nýsköpunarstofu um þjónustu við aldraða á höfuðborgarsvæðinu

    Fjórar ýtarlegar tillögur um aðgerðir til að bæta þjónustu við aldraða eru afrakstur nýsköpunarstofu um þessi mál sem haldinn var í Höfða í lok apríl. Aðstandendur nýsköpunarstofunnar hafa ákveðið að efna til formlegs samstarfs til að vinna nánar úr tillögunum og hrinda þeim í framkvæmd.

    05. apr. 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi - tillögur starfshóps

    maí 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi - tillögur starfshóps Tillögur starfshóps til heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi. Starfhópurinn var skipaður af Embætti landlæknis í samræmi við þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára

    05. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi

    Starfshópur sem unnið hefur tillögur að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi hefur skilað heilbrigðisráðherra niðurstöðum sínum. Aðgerðaáætlunin verður kynnt á málþingi geðsviðs Landspítala um sjálfsvígsfornarnir í dag.

    28. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra úthlutar rúmlega 96 milljónum til lýðheilsu- og forvarnaverkefna

    Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra úthlutaði í dag rúmlega níutíu og sex milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 169 verkefna og rannsókna. Lýðheilsusjóður hefur það hlutverk að stuðla að heilsueflingu og forvörnum ásamt því að styrkja lýðheilsustarf um land allt.

    22. mar. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál, Velferðarvaktin, Annað

    Tillögur Velferðarvaktarinnar um bættar aðstæður utangarðsfólks

    Á fundi Velferðarvaktarinnar þann 20. mars sl. voru samþykktar tillögur um bættar aðstæður utangarðsfólks. Í tillögunum er meðal annars kallað eftir því að komið verði upp dagdvöl fyrir utangarðsfólk sem yrði opin allan daginn.

    21. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Frestun á gildistöku reglugerðar um lyfjaávísanir

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta gildistöku nýrrar reglugerðar um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem taka átti gildi 3. apríl næstkomandi. Reglugerðin tekur þess í stað gildi 1. júlí.

    21. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um mikilvægi neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis

    Komur á neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisofbeldis voru 187 árið 2017 og hafði komum þá fjölgað um 40% á tveimur árum. Svandís Svavarsdóttir skrifar um þessi mál, fjallar um þjónustu neyðarmóttökunnar og mikilvægi þess að vinna gegn ofbeldi í nánum samböndum í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag.

    20. mar. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Eftirfyglniskýrsla Ríkisendurskoðunar um Heilbrigðisstofnun Austurlands

    Ríkisendurskoðun ítrekar ekki ábendingar sínar til velferðarráðuneytis og Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá árunum 2009, 2012 og 2015 sem sneru að eftirliti með fjárreiðum og rekstri stofnunarinnar. Uppsafnaður halli stofnunarinnar var jafnaður út með lokafjárlögum 2015 og stjórnendur hennar hafa sýnt aukið aðhald í rekstri. Síðustu ár hefur rekstur stofnunarinnar verið í járnum en að jafnaði í samræmi við fjárveitingar.

    17. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Öruggir sjúkraflutningar tryggðir áfram

    Vegna ákvörðunar Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) um að slíta samstarfi við ríkið um rekstur sjúkrabíla vill ráðuneytið taka fram að öryggi sjúkraflutninga verður áfram tryggt meðan unnið er að því að skipuleggja fyrirkomulag þessarar þjónustu til framtíðar.

    16. mar. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Aðgangur að dvalarrýmum og dagdvöl verði óháður aldri

    Gildandi aldursmörk sem einskorða þjónustu dagdvalar og dvalarrýma við aldraða verða numin úr gildi samkvæmt nýju frumvarpi heilbrigðisráðherra. Aðgangur að þessari þjónustu verður bundinn við faglegt mat á þörf viðkomandi fyrir þessi úrræði. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi ríkisstjórnar í dag.

    16. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra heilbrigðisþjónustu

    Þrettán sóttu um embætti skrifstofustjóra heilbrigðisþjónustu í velferðarráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út 12. mars síðastliðinn.

