Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1851–1900 af 3353
    Raða eftir:
    13. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Vinnumál, Umhverfi og náttúruvernd, Nýsköpun

    Forsætisráðherra heimsótti í dag ýmis fyrirtæki í sveitarfélaginu Ölfusi og átti fund með fulltrúum bæjarstjórnar sveitarfélagsins

    Forsætisráðherra heimsótti frumkvöðlafyrirtækið Algeainnovation sem er að hefja umhverfisvæna ræktun á smáþörungum með endunýttri orku frá Hellisheiðarvirkjun. Þá var vatnsverksmiðja Icelandic glacial skoðuð en verksmiðjan vinnur vatn úr sjálfrennandi lind til útflutnings og á heimamarkað.

    11. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menntamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Umhverfi og náttúruvernd, Vinnumál, Atvinnuvegir

    Fyrsta skýrsla framtíðarnefndar um þróun samfélags komin út

    Fyrsta skýrsla framtíðarnefndar forsætisráðherra er komin út og fjallar hún um þróun atvinnulífs, umhverfis, byggðar og lýðfræðilegra þátta.

    10. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Áttundi fundur þjóðaröryggisráðs

    Fjallað var um undirbúning stefnu Norðurlandaráðs um sameiginlegar áherslur á sviði samfélagslegs öryggis og stöðuna í öryggis- og varnarsamstarfi við önnur ríki, ekki síst á vettvangi Norðurlanda á 8. fundi þjóðaröryggisráðs sem haldinn var 1. október sl.

    08. ágú. 2019Forsætisráðuneytið

    Sumarfundir ríkisstjórnarinnar við Mývatn

    Ríkisstjórnin kom saman til fundarhalda við Mývatn í dag. Auk ríkisstjórnarfundar og vinnufunda ríkisstjórnarinnar átti ríkisstjórnin fund með fulltrúum sveitarfélaga á Norðausturlandi og Eyþingi, landshlutasamtökum sveitarfélaga á svæðinu.

    07. ágú. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Nýtt greiningartól sem auðveldar gerð jafnlaunavottana

    Hannað hefur verið nýtt greiningartól, Embla, sem ríkisstofnanir geta nýtt við vinnu að jafnlaunavottun. Embla gerir stofnunum kleift að halda utan um greiningu á störfum fyrir innleiðingu jafnlaunastaðals og framkvæma einfaldar launagreiningar.

    03. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Vísinda- og tækniráð lætur vinna úttekt um nýsköpunarstyrki eftir landshlutum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mælti fyrir tillögu um úttekt á opinberu fjármagni til rannsókna, þróunar og nýsköpunar eftir landshlutum, á fundi Vísinda- og tækniráðs.

    03. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

    Ríkisstjórnin mun veita Sinfóníuhljómsveit Norðurlands 5 milljónir króna styrk í tilefni af 25 ára afmæli hljómsveitarinnar.

    03. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Utanríkisráðuneytið

    Höfði friðarsetur fær styrk vegna námskeiðs í samningatækni

    Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi að veita Höfða friðarsetri styrk upp á 3 milljónir króna af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til þess að halda námskeið í samningatækni og átakafræði með Harvard háskóla haustið 2019.

    02. ágú. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Frumvarp til laga um kynrænt sjálfræði í samráðsgátt til umsagnar

    Forsætisráðherra kynnti drög að frumvarpi til laga um kynrænt sjálfræði á ríkisstjórnarfundi í morgun. Drögin hafa verið birt í samráðsgáttinni þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að senda inn umsögn við efni frumvarpsins.

    02. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Alþjóðleg bókmenntaverðlaun kennd við Halldór Laxness

    Tillaga forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra um að ríkisstjórnin veiti tvær milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af verðlaunafé vegna nýrra alþjóðlegra bókmenntaverðlauna sem kennd verða við Halldór Laxness var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    02. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ríkisstjórnin fjallar um matvælastefnu fyrir Ísland

    Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um vinnu að matvælastefnu fyrir Ísland.

