16. sep. 2020Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mál nr. 98/2020 - Úrskurður
Afhending gagna og upplýsinga. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um aðgang að athugasemdum, tölvupóstum, innanhúsráðgjöf og samantektum er varða hana og mál hennar nema hvað varðar aðgang að tölvupóstum milli stofnunarinnar og Íslandspósts. Sá hluti ákvörðunar Tryggingastofnunar er felldur úr gildi og kæranda skal veittur aðgangur að umræddum gögnum. Þeim hluta kæru sem varðar afgreiðslu Tryggingastofnunar á beiðni um afrit af ráðgjöf, afrit af fundargerðum og símtölum vegna mála kæranda er vísað frá þar sem umbeðin gögn eru ekki til og því telst ekki vera um synjun stjórnvalds að ræða í skilningi 19. gr. stjórnsýslulaga.