13. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál
Varnarmálaráðherrafundur JEF fór fram í Hollandi
Varnamálaráðherrar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) funduðu í Amsterdam í dag, þriðjudaginn 13. júní. Ráðherrarnir ræddu stuðning ríkjanna við Úkraínu, viðbrögð við fjölþáttaógnum og næstu verkefni samstarfsins sem hverfast meðal annars um að viðhalda öryggi og stöðugleika í Norður-Evrópu, á norðurslóðum, í Norður-Atlantshafi og á Eystrasaltssvæðinu.