    01. ágú. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Skipulag jafnréttismála í forsætisráðuneytinu

    Jafnréttismál heyra nú í fyrsta sinn undir forsætisráðuneytið með breytingum á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna sem öðlaðist gildi 1. janúar sl. og í samræmi við þingsályktun um breytingu á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

    24. júl. 2019Forsætisráðuneytið

    Ásgeir Jónsson skipaður seðlabankastjóri

    Forsætisráðherra hefur skv. 1. mgr. 23. gr. laga, um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, skipað dr. Ásgeir Jónsson í embætti seðlabankastjóra til fimm ára frá og með 20. ágúst 2019.

    16. júl. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra kynnir innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á ráðherrafundi SÞ í New York

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti stöðu innleiðingar Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á árlegum ráðherrafundi um heimsmarkmiðin í höfuðstöðvum SÞ í dag

    15. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    811/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að skjali um efnahagsleg áhrif af mögulegri rekstrarstöðvun WOW Air hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Beiðni kæranda var synjað á grundvelli 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga þar sem það hefði verið tekið saman fyrir fund ráðherranefndar. Að mati úrskurðarnefndar bar skjalið það ótvírætt með sér að hafa verið tekið saman fyrir ráðherranefnd. Vegna þessa taldi úrskurðarnefnd að fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefði verið heimilt að synja kæranda um aðgang að skjalinu á grundvelli 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Með vísan til framangreinds varð ekki hjá því komist að staðfesta ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni kæranda um aðgang að skjalinu.

    15. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    810/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019

    Kærð var ákvörðun Seðlabanka Íslands um að synja beiðni blaðamanns um aðgang að samningi bankans við starfsmann um námsleyfi og styrk til náms. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það að upplýsingarnar yrðu felldar undir þagnarskylduákvæði 35. gr. laga um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001. Þá féllst nefndin ekki á að upplýsingarnar vörðuðu starfssamband bankans og fyrrum starfsmanns bankans, sbr. 7. gr. upplýsingalaga. Að lokum var ekki fallist á að upplýsingarnar vörðuðu einka- og fjárhagsmálefni einstaklings sem eðlilegt og sanngjarnt væri að leynt færu, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Var því lagt fyrir Seðlabanka Íslands að veita kæranda aðgang að samningnum.

    15. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    809/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019

    Deilt var um afgreiðslu Lindarhvols ehf. á beiðni Frigus II ehf. um upplýsingar um stjórnarfundi Lindarhvols á tímabilinu 27. apríl 2016 til loka árs 2016. Synjun Lindarhvols var byggð á því að beiðni kæranda hefði ekki verið afmörkuð með fullnægjandi hætti, sbr. 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál laut beiðni kæranda að tilgreindum upplýsingum með nægilega skýrum hætti til þess að hægt væri, án verulegrar fyrirhafnar, að afmarka hana við tiltekin gögn. Þannig hefðu skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga verið uppfyllt. Taldi úrskurðarnefnd ekki hjá því komist að vísa málinu aftur til Lindarhvols til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    15. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    808/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að afritum af lánasamningum og skuldaskilmálum Íslandspósts ohf. til dótturfélags síns, ePósts ehf. Af hálfu Íslandspósts kom fram að ePóstur væri undanþeginn gildissviði upplýsingalaga, og því þyrfti ekki að afhenda upplýsingar um lánveitingar og önnur fjárhagsmálefni sem vörðuðu undanþegið félag. Úrskurðarnefnd rakti að þegar beiðni kæranda barst Íslandspósti hefði ePóstur verið undanþeginn gildissviði laganna. Hins vegar væri til þess að líta að beiðni kæranda hefði ótvírætt verið beint að Íslandspósti, sem ekki væri undanþeginn gildissviði laganna.…

    15. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    807/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019

    Kærð var afgreiðsla Kópavogsbæjar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem vörðuðu samþykktir byggingarfulltrúa sveitarfélagsins í tilteknum málum. Undir meðferð málsins veitti Kópavogsbær kæranda aðgang að þeim gögnum sem talið var að féllu undir beiðni kæranda, en kærandi taldi bæinn ekki hafa sinnt skyldu sinni að afhenda öll fyrirliggjandi gögn. Úrskurðarnefnd taldi sig ekki hafa forsendur til að draga í efa þá fullyrðingu bæjarins að kæranda hefði verið veittur aðgangur að öllum gögnum sem skráð væru í málaskrá bæjarins vegna þeirra mála sem hann tilgreindi í beiðni sinni.…

    15. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    806/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019

    Kærð var synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni um aðgang að bréfi og fylgigögnum frá Félagi makrílveiðimanna. Synjunin var byggð á því að um væri að ræða upplýsingar um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni félagsmanna í Félagi makrílveiðimanna sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að gögnin innihéldu slíkar upplýsingar og lagði fyrir ráðuneytið að veita kæranda aðgang að þeim.