    15. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rúmar 70 milljónir veittar félagasamtökum á sviði heilbrigðismála

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 72,6 milljónum króna í styrki til 29 félagasamtaka sem starfa á sviði heilbrigðismála. Auglýst var eftir styrkumsóknum í október sl. og bárust 44 umsóknir. Ráðherra hitti fulltrúa félagasamtakanna í gær við formlega afhendingu styrkjanna.

    15. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Landspítala falin fagleg og fjárhagsleg ábyrgð vegna S-merktra lyfja

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að færa fjárhagslega ábyrgð og umsýslu vegna S-merktra og leyfisskyldra lyfja frá Sjúkratryggingum Íslands til Landspítala. Horft er til þess að fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á innleiðingu og notkun nýrra og dýrra lyfja í landinu fari betur saman með þessu móti.

    13. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Blóðgjafi heiðraður

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra afhenti í dag Óla Þór Hilmarssyni viðurkenningu fyrir að hafa gefið blóð 175 sinnum. Blóðgjafafélag Íslands heiðar ár hvert blóðgjafa sem hvað oftast hafa gefið blóð sem þakklætisvott til þeirra og um leið hvatningu til annarra að gefa blóð ef þeir geta.

    09. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aukin aðkoma þyrlna að sjúkraflugi

    Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól að skoða möguleika á aukinni aðkomu þyrlna að sjúkraflugi skilaði ráðherra skýrslu með tillögum sínum í dag. Hópurinn skoðaði tvær leiðir í þessu skyni; annars vegar með aukinni aðkomu Landhelgisgæslu Íslands sem m.a. myndi reka sérstaka sjúkraþyrlu og hins vegar með rekstri sjúkraþyrlu sem rekin væri af öðrum en Landhelgisgæslunni.

    09. mar. 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Aukin aðkoma þyrlna að sjúkraflugi - skýrsla starfshóps

    september 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Aukin aðkoma þyrlna að sjúkraflugi - skýrsla starfshóps Aukin aðkoma þyrlna að sjúkraflugi - Skýrsla starfshóps með tillögum til heilbrigðisráðherra

    07. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fagleg samræða um þjónustu sérgreinalækna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra stóð fyrir fundi í velferðarráðuneytinu í gær þar sem efnt var til samræðu um þjónustu sérgreinalækna og faglegt fyrirkomulag hennar með stefnumótun til framtíðar að leiðarljósi. Þátttakendur í fundinum voru fulltrúar helstu veitenda heilbrigðisþjónustu í landinu.

    05. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skipað í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Elsu B. Friðfinnsdóttur skrifstofustjóra yfir skrifstofu heilbrigðisþjónustu í velferðarráðuneytinu. Skipunin er í samræmi við mat ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Elsu hæfasta úr hópi þrettán umsækjenda.

    05. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur starfshóps um bætta tannheilsu öryrkja og aldraðra

    Leitað verður samninga við tannlækna um nýja gjaldskrá vegna tannlækninga öryrkja og aldraðra og kostnaðarþátttaka ríkisins aukin. Byggt verður á tillögum starfshóps heilbrigðisráðherra um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum þessa hóps sem skilaði tillögum sínum fyrir nokkru.

    05. mar. 2018Mennta- og barnamálaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Líf og heilsa

    Hjólum í vinnuna

    Heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, er hafið. Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgönguleiðum.

    01. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gjaldfrjálsar tannlækningar barna komnar að fullu til framkvæmda

    Öll börn með skráðan heimilistannlækni eiga nú rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum samkvæmt samningi þar að lútandi. Gjaldfrjálsar tannlækningar barna hafa verið innleiddar í áföngum og lauk inneiðingunni 1. janúar sl. þegar börn yngri en þriggja ára öðluðust rétt samkvæmt samningnum.

    01. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Eflum geðheilbrigðisþjónustuna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um áherslur sínar í geðheilbrigðismálum í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Hún segir meginmarkmiðið sem hún muni hafa að leiðarljósi verði að tryggja öllum jafnan aðgang að heilbriðgisþjónustu, óháð efnahag og búsetu.

    26. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla Ríkisendurskoðunar um kaup á heilbrigðisþjónustu

    Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu sína til Alþingis um Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu. Stofnunin beinir tveimur ábendingum til velferðarráðuneytisins í tengslum við stjórnsýsluúttekt sína og snúa þær að stefnumótun í heilbrigðisþjónustu og verkaskiptingu við gerð samninga.

    23. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um rafrettur; lögmæt viðskipti og neytendavernd

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir frumvarp um rafrettur stuðla að lögmætum viðskiptum með þessa vöru og tryggja eftirlit og mikilvæga neytendavernd. Aðgengi fólks að rafrettum og reglur um notkun þeirra samkvæmt frumvarpinu geri þeim hægt um vik sem vilja hætta tóbaksnotkun með aðstoð þeirra.

    21. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skaðaminnkandi aðgerðir og rétturinn til heilbrigðisþjónustu

    Tryggja þarf að allir njóti jafns aðgangs að heilbrigðisþjónustu, burt séð frá þjóðfélagsstöðu. Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að jaðarhópar verði ekki útundan og bendir á mikilvægi skaðaminnkandi aðgerða í þessu samhengi fyrir vímuefnaneytendur.

    15. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Endurskoðun reglugerða um lyfjaskömmtun og meðferð lyfja á heilbrigðisstofnunum

    Heilbrigðisráðherra hefur sett af stað vinnu við að endurskoða reglugerð um lyfjaskömmtun ​og reglugerð um val, geymslu og meðferð lyfja á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Starfshópur sem skipaður var til verksins hélt fyrsta vinnufund sinn í gær.

    15. feb. 2018Rit og skýrslur, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Þróun örorku

    Greining KMPG fyrir velferðarráðuneytið um þróun á fjölda öryrkja og kostnaði við kerfið og snertifleti kerfisins gagnvart einstaklingum.

    13. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Loftslagsmál, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Stofnanir móti sér umhverfis- og loftslagsstefnu

    Loftslagsmál eru heilbrigðismál og lofslagsbreytingar ein af helstu áskorununum sem heimurinn stendur frammi fyrir, skrifar Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í blaðagrein þar sem hún hvetur stofnanir sem heyra undir embætti hennar til fylgja fordæmi Landspítala og setja sér stefnu í umhverfis- og loftslagsmálum.

    11. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Mikilvægt og löngu tímabært og setja fram skýra stefnu í heilbrigðismálum

    Meiri hluti Evrópuþjóða hefur sett sér heilbrigðisstefnu og það er aðkallandi og mikilvægt að slík stefna verði sett hér á landi. „Heilbrigðisstefna á að vera leiðarljós sem sameinar krafta þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu og tryggir sjúklingum bestu þjónustu sem völ er á, þar sem öryggi, gæði og jöfnuður eru í fyrirrúmi“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra við opnun heilbrigðisþingsins sem haldið er í dag.

    10. feb. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjanotkun og ónæmar bakteríur

    Árleg skýrsla Embættis landlæknis um sýklalyfjanotkun og algengi sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi hjá mönnum og dýrum er komin út. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að sýklalyfjanotkun hjá mönnun jókst um rúm 3% árið 2017 frá fyrra ári. Í tilkynningu á vef embættisins kemur meðal annars fram að á þessu ári hafi verið ráðist í vinnu með læknum sem miðar að því að efla vitund þeirra og bæta ávísanavenjur þeirra vegna sýklalyfja til að draga úr notkun þeirra. Útbreiðsla sýklalyfjaónæmra baktería er álitin ein helsta heilbrigðisógn samtímans segir í tilkynningunni.

    10. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrirkomulag gjaldtöku vegna markaðssetningar á rafrettum sem innihalda nikótín

    Neytendastofa vinnur að útfærslu á gjaldtöku vegna markaðssetningar á rafrettum sem innihalda nikótín og áfyllinga fyrir þær, á grundvelli reglugerðar heilbrigðisráðherra nr. 803/2018. Gert er ráð fyrir að framleiðendur vörunnar sæki um markaðsleyfi og greiði áskilið gjald, nema í tilvikum þegar smásalar kjósa sjálfir að tilkynna vöru á markað.

    • First
    • Prev
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • 35
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband