01. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, Hjálparstarf, Íslensk frjáls félagasamtök, neyð, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir
Tæplega 190 milljónir í boði fyrir félagasamtök
Utanríkisráðuneytið hyggst úthluta 186,5 milljónum króna til félagasamtaka á þessu ári vegna verkefna á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála. Af þessari fjárhæð á að ráðstafa 121 milljón króna til mannúðarverkefna og 62,5 milljónum til þróunarsamvinnuverkefna. Opið er fyrir umsóknir allt árið til mannúðarverkefna, með fyrirvara um að fjárheimildir kunni að vera fullnýttar áður en árið er liðið, en umsóknarfrestur um styrki til þróunarsamvinnuverkefna er til mánudagsins 16. mars.