    15. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    805/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019

    Kærð var synjun Grímsnes- og Grafningshrepps á beiðni um aðgang að upplýsingum um álögð fasteignagjöld fyrir frístundahús og lögbýli á ákveðnu tímabili. Af hálfu sveitarfélagsins kom fram að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi að ekki væri um að ræða synjun í skilningi 20. gr. upplýsingalaga og var kærunni því vísað frá.

    15. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    804/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019

    Kærð var afgreiðsla Þjóðskrár Íslands á beiðni Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi um aðgang að netföngum félagsmanna. Þjóðskrá vísaði til þess að gögnin væru ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, þar sem ekki væri til sérstök skrá yfir netföngin þó svo að þau væri að finna í gögnum í vörslum stofnunarinnar. Einnig vísaði Þjóðskrá til þess að óheimilt væri að veita aðgang að netföngunum, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, þar sem netföng teldust til upplýsinga um einkamálefni einstaklinga. Úrskurðarnefndin tók fram að þegar beiðni um upplýsingar nær til upplýsinga sem nauðsynlegt væri að vinna upp úr öðrum gögnum dugi jafnan ekki að synja beiðninni á grundvelli 3. málsl. 1. mgr. 5. gr.…

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn

    Rökræðukönnun um stjórnarskrá um helgina

    Rökræðukönnun um endurskoðun stjórnarskrárinnar verður haldinn 9. til 10. nóvember nk. í Laugardalshöll með þátttöku 300 manna hóps hvaðanæva af landinu.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    842/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem kærði fellur ekki undir upplýsingalög.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    841/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kæru vegna afgreiðslu utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum var vísað frá þar sem umbeðin gögn voru ekki fyrirliggjandi í ráðuneytinu.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    840/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda, blaðamanns, um aðgang að gögnum með upplýsingum um hvaða fyrirtæki hafi gripið til hópuppsagna í maí 2019. Synjun Vinnumálastofnunar var byggð á því að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að upplýsingunum vegna 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál óskaði eftir afstöðu tveggja fyrirtækja sem höfðu tilkynnt hópuppsögn til Vinnumálastofnunar. Annað þeirra veitti samþykki fyrir því að kærandi fengi aðgang að upplýsingunum og var synjun Vinnumálastofnunar um aðgang að tilkynningu þess fyrirtækis felld úr gildi.…

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    839/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um ákvörðun Grindavíkurbæjar á beiðni um aðgang að sundurliðuðum útreikningum álagðra fasteignagjalda vegna tiltekinnar fasteignar. Sveitarfélagið hélt því fram að álagningarseðlar fasteignagjalda væru ekki vistaðir sjálfstætt heldur þyrfti að kalla þá fram með sérstakri aðgerð, þannig væru þeir ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu. Úrskurðarnefnd taldi ekki ástæðu til að draga þær skýringar í efa og var kæru því vísað frá.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    838/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kæru vegna afgreiðslu Landspítala-Háskólasjúkrahúss á gagnabeiðni var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Landspítali-Háskólasjúkrahús hélt því fram að kærandi hefði fengið afhent öll fyrirliggjandi gögn er varði gagnabeiðni kæranda og hafði úrskurðarnefnd um upplýsingamál ekki forsendur til að rengja þá staðhæfingu.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    837/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Samtök iðnaðarins kærðu ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um synjun beiðni um aðgang að samningi Tryggingastofnunar við Veðurstofu Íslands um aðstöðu fyrir miðlægan tölvubúnað Tryggingastofnunar í tölvusal Veðurstofunnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir samninginn og taldi ekki að ákvæði upplýsingalaga stæðu aðgangi í vegi. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningnum með vísan til meginreglu 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    836/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærð var ákvörðun Fjallabyggðar um synjun beiðni um aðgang að gögnum vegna verðkönnunar Fjallabyggðar. Leyst var úr rétti kæranda til aðgangs að gögnunum samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga en kærandi var meðal tilboðsgjafa. Talið var að hagsmunir kæranda til aðgangs að gögnunum vægju þyngra en hagsmunir annarra tilboðsgjafa af því að upplýsingarnar í gögnunum færu leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. laganna. Var því synjun Fjallabyggðar felld úr gildi það lagt fyrir sveitarfélagið að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Atvinnuvegir

    Forsætisráðherra flutti ávarp á tíundu Sjávarútvegsráðstefnunni

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fjallaði um íslenskan sjávarútveg í samhengi við íslenskt samfélag og íslenska sjálfsmynd í ávarpi sínu á Sjávarútvegsráðstefnunni. Hún rifjaði upp sögu sjávarútvegs hér á landi og þær miklu framfarir sem hafa orðið, ekki síst á undanförnum árum með tilkomu hátæknilausna í greininni.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    835/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærandi óskaði eftir upplýsingum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um það úr hvaða háskólum verkfræðingar, arkitektar, landslagsarkitektar, tæknifræðingar og byggingafræðingar, sem séu á listum sem birtir eru á vefsíðum ráðuneytisins og fengið hafa leyfi til að nota viðkomandi starfsheiti, luku námi sínu, þ.e. nafn háskóla og námsland, auk upplýsinga um námsgráðu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ráðuneytinu að um væri að upplýsingar um einkahagsmuni einstaklinga sem óheimilt sé að veita aðgang, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Þá féllst nefndin ekki á að umfang beiðninnar væri slíkt að ráðuneytinu væri heimilt að synja beiðninni með vísan til 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga.…

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    834/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að upplýsingum um kostnað vegna öryggisgæslu við íslensk sendiráð. Fyrir lá að ráðuneytið hafði útbúið skjal með umbeðnum upplýsingum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með utanríkisráðuneytinu að um væri að ræða upplýsingar um öryggi ríkisins sem mikilvægir almannhagsmunir krefjast að fari leynt, sbr. 1. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Var því synjun ráðuneytisins staðfest.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    833/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærandi óskaði eftir gögnum frá Reykjavíkurborg varðandi tiltekna framkvæmd annars vegar og samskipti kæranda við sveitarfélagið hins vegar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þá fullyrðingu Reykjavíkurborgar að aðgangur hafi verið veittur að öllum fyrirliggjandi gögnum er varði framkvæmdina og var því kæru vísað frá að þessu leyti. Beiðni kæranda um gögn varðandi samskipti kæranda og Reykjavíkurborgar var hins vegar vísað aftur til sveitarfélagsins til nýrrar meðferðar þar sem skorta þótti á að kæranda hafi verið leiðbeint með afmörkun beiðninnar.

    11. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    832/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum sem höfðu verið afmáðar úr samningum sem utanríkisráðuneytið og Þróunarsamvinnustofnun Íslands gerðu við Íslenskar orkurannsóknir. Utanríkisráðuneytið synjaði kæranda um aðgang að upplýsingunum með vísan til 2. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti synjun utanríkisráðuneytisins að hluta, með vísan til 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, en felldi úr gildi synjun ráðuneytisins að öðru leyti.

    08. júl. 2019Forsætisráðuneytið

    Sumarfundur ríkisstjórnarinnar haldinn við Mývatn 8. ágúst

    Ríkisstjórnarfundur verður haldinn við Mývatn á morgun, fimmtudaginn 8. ágúst.

    06. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Handverk og hönnun hlýtur styrk af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar

    Ríkisstjórnin ákvað að veita 6 m. kr. af ráðstöfunarfé sínu til verkefnisins ,,Handverk og hönnun“ á fundi sínum í morgun. Markmiðið með styrknum er að stuðla að eflingu handverks og listiðnaðar hér á landi.

    05. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Sinfóníuhljómsveit Íslands

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 15 millj. kr. af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til Sinfóníuhljómsveitar Íslands til að standa straum af tónleikaferðalögum hljómsveitarinnar til Bretlands og Bandaríkjanna á árunum 2020 og 2021. 7,5 millj. kr. verða veittar af ráðstöfunarfé ársins 2019 og 7,5 millj. af ráðstöfunarfé ársins 2020.

    05. júl. 2019Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra skipar hæfnisnefnd vegna umsækjenda um embætti seðlabankastjóra

    Forsætisráðherra hefur skipað þriggja manna hæfnisnefnd í samræmi við ákvæði laga um Seðlabanka Íslands til að meta hæfni umsækjenda um embætti seðlabankastjóra.

    03. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Drög að frumvörpum til laga um sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins birt til umsagnar

    Forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneyti hafa birt drög að frumvarpi forsætisráðherra til laga um Seðlabanka Íslands og drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins í samráðsgátt til umsagnar. Umsagnarfrestur er til 18. mars nk.

    03. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Lög og réttur

    Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynnir síðari áfanga starfsins

    Nefnd forsætisráðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynnti afrakstur vinnu sinnar í síðari áfanga nefndarstarfsins á blaðamannafundi í dag í Þjóðminjasafninu.

    02. júl. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar samning við Samtökin ´78

    Forsætisráðuneytið og Samtökin ´78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna ´78, undirrituðu samning þessa efnis í Stjórnarráðinu.

    27. jún. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Mannréttindi og jafnrétti, Sendiskrifstofa, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna og fundar með framkvæmdastjóra Alþjóða Rauða krossins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag. Í ávarpi sínu ræddi forsætisráðherra um launajafnrétti sem réttindamál, hinsegin réttindi og réttinn til heilnæms umhverfis.

    26. jún. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundar með framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar SÞ og mannréttindastjóra SÞ

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Filippo Grandi, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Michelle Bachelet, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna (OHCHR).

    26. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn

    Viðhorfskönnun um stjórnarskrá lýðveldisins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur í samráði við fulltrúa allra flokka sem sæti eiga á Alþingi ákveðið að fela Félagsvísindastofnun HÍ að kanna viðhorf Íslendinga til stjórnarskrárinnar og endurskoðunar hennar.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    803/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var afgreiðsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna á beiðni um upplýsingar um nemendur sem sótt hefðu nám í skipulagsfræðum erlendis á ákveðnu tímabili. Stofnunin hafði afhent kæranda upplýsingar þess efnis en hann taldi þær ófullnægjandi. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, var málinu vísað frá.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    802/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var synjun Hafrannsóknastofnunar á beiðni Landssambands smábátaeigenda um lista yfir þá aðila sem orsakað hefðu skyndilokanir á veiðisvæðum á árunum 2016 til 2018. Af gögnum máls mátti sjá að skipaskrárnúmer væru ekki skráð í gagnagrunn Hafrannsóknastofnunar um skyndilokanir. Af þeim sökum teldust umbeðnar upplýsingar ekki fyrirliggjandi hjá stofnuninni. Þar sem ekki lægi fyrir synjun á beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, var málinu vísað frá.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    801/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var synjun Íslandspósts ohf. á beiðni blaðamanns um aðgang að ákveðnum gögnum vegna eftirlitsnefndar sem komið hafði verið á fót vegna sáttar á milli Samkeppniseftirlitsins og Íslandspósts. Synjun Íslandspósts byggðist á því að eftirlitsnefndin væri hvorki stjórnvald né hluti af starfsemi Íslandspósts og heyrði því ekki undir gildissvið upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin komst að því að eftirlitsnefndin væri hluti af Íslandspósti. Synjun félagsins var felld úr gildi og lagt fyrir félagið að taka beiðnina til nýrrar meðferðar. Einum lið kærunnar var þó vísað frá þar sem fram hafði komið að engin gögn þar að lútandi lægju fyrir.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    800/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var afgreiðsla Grindavíkurbæjar á beiðni um upplýsingar um álagningu stöðuleyfis- og fasteignagjalda á tiltekin stakstæð hús í sveitarfélaginu. Af gögnum málsins mátti sjá að fyrirspurn kæranda hafði verið svarað. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, var málinu vísað frá.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    799/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um upplýsingar um tilfærslu listaverka í eigu bankans. Samkvæmt skýringum Seðlabankans lágu engin gögn fyrir í málinu og af þeirri ástæðu væri bankanum ómögulegt að verða við beiðni kæranda. Úrskurðarnefnd taldi ekki ástæðu til að draga þær skýringar í efa og var málinu því vísað frá.

    • First
    • Prev
    • 36
    • 37
    • 38
    • 39
    • 40
    • Next
    • Last

    Yfirlit

    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband