21. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Covid-19, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Mannréttindi og jafnrétti
UNGA76: Sjálfbær auðlindanýting, loftslagsmál og mannréttindi leiðarstefin
Nú stendur yfir 76. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York sem sett var með formlegum hætti í síðustu viku. Að þessu sinni verður þingið blanda af fjarfundum og beinni þátttöku vegna heimsfaraldursins. Íslenskir ráðamenn taka þátt í þinginu og hliðarviðburðum með fjarfundabúnaði og myndabandsupptökum.